42.189 fréttir fundust
Síða 692 af 844
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Sólmyrkvagleraugu á, af og aftur áÓafturkræfur skaði getur orðið á augum ef horft er beint í sólina og venjuleg sólgleraugu duga ekki til að verja augun fyrir skaðlegum geislum frá sólinni. Almyrkvi verður sjáanlegur frá vesturhluta landsins 12. ágúst. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvöldsÍbúi í Hamraborg þar sem niðurrif stendur yfir vegna byggingu nýs miðbæjar Kópavogs segir hávaðann óbærilegan. Hann sér nú ekkert út um gluggann nema viðarplötu. Annar íbúi segir að svo virðist vera sem það hafi hreinlega gleymst að fólk búi í Hamraborg. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lokanir á Arnarnesvegi og við SundagarðaSundagarðar verða lokaðir milli Sundaborga og Sundabakka föstudaginn 7. ágúst. Til stendur að fræsa akrein ef veður leyfir. Framkvæmdir myndu þá standa yfir frá tólf á hádegi fram til fjögur síðdegis. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Varar við vindhviðum á VestfjörðumVeðurfræðingur Vegagerðarinnar varar vegfarendur í kvöld og á morgun við ákveðinni norðaustanátt með vindhviðum allt að 25 metrum á sekúndu í vindstrengjum á Vestfjörðum, þá einkum á fjallvegum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Varað við vindhviðum á VestfjörðumVegagerðin varar við ákveðinni norðaustanátt í kvöld og á morgun með vindhviðum um 25 metra á sekúndu í vindstrengjum á Vestfjörðum, einkum á fjallvegum. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Innrammaði einstaka kvittun úr matvöruverslunVið þekkjum það öll sem verslum í matinn að vera boðið að taka kvittun fyrir kaupunum eða þurfa að prenta hana út sjálf ef við förum á sjálfsafgreiðslukassa. Margir taka aldrei kvittun og þeir sem taka hana henda henni fljótlega í ruslið. DV Pressan Erlendar fréttir
Fundu grunaða með hitamyndavélMaður, nákominn konu sem fannst örend í íbúð á eyju í skerjagarðinum úti fyrir sænsku höfuðborginni Stokkhólmi í fyrradag, hefur nú verið handtekinn, grunaður um að stytta henni aldur. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Náðu ekki í Neyðarlínu eftir alvarlegt slys í FljótsdalIlla gekk að ná sambandi við Neyðarlínuna þegar karlmaður slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Fljótsdal á þriðjudag. Heimamenn segja farsímasamband hafa versnað í Fljótsdal eftir að fjarskiptakerfum var lokað í fyrra. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Evrópuherinn og hlutur ÍslendingaÍ kjölfar greinar undirritaðs, Evrópher, vígbúnaður og herskylda, í Morgunblaðinu 30. júlí sl. hefur orðið nokkur umræða á netinu og nú síðast í nýlegri grein Svans Sigurbjörnssonar hér á Vísi. Vísir Skoðun Aðsendar greinar
Tungumálið gæti flætt yfir bakka sínaSöngtextar á íslensku skipta gríðarlega miklu máli í varðveislu tungumálsins að mati Bubba Morthens, tónlistarmanns og ljóðskálds. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dagNeikvæð mynd er dregin upp af áhrifum aðildaviðræðna og mögulegri inngöngu Íslands í Evrópusambandið á landbúnað hér á landi, í nýrri skýrslu sem Búnaðarþing lét gera. Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna telur að aðild fæli í sér valdaafsal og líkir málinu við sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 19. öld. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tveir erlendir leikmenn yfirgefa KeflavíkVængmaðurinn Halid Alghoul og markvörðurinn Mirsad Basic hafa báðir spilar sinn síðasta leik fyrir Keflavík í Bestu deild karla en félagið tilkynnti um brottför þeirra beggja í dag. Vísir Íþróttir Íþróttir
Var þetta kosningaloforðið?Það er búið að vera skrítið að fylgjast með ríkisstjórn undanfarið. Hún var kjörin næstum eingöngu til að lækka vexti og koma á efnahagslegum stöðugleika á ný, samt er bara búið að vera gera þveröfugt. Stýrivextir, sem voru á niðurleið hafa hækkað á ný. Vísir Skoðun Aðsendar greinar
Grunaður um að hafa myrt níu ára stúlkuHálffertugur maður kom fyrir sakadóm í Forfar í Austur-Skotlandi í gær þar sem hann var borinn þeirri sök að hafa myrt níu ára gamla stúlku eftir að hún fannst illa haldin á iðnaðarsvæði í Arbroth um á mánudaginn. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Þorgerður krefst yfirráða yfir sjávarútvegi í ESB-viðræðumÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að íslensk stjórnvöld geri kröfu um „fullveldisyfirráð yfir öllum sjávarútvegi“ komi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Þetta segir hún í viðtali við breska blaðið Financial Times sem birtist í dag. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Nýr upplýsingvefur Samgöngustofu vegna almyrkvansFarþegaflutningar í atvinnuskyni á sjó eru háðir leyfi, þar á meðal siglingar sem boðnar eru í tengslum við almyrkvann 12. ágúst næstkomandi. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Brunalyktin fjarað útEnga skýringu var að finna á brunalykt og reyk í stigagangi í Asparfelli, en slökkviliðið var kallað út rétt fyrir klukkan fjögur. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu matiPétur Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, segist ánægður með endurskoðun á gerð áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavík. Nýja nálgunin felur í sér að áhættumatið byggi ekki aðeins á vísindalegu mati, heldur taki einnig mið af reynslu og gildismati þeirra sem búa og starfa við langvarandi óvissu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Mín kynslóð brást!Ég hef verið í atvinnurekstri í tæp 40 ár og upplifað sveiflur og áföll í íslensku efnahagslífi, sem virðast endurtaka sig sí og æ! En iðulega hefur mér verið sagt að lausn á þessum vandræðum liggi í "okkar höndum" og að við þurfum einfaldlega "að sýna aga", sem ég ætla ekki að gera lítið úr. Vísir Skoðun Aðsendar greinar
Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Íslandsmótinu í golfiDagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er með forystu eftir fyrsta daginn á Íslandsmótinu í golfi sem fer fram á Korpúlfsstöðum í ár en hann vann Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í fyrra. Vísir Íþróttir Íþróttir
Níels varð vitni að ljótu atviki í morgun og hafði samband við lögreglunaNíels Bjarki Finsen varð vitni að því í morgun (fimmtudagsmorgun), á gatnamótum við Smáralind, að bíll fór yfir á strætóakrein, hægra megin við raðirnar sem biðu á rauðu ljósi, þaðan síðan yfir á rauðu ljósi og hafnaði á hjólreiðamanni sem fór þvert yfir á grænu ljósi. DV Fréttir Fréttir
150 farþegar í fyrsta leiðangursskipinu til KópaskersÍ byrjun vikunnar lagðist í fyrsta sinn stórt farþegaskip úti fyrir Kópaskeri og komu 150 farþegar í land í þorpinu. Í þeirri höfn eru mestmegnis smábátar svo dagurinn var eftirminnilegur fyrir hafnarstjóra. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
13 látnir í kólerufaraldri í ChadÞrettán manns hafa látist í kólerufaraldri sem geisar í Afríkuríkinu Chad. Nærri 240 manns hafa smitast af bakteríunni og dánartíðni er 5,4 prósent. Faraldurinn er að mestu leyti bundinn við norðurhluta landsins, í héraðinu Hadjer Lamis og borginni N'djamena. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði nýlega við fjársterka stuðningsmenn sína á lokuðum fundi að þeir ættu að styðja við hugsanlegt framboð J. D. Vance varaforseta í forsetakosningum 2028. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Gagnrýna vinnubrögð lögreglu í sýknudómi sexmenningannaSex ungir karlar hafa verið sýknaðir af ákæru um hættulega líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll í Kópavogi september 2021. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í lok júlí en hefur nú verið birtur. Árásin átti að hafa orðið í samkvæmi þar sem ungmenni voru saman komin. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyrameginÍslenska samfélagið stendur frammi fyrir kerfislægu meini sem er dýpra en einstakar kosningar eða skammvinn pólitísk átök. Í rúman fjórðung aldar hafa opinberar skýrslur, rannsóknarnefndir og óháðar úttektir varpað ljósi á sama mynstrið - kerfi sem á að verja hagsmuni almennings bregst þegar mest á… Vísir Skoðun Aðsendar greinar