42.110 fréttir fundust
Síða 43 af 843
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Saltvítið við EvrópustrendurUm þetta leyti tóku heljarkraftar landreksins að brjóta Pangeu í sundur, fyrst í tvo meginhluta. Norðurhlutann köllum við Lárasíu og í honum voru meginlandsflekarnir sem síðar urðu Norður-Ameríka, Evrópa og stór hluti Asíu. Heimildin - Þekking Tækni og Vísindi
Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðlaAxel Máni Bjarnason skilaði sér á Bessastaði um klukkan sex í kvöld eftir að hafa skriðið þangað frá Njarðvík yfir tólf daga tímabil. Eins og sönnu nútímaungmenni sæmir var allri vegferðinni streymt í beinni útsendingu á Tiktok þar sem fleiri þúsund manns fylgdust með athæfinu. Vísir - Netið og samfélagsmiðlar Netið og samfélagsmiðlar
Pólitísk uppsögn á HagstofuHagstofan heyrir undir forsætisráðuneytið. Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri staðfestir í viðtali á Vísi að Hirti hafi einum verið sagt upp til að spara fjármuni. Á Hagstofunni starfa um 120 manns. Útskýring Hrafnhildar er mótsögn. Frettin - Innlendar fréttir Innlendar fréttir
#148. - Íslamskir öfgamenn, óþarfir biðlistar og kosningarHvað segir heimsókn Muhammad Taqi Usmani til Íslands um uppgang íslamskra öfgahópa hér á landi? Hver er afstaða múslima á Íslandi til þeirra viðhorfa sem hann heldur á lofti? Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum í dag. Þar mætast þau Elliði Vignisson,... meira Spursmál Samfélag og viðtöl
Bókun 35 við EES-samninginn: Ísland þarf ekki að taka upp norsku leiðinaÍsland hefur efnislega innleitt bókun 35 við EES-samninginn. Úrslitaatriðið er ekki hvort 3. gr. íslensku EES-laganna endurtaki 2. gr. norsku EES-laganna, heldur hvort íslenskur réttur veiti réttindum samkvæmt innleiddum EES-reglum fyrirsjáanlega og virka vernd fyrir dómstólum. Viðskiptablaðið - Pistlar Aðsendar greinar
Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínumHeimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins biðst afsökunar á færslu sinni á samfélagsmiðlinum X, sér í lagi til vísunar til kjarnorkuvopna. Hann segir orðin eiga sér engar málsbætur, um sé að ræða persónulega færslu sem tengist á engan hátt störfum hans fyrir Flokk fólksins. Vísir - Netið og samfélagsmiðlar Netið og samfélagsmiðlar
Meira en nóg hjá Ice GuysFátt er skemmtilegra en íslensk tónlist og það er vegna þess að Íslendingar eru ótrúlega hæfileikaríkir á þessu sviði. Eina sem er betra en íslensk tónlist er ný íslensk tónlist og hefur Mannlíf valið fimm nýleg íslensk lög sem allir þurfa að hlusta á um helgina. Mannlíf - Menning Menning
Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin launÉg hef unnið með eigendum sem hafa frestað eigin launagreiðslum svo starfsfólkið fái greitt á réttum tíma. Þeir setja sig aftast í röðina. Sumum finnst það kannski sjálfsagt en það er ekki sjálfsagt að stofna fyrirtæki og fara í rekstur, leggja eigið fé undir, ráða starfsfólk og taka áhættu. Viðskiptablaðið - Pistlar Aðsendar greinar
Margs konar ást Bjarkar og AntoníuBjörk Níelsdóttir, sópransöngkona, verður gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda hádegistónleikaraðarinnar í Hafnarborg á tónleikum þriðjudaginn 3. nóvermber kl. 12.. Fjarðarfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Ufsi í Noregi skorinn niður um 22%Fiskveiðiárið 2024/2025 var leyfilegur heildarafli 66.577 tonn á Íslandi en veiðin það fiskveiðiár var ekki nema 37.160 tonn. Fiskveiðiárið 2025/2026 var leyfilegur heildarafli 59.400 tonn en veiðin 37.510 tonn. Á yfirstandandi fiskveiðiári er aflamarkið 50.230 tonn. Fiskifréttir - Erlent Sjávarútvegur
Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu MargrétarÍ lýsingu bókaútgáfunnar Benedikts segir að Varkár fjalli um þrána eftir því að eignast barn og tilveruna sem bíður ekki eftir neinum. Sagan er sögð í stuttum brotum þar sem minningar, hversdagsleg augnablik, ást og missir fléttast saman. Útkoman er sögð bæði átakanleg og á köflum óþægilega fyndin. Mannlíf - Menning Menning
Með huliðshjálminn á höfðinuFornsögur og ævintýri geyma stundum skart eða klæði sem búa yfir þeim töframætti að gera fólk ósýnilegt. Stundum mætti halda að ríkisstjórnin teldi sig söguhetju í slíku ævintýri þar sem eðlilegt sé að hylja sig og sitt fyrir fólkinu í landinu. Sjálfstæðisflokkurinn - Greinar Stjórnmálaflokkar
Verum viðbúin, ekki hrædd„Bryndís, af hverju ertu alltaf að tala um þessi varnarmál? Heldurðu virkilega að rússneski herinn sé á leiðinni til Íslands? “ Ég fæ reglulega spurningar á borð við þessa og skil vel að mörgum finnist umræða um varnar- og öryggismál almennt frekar fjarlæg. Sjálfstæðisflokkurinn - Greinar Stjórnmálaflokkar
Farsælt ferðalag fólks og villts fisksÞví hefur einnig verið haldið fram að engin gögn sýni að sjókvíaeldi og ferðaþjónusta eigi ekki samleið. Skortur á gögnum gefur ekki grænt ljós til að halda leyfisveitingum áfram. Austurfrétt - Umræðan Aðsendar greinar
Rjómalagað kjúklingapasta með beikoniMatgæðingur vikunnar er Daníel Arnar Víðisson. Jæja, þá er komið að mér að sýna hvað í mér býr í eldhúsinu og ég tek þessari áskorun af fullri alvöru… eða svona næstum því 😊 Á matseðlinum er réttur sem klikkar sjaldan: Rjómalagað kjúklingapasta með beikoni. DFS.is - Matgæðingurinn Matur
Þegar kerfið flækir reksturinnBesti tíminn til að endurskoða hugbúnað fyrirtækis er áður en hann verður raunveruleg hindrun í rekstrinum. Fyrirtæki þurfa vitaskuld ekki að vera stöðugt að skipta um kerfi eða elta hverja tækninýjung. Viðskiptablaðið - Pistlar Aðsendar greinar
Endalok konungdæmis í AlbaníuÍ þættinum er fjallað um valdatíð Zogs konungs í Albaníu og endalok konungsríkis hans. Í ljósi sögunnar Saga og menning
Landsbankinn hagnaðist um 33 milljarða en stjórnendur áhyggjufullirLilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir afkomuna góða þrátt fyrir erfiðar aðstæður í efnahagslífinu. „Afkoma Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins er góð og endurspeglar traustan og stöðugan rekstur í krefjandi efnahagsumhverfi,“ segir hún í afkomutilkynningu bankans. Heimildin - Viðskipti Viðskipti
Efnahagur Frakklands stefnir á veggFranska hagkerfið dróst saman á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt tölum sem birtust í dag. Fjármálaráðherrann varaði við því að efnahagurinn gæti „rekist á vegg“ ef stjórnvöldum tækist ekki fljótlega að fá samþykkt fjárlög sem drægju úr hallanum. Heimildin - Viðskipti Viðskipti
Fjörbrot JónsLítið lát er á fjörbrotum Jóns Gnarr innan Viðreisnar. Framan af var Jón með rólegasta móti en síðan hefur óánægja hans farið vaxandi. Eftir að hafa rætt við hefðbundna fjölmiðla mætti hann í viðtal við Arnþrúði Karlsdóttur á Útvarpi sögu. Mannlíf - Slúður Slúður
„Óttastjórnun“ á „fyrirmyndarvinnustaðnum“Viðtal við hann um uppsagnirnar sem birtist á mbl.is vakti þó athygli hrafnanna. Þar fullyrti hann að Reykjavíkurborg hefði lengi verið einn af fyrirmyndarvinnustöðum landsins en það væri af sem áður var. Óttastjórnun hefði ríkt hjá borginni undanfarna mánuði. Viðskiptablaðið - Huginn&Muninn Pistlar
Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“„Það er margt sem bendir til þess að við séum enn skammt á veg komin, þótt okkur finnist hraðinn mjög mikill,“ segir dr. Huginn Freyr Þorsteinsson, ráðgjafi og einn eigenda Aton, en Huginn var einn höfunda skýrslu um fjórðu iðnbyltinguna sem unnin var fyrir íslensk stjórnvöld árið 2019. Vísir - Tölvur og Hugbúnaður Tölvur og hugbúnaður
Hagnaður Krónunnar jókst um 500 milljónir en afkoma N1 versnaðiHagnaður Krónunnar á fyrstu níu mánuðum ársins nam 2,55 milljörðum króna, samanborið við 2,05 milljarða á sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn jókst því um tæplega fjórðung, eða 24,6 prósent, samkvæmt árshlutareikningi Festis, móðurfélags Krónunnar, N1, ELKO og Lyfju, sem birtur var í vikunni. Heimildin - Viðskipti Viðskipti
#278 HLAÐFRÉTTIRIceguys: The Movie leikstjórar í stemningu vikunnar Hlaðfréttir Grín og spjall
Íslandsbanki hagnaðist um 7,3 milljarða á þremur mánuðumÍslandsbanki hagnaðist um 7,3 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 6,9 milljarða á sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn jókst því um 5,3 prósent milli ára, samkvæmt uppgjöri bankans sem birt var í dag. Heimildin - Viðskipti Viðskipti
Orðið á götunni: Ari og Mogginn á fullu í upplýsingaóreiðuAri Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, fer mikinn á forsíðu Morgunblaðsins í dag og fárast yfir því að stöðugildum hafi fjölgað um 26% hjá Reykjavíkurborg á tíu árum á sama tíma og íbúum borgarinnar hafi fjölgað um 14% og séu 139 þúsund. Eyjan - Orðið á Götunni Pistlar
Yfir 30 handteknir í fisksvindlsmáli í NoregiFinn Erik Rødsand, lögreglufulltrúi í Nordland, sagði við NRK að lögregla hefði í vikunni farið á 50 staði í átta lögregluumdæmum, allt frá Finnmörku suður til Agder og Oslóar. Rannsóknarlögreglan Kripos, Fiskistofa Noregs, strandgæslan og löggildingarstofan komu einnig að aðgerðunum. Fiskifréttir - Erlent Sjávarútvegur
Hafnarfjarðarbær leggur niður 23 störfBæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag tillögu bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu bæjarins. Alls verða 23 störf lögð niður sem samsvarar 21,6 stöðugildum en þremur starfsmönnum boðin önnur störf hjá bænum. Því er nettófækkun 18,6 stöðugildi. Fjarðarfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-ArabíuPersónuleg reynsla höfundar skipar jafnframt stóran sess í bókinni. Meðal þess sem hann rifjar upp er að hafa verið viðstaddur aftöku í Sádi-Arabíu í kringum fyrra Persaflóastríðið, upplifun hans af hryðjuverkaárásunum 11. september og tónlistarævintýri í Minneapolis. Mannlíf - Menning Menning
Tuition Fees Announced For Non-EEA/ EU Students At The University Of IcelandThe University of Iceland has posted their fee schedule for non-EEA students starting in the 2027-2028 academic year. The tuition fees start at 1.45 million ISK per year, with some graduate courses ranging to 3.8 million ISK in tuition. The Reykjavík Grapevine-News News In English
Orð dagsins er: HeilaþvotturGóðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í dag erum við enn á ný í Bandaríkjunum, og í þetta skiptið erum við í McKeesport í Pennsylvaníu. Unglingsstelpu líður ekki frábærlega á heimili sínu svo hún bregður á það ráð að flýja það ítrekað, alveg þar til einhve... meira Morðcastið Sakamál
Hvaða bremsu fáum við næst?Samtök fyrirtækja, þ.e. Samtök atvinnulífsins, Samtök verslunar og þjónustu og Félag atvinnurekenda, sameinast í gagnrýni sinni á að frumvarpið sé látið ná til atvinnuhúsnæðis. Viðskiptablaðið - Pistlar Aðsendar greinar
Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskattsArðsemi eigin fjár var 16,3 prósent á fjórðungnum, samanborið við 16 prósent á sama tíma í fyrra. Hagnaður bankans á fyrstu níu mánuðum ársins nam alls 24,1 milljarði króna, sem er lítillega minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra þegar hann nam 24,4 milljörðum. Heimildin - Viðskipti Viðskipti
Horft til AraFullyrt er að þreytu sé tekið að gæta á meðal samstarfsaðila Hildar Björnsdóttur borgarstjóra. Vísað er til þess að borgarfulltrúar Viðreisnar og bakland þeirra, með Björgu Magnúsdóttur í öndvegi, hafi sífellt meiri efasemdir um samstarfið. Mannlíf - Slúður Slúður
Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“„Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu. Ég ætla bara að segja það alveg eins og er,“ segir Ása Rún Björnsdóttir rekstrarstjóri Gangverks um breytingarnar sem orðið hafa á notkun gervigreindarinnar síðastliðið ár eða svo. Vísir - Tölvur og Hugbúnaður Tölvur og hugbúnaður
Konur stýra nú sex af 27 félögum í KauphöllinniNýjasta breytingin varð þegar stjórn fjármálasamstæðunnar Skaga tilkynnti að Haraldur I. Þórðarson hefði látið af störfum sem forstjóri félagsins. Guðný Helga Herbertsdóttir, sem hefur gegnt starfi forstjóra VÍS trygginga, tekur við sem æðsti stjórnandi samstæðunnar samhliða umfangsmiklum… Heimildin - Viðskipti Viðskipti