Sýnir: Íþróttir og undirflokka
10.677 fréttir fundust
Síða 72 af 214
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Þjálfari Mikaels fær traust þrátt fyrir slæma byrjunGenoa er í næst neðsta sæti ítölsku deildarinnar með aðeins eitt stig eftir fimm umferðir. Stigið kom gegn nýliðum Frosinone. Daniele De Rossi, stjóri Genoa, verður áfram stjóri liðsins eftir landsleikjahléið samkvæmt heimildum ítalska fréttamannsins Gianluca Di Marzio. Fótbolti.net Fotbolti.net
Sveindís innsiglaði sigurinn gegn níu leikmönnum UtahSveindís Jane Jónsdóttir var í byrjunarliði Angel City sem vann 3-0 sigur á Utah Royals í bandarísku kvennadeildinni í nótt. Tveir leikmenn Utah fengu rautt spjald í fyrri hálfleik og Angel City var með 1-0 forystu. Liðið skoraði annað mark leiksins strax í upphafi seinni hálfleiks. Fótbolti.net Fotbolti.net
Frakkland: Ferran Torres sjóðandi heitur - Tap hjá HákoniÞrír leikir fóru fram í fimmtu umferð frönsku deildarinnar í dag. PSG vann annan leikinn í röð eftir að hafa náð aðeins í tvö stig úr fyrstu þremur leikjunum. Ferran Torres kom PSG yfir gegn Marseille en hann hefur sjö mörk í sex leikjum síðan hann kom til liðsins frá Barcelona í sumar. Fótbolti.net Fotbolti.net
Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velliÍslenska landsliðið í fótbolta verður án Söndru Maríu Jessen þegar það mætir Króatíu í fyrri umferð umspilsins um sæti á HM í Brasilíu í næsta mánuði, eftir að hún meiddist alvarlega. Vísir Íþróttir Íþróttir
Ítalía: Milan og Juventus aftur á sigurbrautMilan komst aftur á sigurbraut með sigri á Lecce í kvöld. Liðið hafði gert tvö jafntefli í röð í deildinni og tapaði gegn Benfica í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar í vikunni. Christian Pulisic kom Milan yfir eftir glæsilega sendingu frá Strahinja Pavlovic yfir vörn Lecce. Fótbolti.net Fotbolti.net
Sterkasta lið 24. umferðar - Til hamingju Víkingur!Það var rosalegur laugardagur í íslenska boltanum. Víkingur innsiglaði Íslandsmeistaratitil sinn með því að vinna 2-1 útisigur á KR eftir að hafa lent undir í leiknum. Stígur Diljan Þórðarson skoraði sigurmarkið en Gylfi Þór Sigurðsson var maður leiksins og er í níunda sinn í liði umferðarinnar. Fótbolti.net Fotbolti.net
Sandra María á leið í aðgerð - Ekki með í mikilvægum landsleikjumSandra María Jessen var í byrjunarliði Köln í 5-2 tapi gegn Glódísi Perlu Viggósdóttir og stöllum í Bayern í gær. Sandra þurfti hins vegar að fara af velli snemma í seinni hálfleik vegna meiðsla. Hún meiddist á hné og sagði í viðtali við RÚV að hún færi í aðgerð á morgun. Fótbolti.net Fotbolti.net
Spánn: Orri Steinn sá rautt í mögnuðum sigriOrri Steinn Óskarsson kom inn á sem varamaður og fékk rautt spjald hálftíma seinna þegar Real Sociedad vann Valencia í hörku leik. Valencia jafnaði metin í 2-2 með sjálfsmarki þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma. Ander Barrenetxea tryggði Sociedad sigurinn í uppbótatíma. Fótbolti.net Fotbolti.net
Neville: Carrick verður að hætta að verja leikmenninaGary Neville, sérfræðingur á Sky Sports og fyrrum leikmaður Man Utd, er mjög ósáttur við Michael Carrick, stjóra liðsins. Man Utd náði í jafntefli gegn Fulham í dag með marki frá Matheus Cunha undir lokin. Fótbolti.net Fotbolti.net
Sjáðu mörk Íslendinganna og rauða spjald Kristals í frábærum sigri BrannÍslendingaliðið Brann vann frækinn sigur gegn Bodö/Glimt 2-1 í norska boltanum í dag. Eggert Aron Guðmundsson og Kristall Máni Ingason skoruðu mörk Brann í leiknum. Bodö/Glimt komst yfir í leiknum en Eggert jafnaði eftir um stundarfjórðungs leik. Kristall skoraði svo sigurmarkið á 57. mínútu. Fótbolti.net Fotbolti.net
Óli Skúla: Skrítið að fara í þriggja vikna pásuBreiðablik tapaði gegn ÍA í dag. Breiðablik og ÍA eru með jafn mörg stig í 4. og 5. sæti og ljóst að liðin munu enda í þeim sætum. Fótbolti.net ræddi við Ólaf Inga Skúlason, þjálfara Breiðabliks, eftir leikinn. Fótbolti.net Fotbolti.net
Kjartan Kári: Þessi ótrúlega þriggja vikna pása„Þetta er ótrúlega sætt," sagði Kjartan Kári Halldórsson, leikmaður FH, eftir 5-2 sigur gegn Stjörnunni í Bestu deildinni í dag. Kjartan Kári átti stórleik, var allt í öllu í sóknarleik FH og skoraði tvö mörk. Fótbolti.net Fotbolti.net
Brynjar: Okkur finnst við skulda fólkinu í Garðabænum það„Það er vont að fá á sig fimm mörk. Þetta var skrítinn fyrri hálfleikur og mér fannst við vera 'on it' sérstaklega með boltann. En í hvert skipti sem þeir komust nálægt markinu okkar, þá skoruðu þeir," sagði Brynjar Kristmundsson, einn af þjálfurum Stjörnunnar, eftir 5-2 tap gegn FH í Bestu… Fótbolti.net Fotbolti.net
Jói Kalli: Myndu vera lykilmenn fyrir okkur inn í framtíðina„Þetta er frábær sigur, góð frammistaða að langflestu leyti og sérstaklega fyrri hálfleikurinn," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson eftir 5-2 sigur gegn Stjörnunni í Bestu deild karla í kvöld. Fótbolti.net Fotbolti.net
Haukar unnu Valskonur og eru enn með fullt húsHaukar tóku á móti Valskonum í Olísdeild kvenna í handbolta í kvöld. Haukakonur voru fyrir leikinn með fullt hús stiga og héldu uppteknum hætti í kvöld. Hafnfirðingar unnu 28-24. Liðin vöru jöfn í fyrri hálfleik og skiptust á forystunni. Jafnt var á 29. Ruv Íþróttir Íþróttir
Arbeloa: Dómararnir leyfðu Man Utd ekki að tapa„VIð vorum svo nálægt þessu. Aftur vorum við svolítið óheppnir. Viðvissum að þetta yrði erfitt gegn þessu stórliði," sagði Alvaro Arbeloa, stjóri Fulham, eftir jafntefli gegn Man Utd. Fótbolti.net Fotbolti.net
Rúnar: Ætlum ekkert að slaka áFram mistókst að koma sér í annað sæti Bestu deildarinnar og uppfyrir KR er liðið mætti Keflavík í hörkuleik suður með sjó í dag. Lokatölur 2-2 og var Rúnar Kristinsson þjálfari Fram mættur til viðtals við Fótbolta.net í leikslok. Um leikinn sagði Rúnar. Fótbolti.net Fotbolti.net
Linta: Mun þjást í kvöld og kannski á morgunÍBV gerði jafntefli gegn Val í kvöld en Valsmenn jöfnuðu í blálokin. Fótbolti.net ræddi við Aleksandar Linta, þjálfara ÍBV, eftir leikinn. Fótbolti.net Fotbolti.net
Íslendingarnir sáu um frækinn sigur en Kristall fékk rauttEggert Aron Guðmundsson og Kristall Máni Ingason skoruðu mörk Brann í kvöld þegar liðið vann frábæran 2-1 sigur gegn Meistaradeildarliði Bodö/Glimt í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Kristall fékk hins vegar líka rautt spjald í leiknum. Vísir Íþróttir Íþróttir
„Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“Viktor Jónsson skoraði tvö marka ÍA í öruggum 4-1 sigri á Breiðabliki í Bestu deild karla í fótbolta á Akranesi síðdegis. Hann fer sáttur í frí. Vísir Íþróttir Íþróttir
Haraldur Freyr um mótafyrirkomulagið: Ekki mikill stuðningsmaðurHaraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur stýrði lærissveinum sínunm til 2-2 jafnteflis gegn Fram á HS Orkuvellinum í Keflavík er liðin mættust í efri hluta Bestu deildarinnar í dag í hörkuleik. Haraldur var til viðtals við Fótbolta.net að leik loknum. Fótbolti.net Fotbolti.net
Sigurjón Rúnarsson: Alltof langt fríSigurjón Rúnarsson stóð vaktina sem fyrr í vörn Fram er liðið fór í heimsókn suður með sjó og heimsótti Keflavík á HS Orkuvöllinn. Lokatölur 2-2 í hörkuleik en Sigurjón var auðsjáanlega nokkuð svekktur með úrslitin þó að sanngjörn verði þau líklegast að teljast. Fótbolti.net Fotbolti.net
„Svo kemur bara mark eftir mark eftir mark“„Skrýtinn leikur, sérstaklega fyrri hálfleikurinn,“ sagði Brynjar Kristmundsson, einn af þjálfurum Stjörnunnar, eftir 5-2 tap liðsins gegn FH í Bestu-deild karla í dag. Vísir Íþróttir Íþróttir
Elías Rafn ekki með í komandi landsleikjumElías Rafn Ólafsson, markvörður í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta, missir af komandi leikjum vegna meiðsla. Ísland spilar fjóra leiki á næstunni í C-deild Þjóðadeildarinnar. Arnar Gunnlaugsson hefur kallað Anton Ara Einarsson, markvörð Breiðabliks, í hópinn. Ruv Íþróttir Íþróttir
„Ætlum að halda áfram að vera hugrakkir“„Við vorum gjörsamlega frábærir hérna í fyrri hálfleiknum,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, eftir 5-2 sigur liðsins gegn Stjörnunni í neðri hluta Bestu-deildarinnar í dag. Vísir Íþróttir Íþróttir
Fram keppist um annað sætið en ÍBV situr sem fastast á botninumFram og KR berjast um annað sætið og Fram sótti Keflavík heim í dag. Fram tapaði fyrir Breiðabliki á þriðjudag og ekki skánaði það hjá Fram-liðinu þegar Stefan Alexander Ljubicic kom Keflvíkingum 1-0 yfir í dag með marki snemma í seinni hálfleik. Ruv Íþróttir Íþróttir
Áfall fyrir landsliðið - Elías Rafn ekki meðElías Rafn Ólafsson, markvörður Midtjylland, getur ekki tekið þátt í næsta landsliðsverkefni en Anton Ari Einarsson, markvörður Breiðabliks, hefur verið kallaður inn í hópinn í hans stað. Fótbolti.net Fotbolti.net
Orri fékk rautt fyrir kjaftbrúk í blálokinLandsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson náði sér í gult spjald og svo rautt seint í uppbótartíma, þegar Real Sociedad vann sætan 3-2 útisigur gegn Valencia á Spáni í kvöld. Vísir Íþróttir Íþróttir
Hraunar yfir Man Utd - „Algjörlega ömurlegt"Gary Neville, fyrrum leikmaður Man Utd, var alls ekki sáttur með leik sinna manna gegn Fulham í dag. Fulham náði forystunni eftir rúmlega klukkutíma leik þegar Lisandro Martinez skoraði klaufalegt sjálfsmark en Matheus Cunha jafnaði metin í lokin Fótbolti.net Fotbolti.net