Sýnir: Íþróttir og undirflokka
10.661 fréttir fundust
Síða 204 af 214
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Chelsea fær þungan dóm vegna brota Abramovich - Sekt og bannChelsea hefur verið sektað um 10 milljónir punda af enska knattspyrnusambandinu (FA) vegna reglubrota sem áttu sér stað þegar Roman Abramovich var eigandi félagsins. Jafnframt hefur félagið fengið tveggja félagaskiptaglugga félagaskiptabann sem er skilorðsbundið til 30. júní 2027. DV Íþróttir Íþróttir
Gæti farið frá Arsenal og þýski risinn hefur áhugaBorussia Dortmund fylgist grannt með stöðu Ethans Nwaneri hjá Arsenal og gæti reynt að fá unga miðjumanninn til félagsins síðar í sumar, samkvæmt enskum miðlum. Nwaneri, sem er 19 ára gamall, á óvissa framtíð á Emirates eftir að hafa varið seinni hluta síðasta tímabils á láni hjá Marseille. DV Íþróttir Íþróttir
Tilboðið frá Real Madrid fer að koma inn um lúgunaReal Madrid er að undirbúa tilboð í miðjumanninn Rodri hjá Manchester City, samkvæmt upplýsingum Sky Sports. Spænska stórveldið er sagt hafa haft óformlegt samband við City vegna mögulegra félagaskipta landsliðsfyrirliðans, sem á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum. DV Íþróttir Íþróttir
Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandiðCurtis Jones, Dominik Szoboszlai og Kostas Tsimikas tókust á eftir 1-0 sigur Liverpool gegn Wrexham í æfingaleik í gærkvöld. Vísir Íþróttir Íþróttir
Svarar kjaftasögunum og biður fólk að hætta þessu bulliJack Grealish hefur brugðist við orðrómi um að hann hafi verið skilinn eftir heima þegar Manchester City hélt í æfingaferð sína fyrir komandi tímabil. Enski landsliðsmaðurinn sagði í athugasemd á Instagram að fjarvera hans skýrðist einfaldlega af meiðslum en ekki ákvörðun þjálfarateymisins. DV Íþróttir Íþróttir
Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyniCarlos Cordeiro, yfirráðgjafi Gianni Infantino forseta FIFA, hefur sagt starfi sínu lausu í mótmælaskyni við fyrirhugaðar áætlanir um utanaðkomandi fjárfestingar. Vísir Íþróttir Íþróttir
Einn besti varnarmaður í sögu fótboltans er látinnFranco Baresi, einn besti varnarmaður í sögu knattspyrnunnar og goðsögn AC Milan, er látinn, 66 ára að aldri. AC Milan staðfesti andlátið í tilfinningaríkri yfirlýsingu. Baresi lék allan sinn atvinnumannaferil með Milan, frá 1977 til 1997, og varð einn merkasti leikmaður í sögu félagsins. DV Íþróttir Íþróttir
Franco Baresi fallinn fráÍtalski fótboltamaðurinn Franco Baresi er fallinn frá 66 ára að aldri. Hann lék allan sinn feril með AC Milan og félagið staðfesti fráfallið í morgun. Hann spilaði 20 tímabil fyrir Milan og þar af 15 sem fyrirliði liðsins. Sex sinnum varð hann Ítalíumeistari og þrisvar Evrópumeistari. Ruv Íþróttir Íþróttir
Franco Beresi fallinn fráÍtalski fótboltamaðurinn Franco Baresi er fallinn frá 66 ára að aldri. Hann lék allan sinn feril með AC Milan og félagið staðfesti fráfallið í morgun. Hann spilaði 20 tímabil fyrir Milan og þar af 15 sem fyrirliði liðsins. Sex sinnum varð hann Ítalíumeistari og þrisvar Evrópumeistari. Ruv Íþróttir Íþróttir
Áfall í suðrinu - Hinn öflugi framherji verður frá í fjóra mánuðiBournemouth hefur orðið fyrir áfalli en framherjinn Eli Junior Kroupi verður frá keppni næstu fjóra mánuði eftir að hafa fótbrotnað á undirbúningstímabilinu. Hinn tvítugi Frakki gekkst undir aðgerð eftir að hafa meiðst á æfingaferð liðsins í Austurríki. DV Íþróttir Íþróttir
Asíuþjóðirnar taka undir áhyggjur af áætlunum FIFAKnattspyrnusamband Asíu, AFC, tekur undir með samböndum Evrópu og Ameríku, UEFA og CONCACAF, og mótmælir fyrirhuguðum áætlunum um utanaðkomandi fjárfestingar hjá alþjóðaknattspyrnusambandinu FIFA. Vísir Íþróttir Íþróttir
Palmer steinsvaf meðan enska landsliðið spilaði á HMCole Palmer náði ekki að halda sér vakandi þegar England spilaði gegn Mexíkó í sextán liða úrslitum HM en hann segir þann leik gefa sér mikla hvatningu fyrir komandi tímabil með Chelsea. Vísir Íþróttir Íþróttir
Arteta boðar það að leikmenn verði keyptir á næstunniMikel Arteta segir Arsenal ætla að styrkja leikmannahópinn enn frekar í sumar og telur að félagið þurfi öflugri hóp til að halda áfram að þróast eftir Englandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð. DV Íþróttir Íþróttir
Franco Baresi er látinnFranco Baresi, fyrrum fyrirliði AC Milan og ítalska landsliðsins, er látinn 66 ára að aldri. Vísir Íþróttir Íþróttir
City reynir að kaupa tvo og vilja fá þá á næstu dögumManchester City heldur áfram viðræðum við Lille um kaup á miðjumanninum Ayyoub Bouaddi, samkvæmt enskum fjölmiðlum. Talið er að City sé reiðubúið að greiða allt að 80 milljónir punda fyrir hinn 18 ára gamla landsliðsmann Marokkó. DV Íþróttir Íþróttir
FIFA heldur settri stefnuAlþjóðaknattspyrnusambandið FIFA sendi frá sér yfirlýsingu í morgunsárið þar sem því er lofað að mjög svo umdeildum áætlunum um utanaðkomandi fjárfestingar verði fylgt eftir. Ekki sé verið að selja fótboltann frá sambandinu. Fjölmiðlar hafi truflað kynningarferlið. Vísir Íþróttir Íþróttir
FIFA segist ekki vera að selja fótboltann og heldur settri stefnuAlþjóðaknattspyrnusambandið FIFA sendi frá sér yfirlýsingu í morgunsárið þar sem því er lofað að mjög svo umdeildum áætlunum um utanaðkomandi fjárfestingar verði fylgt eftir. Ekki sé verið að selja fótboltann frá sambandinu. Fjölmiðlar hafi truflað kynningarferlið. Vísir Íþróttir Íþróttir
FIFA og UEFA deila um sömu 365 dagana„Það eru ekki nema 365 dagar í dagatalinu okkar. FIFA er að færa sig inn á svið sem Evrópska knattspyrnusambandið hefur hingað til talið að það eigi – og við sjáum ekki fyrir endann á því. “Þetta segir Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi. Ruv Íþróttir Íþróttir
Lítið af möguleikum fyrir Liverpool í vörninniJoe Gomez, varnarmaður Liverpool, mun missa af fyrstu leikjum tímabilsins vegna meiðsla. Liverpool ætlar þó ekki að kaupa varnarmann í staðinn. Vísir Íþróttir Íþróttir
Stendur ekki í vegi ef fyrirliðinn vill faraRoberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, segir að félagið muni virða óskir þeirra leikmanna sem vilja yfirgefa félagið í sumar, þar á meðal Cristian Romero. DV Íþróttir Íþróttir
Dagskráin í dag: Hlín í eldlínunni og risamót í golfiVerslunarmannahelgin er gengin í garð en við bjóðum upp á bæði fótbolta og golf í fyrir þá sem vilja horfa í bílnum á leiðinni úr bænum. Annar hringur Opna breska risamóts kvenna er á dagskrá. Vísir Íþróttir Íþróttir
Concacaf hafnar áætlunum InfantinosKnattspyrnusamband Norður- og Mið-Ameríku, Concacaf, ætlar ekki að samþykkja áform Giannis Infantinos forseta FIFA um að selja um 20% hlut í HM í fótbolta. Fjörutíu og eitt knatttspyrnusamband innan Concacaf samþykkti á fundi í gær að hafna þessum hugmyndum. Ruv Íþróttir Íþróttir
Stones skrifar undir hjá Ítölsku meisturunumJohn Stones hefur gengið til liðs við Inter Milan þar sem hann skrifaði undir tveggja ára samning við ítölsku meistarana. Hann kemur frítt til þeirra þar sem samningur hans hjá Manchester City rann út. Vísir Íþróttir Íþróttir
Leikmenn sem gerast sekir um mismunun fá tíu leikja bannEnska knattspyrnusambandið mun herða reglur sínar gagnvart allri mismunun fyrir komandi tímabil. Allir leikmenn sem gerast sekir um slíkt munu fá að minnsta kosti tíu leikja bann. Vísir Íþróttir Íþróttir
Er ekki bjartsýnn fyrir framtíð NewcastleNewcastle-goðsögnin Alan Shearer er að búast við slæmu tímabili hjá sínu gamla félagi eftir að það var tilkynnt í dag að Eddie Howe myndi ekki stjórna liðinu lengur. Hann telur að liðið geti ekki unnið neitt ef það heldur áfram að selja sína bestu leikmenn. Vísir Íþróttir Íþróttir
Mun það sama gerast við Anderson og gerðist við Philips hjá City?Elliot Anderson er ekki fyrsti enski miðjumaðurinn sem Manchester City kaupir og býst við að keppa um sæti í byrjunarliðinu. Manchester City átti að vera stökkpallur fyrir feril Kalvin Philips en hann hefur varla fengið að spila fyrir félagið. Vísir Íþróttir Íþróttir
„Leiðinlegt að þetta sé búið“Vestri gerði sitt fyrsta jafntefli í Evrópukeppni í sögu félagsins þegar liðið mætti RFS frá Lettlandi í síðari leik liðanna í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta karla á Þróttarvelli í Laugardal í kvöld. Leiknum lauk 1-1 og RFS vann einvígið samanlagt 2-5. Vísir Íþróttir Íþróttir
Smá munur á Qarabag og LengjudeildinniÞórður Gunnar Hafþórsson skoraði fyrsta mark Vestra í Evrópukeppni á heimavelli, eða eiginlegum heimavelli, í sögunni þegar Vestfjarðaliðið gerði 1-1 jafntefli við RFS frá Lettlandi á Þróttarvelli í Laugardal í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Vísir Íþróttir Íþróttir
Vítavarsla Frederiks kom Val áframZrinjski Mostar og Valur gerðu 2-2 jafntefli í annarri umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Valur vann heimaleik sinn 1-0 og er því kominn í þriðju umferð. Nemanja Bilbija skoraði fyrir heimamenn úr vítaspyrnu á 11. mínútu og þá °var orðið jafnt í einvíginu. Ruv Íþróttir Íþróttir
Vítavarsla Frederik kom Val áframZrinjski Mostar og Valur gerðu 2-2 jafntefli í annarri umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Valur vann heimaleik sinn 1-0 og er því komið áfram í þriðju umferðina. Nemanja Bilbija skoraði fyrir heimamenn úr vítaspyrnu á 11. mínútu og þá allt orðið jafnt í einvíginu. Ruv Íþróttir Íþróttir
Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið ÍslandsÍslenska U18 landsliðið vann stórsigur á Ungverjum á EM U18 í handbolta. Ísland var yfir nær allan leikinn en leikurinn endaði með 41-28 sigri Íslands. Vísir Íþróttir Íþróttir
Evrópuævintýri Vestra lokið eftir jafntefliKarlalið Vestra er úr leik í forkeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta eftir jafntefli gegn RFS frá Lettlandi á Þróttarvelli í dag. Lettarnir unnu fyrri leikinn 4-1 og því 5-2 samanlagt. Þórður Gunnar Hafþórsson kom Vestra yfir á 12. mínútu en Mamadou Sylla jafnaði leikinn fjórum mínútum síðar. Ruv Íþróttir Íþróttir
Concacaf mótmælir Fifa en sniðgengur ekkiConcacaf mótmælir tillögum Gianni Infantino um að selja hlut Fifa til einkafjárfesta. Sambandið ætlar þó ekki að ganga jafn langt og Uefa með að sniðganga keppnir á vegum Fifa. Vísir Íþróttir Íþróttir
Átta Íslendingar keppa á Evrópumótinu í frjálsíþróttumÁtta íslenskir frjálsíþróttakeppendur verða með á Evrópumótinu í Birmingham sem hefst 10. ágúst og stendur til 16. ágúst. EM er haldið á tveggja ára fresti og í Róm fyrir tveimur árum voru einnig átta Íslendingar með, þá höfðu ekki jafn margir Íslendingar keppt á EM í 66 ár eða frá árinu 1958. Ruv Íþróttir Íþróttir