Sýnir: Íþróttir og undirflokka
10.677 fréttir fundust
Síða 132 af 214
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Robert Sánchez fer til ComoÍtalska félagið Como er að tryggja sér markvörðinn Robert Sánchez á lánssamningi frá Chelsea. Hann mun berjast við Jean Butez um markmannsstöðuna undir stjórn Cesc Fábregas. Fótbolti.net Fotbolti.net
Zetterer til Leeds (Staðfest)Leeds United er búið að festa kaup á þýska markverðinum Michael Zetterer sem gerir þriggja ára samning við úrvalsdeildarfélagið. Fótbolti.net Fotbolti.net
Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðirBarcelona situr á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa unnið öruggan 5-2 sigur á Rayo Vallecano. Raphinha og Lamine Yamal skoruðu tvö mörk hvor. Vísir Íþróttir Íþróttir
Spánn: Raphinha og Yamal sökktu RayoTveir leikir fóru fram í spænska boltanum í kvöld þar sem Spánarmeistarar Barcelona rúlluðu yfir Rayo Vallecano, sem komst óvænt í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Fótbolti.net Fotbolti.net
Stjarnan nálgast efri hlutannEinn leikur var í 21. umferð Bestu deildar karla í kvöld, Stjarnan vann 0-2 sigur á Breiðabliki í Kópavogi. Bæði lið fengu fín færi í upphafi leiks, Stjarnan þó öllu fleiri og þeir skoruðu líka fyrsta markið. Guðmundur Kristjánsson skallaði hornspyrnu Benedikt Warén í netið á 29. mínútu. Ruv Íþróttir Íþróttir
Stjarnan vann nágrannaslaginnStjarnan vann verðskuldaðan sigur á nágrönnum sínum í Breiðabliki í Bestu deild karla í kvöld. Garðbæingar voru mun sterkari í fyrri hálfleik og leiddu eftir hann, 0-2. Mörkin gerðu Guðmundur Kristjánsson og Birnir Snær Ingason. DV Íþróttir Íþróttir
Róbert Frosti skoraði í þægilegum sigriÞað komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins víða um Evrópu, þar sem Róbert Frosti Þorkelsson skoraði í frábærum sigri GAIS. Fótbolti.net Fotbolti.net
Arsenal þurfti að hafa fyrir hlutunum í BirminghamArsenal vann Aston Villa á útivelli í hörkuleik sem rak endahnútinn á 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Meistararnir þurftu að hafa fyrir sigrinum, en það var mark Bukayo Saka eftir laglega sókn sem skildi liðin að í kvöld. DV Íþróttir Íþróttir
Mark Saka dugði ArsenalArsenal hafði betur gegn Aston Villa í lokaleik annarar umferðar ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta, 0-1. Bukayo Saka skoraði eina mark leiksins á 59. mínútu eftir stoðsendingu Riccardo Calafiori. Ruv Íþróttir Íþróttir
Sunderland kaupir Danso - Spurs þarf TosinEnskir fjölmiðlar greina frá því að Sunderland sé búið að semja við Tottenham um kaupverð fyrir miðvörðinn Kevin Danso. Fótbolti.net Fotbolti.net
Everton bjóða í hetju BandaríkjannaEverton hefur boðið í bandaríska framherjann Folarin Balogun en hann er leikmaður AS Monaco. Hann vakti mikla athygli á heimsmeistaramótinu fyrir skandal sem hann átti engan hlut í. Vísir Íþróttir Íþróttir
Mikey Moore orðinn liðsfélagi Ísaks (Staðfest)Ísak Bergmann Jóhannesson er kominn með nýjan liðsfélaga í FC Köln sem leikur í efstu deild þýska boltans. Sá heitir Mikey Moore og kemur á lánssamningi frá Tottenham. Fótbolti.net Fotbolti.net
Hutchinson kominn til Milan (Staðfest)Ítalska stórveldið AC Milan er búið að staðfesta félagaskipti Omari Hutchinson til félagsins. Hann kemur á lánssamnningi með árangurstengdri kaupskyldu eftir eitt ár með Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni. Fótbolti.net Fotbolti.net
Fabregas að sækja markvörð ChelseaComo hefur náð munnlegu samkomulagi við Chelsea um að fá Robert Sanchez að láni. Fabrizio Romano segir frá. Spænski markvörðurinn hefur ekki þótt nógu traustur milli stanganna hjá Chelsea og sótti félagið Emi Martinez frá Aston Villa á dögunum. Fór hann beint í byrjunarliðið um helgina. DV Íþróttir Íþróttir
Everton borgar 40 milljónir pundaEverton er að ganga frá kaupum á bandaríska framherjanum Folarin Balogun fyrir 40 milljónir punda. Félögin sömdu um kaupverð í dag. Fótbolti.net Fotbolti.net
Gæti farið til United áður en glugginn lokar annað kvöldManchester United íhugar að bæta við sig sóknarmanni áður en félagaskiptaglugganum verður lokað annað kvöld og er Alexander Sorloth hjá Atletico Madrid orðaður við félagið. Talið er að þessi þrítugi Norðmaður sé fáanlegur fyrir um 30 milljónir punda. DV Íþróttir Íþróttir
Liverpool hafnaði 30 milljónum frá NottinghamSky Sports er meðal fjölmiðla sem greina frá því að Liverpool hafi hafnað 30 milljónum punda frá Nottingham Forest fyrir miðjumanninn unga Trey Nyoni. Fótbolti.net Fotbolti.net
Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok?Lið Manchester United þarf að bæta nokkrar stöður á vellinum ef liðið á að halda áfram að verða betra. Félagið hefur haft sömu tvo bakverði í mörg ár og er kominn tími til að fá betri leikmenn þangað inn. Vísir Íþróttir Íþróttir
Jonathan David fer til AtléticoKanadíski framherjinn Jonathan David er á leið til Atlético Madrid á lánssamningi frá Juventus. Fótbolti.net Fotbolti.net
Englendingar reiðir út í UEFAEnska deildakeppnin (EFL) hefur neyðst til að færa þrjá leiki eftir að UEFA setti heimaleiki Liverpool og Everton á sama kvöld. Everton átti að taka á móti Wolves í deildabikarnum 9. september en UEFA setti leik Liverpool og Atletico Madrid í Meistaradeildinni á sama kvöld. DV Íþróttir Íþróttir
Ætla að fæla Man Utd frá með nýjum samningiSky Sports segir frá því að Aston Villa ætli að bjóða bakverðinum sóknarsinnaða Ian Maatsen nýjan samning til að fæla Manchester United frá honum. Fótbolti.net Fotbolti.net
Glódís og Daníela Dögg í sigurliðumÞað komu tvær íslenskar atvinnukonur við sögu í leikjum erlendis í dag og höfðu þær báðar sigur úr býtum. Fótbolti.net Fotbolti.net
Juventus nær samkomulagi um WoltemadeÍtalska stórveldið Juventus er að sækja nokkra leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á lokadögum sumargluggans. Fótbolti.net Fotbolti.net
Tottenham reynir að fá MudrykTottenham hefur sett sig í samband við Chelsea með það fyrir augum að fá Mykhailo Mudryk á láni. David Ornstein á The Athletic segir frá. Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, þekkir Úkraínumanninn vel en þeir unnu saman hjá Shakhtar Donetsk. DV Íþróttir Íþróttir
Horfðu á Lengjudeildarmörkin - Afturelding aftur upp í BestuLivey sýnir leiki Lengjudeildar karla og kvenna í beinni útsendingu og er með markaþætti eftir hverja umferð. Heimasíða Livey Hjörtur Hjartarson og Jón Þór Hauksson fara yfir það helsta í Lengjumörkum karla. Hér er þátturinn um 21. umferð deildarinnar. Fótbolti.net Fotbolti.net
Forseti Rayo neitar að svara FulhamFulham er að reyna að kaupa rúmenska bakvörðinn Andrei Ratiu úr röðum Rayo Vallecano en forseti félagsins neitar að svara. Fótbolti.net Fotbolti.net
Byrjunarlið Breiðabliks og Stjörnunnar: Ólafur Ingi gerir fjórar breytingarÓlafur Ingi Skúlason gerir fjórar breytingar á sínu liði frá síðasta leik gegn fram en Blikar voru 1-4 undir í hálfleik í þeim leik. Ívar Örn Árnason snýr aftur úr leikbanni en hann mun leika í hjarta varnarinnar ásamt Ásgeiri Orra Helgasyni sem kemur einnig inn í liðið. Fótbolti.net Fotbolti.net
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í KópavogStjarnan sigraði Breiðablik með tveimur mörkum gegn engu í 21. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Gríðarlega mikilvæg þrjú stig fyrir Stjörnuna sem vill lyfta sér upp í efri hluta deildarinnar áður en deildinni verður skipt upp eftir næstu umferð. Vísir Íþróttir Íþróttir
Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði metGlódís Perla Viggósdóttir hélt hreinu þegar Bayern München vann FSV Mainz 2-0 í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Bayern München hefur nú unnið báða leiki sína í deildinni. Vísir Íþróttir Íþróttir
Stór áfangi í hugsanlegum skiptum Enzo til CityManchester City hefur nú sett sig formlega í samband við Chelsea vegna mögulegra kaupa á Enzo Fernandez. Fabrizio Romano segir frá rétt í þessu. Þetta er í fyrsta sinn í sumar sem City ræðir beint við Chelsea um Argentínumanninn og eru viðræður félaganna hafnar. DV Íþróttir Íþróttir
Hutchinson til Milan - Vilja Murphy í staðinnAC Milan hefur verið að styrkja leikmannahópinn sinn umtalsvert í sumar og er að krækja í kantmanninn knáa Omari Hutchinson úr röðum Nottingham Forest. Fótbolti.net Fotbolti.net
HM-vaktin: Ísland tapaði með 37 stiga mun fyrir TyrkjumÍslenska karlalandsliðið í körfubolta steinlá fyrir Tyrklandi í undankeppni HM í Laugardalshöll í kvöld, 73-110. Tyrkir voru 19 stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 14-33, 23 stigum yfir í hálfleik, 37-60 og 56-80 fyrir lokaleikhlutann. Ruv Íþróttir Íþróttir
HM-vaktin: Ísland 24 stigum undir fyrir lokaleikhlutannÍslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Tyrklandi í undankeppni HM í Laugardalshöll kl. 19:30. Leikurinn er í beinni útsendingu á RÚV 2 sem hægt er að sjá hér í spilaranum. Tyrkir voru 19 stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 14-33 og 23 stigum í hálfleik, 37-60 og 56-80 fyrir lokaleikhlutann. Ruv Íþróttir Íþróttir
HM-vaktin: Ísland mætir Tyrkjum í Höllinni kl. 19:30Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Tyrklandi í undankeppni HM í Laugardalshöll kl. 19:30. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV 2 og hefst upphitun í Stofunni kl. 19:00. Tyrkir eru með fullt hús stiga á toppi riðilsins eftir sjö leiki en Ísland er í fimmta sæti. Ruv Íþróttir Íþróttir