Sveitarstjórinn vann fyrir Samherja á sínum tíma og sat í stjórn Fiskidagsins miklaKatrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri í Þingeyjarsveit, vann við skreiðarsölu frá Íslandi á árunum 1994-2018. Á þesssu tímabili starfaði hún meðal annars við sölu á skreið fyrir Samherja og síðar hjá eigin fyrirtæki sem heitir Samleið.Ruv Innlendar fréttirInnlendar fréttirVilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknaraÞingmenn vilja að sérstök rannsóknarnefnd kanni hvort réttindi sakborninga hafi verið virt við rannsókn mála eftir bankahrunið. Meðal annars verði farið yfir hleranir, handtökur og varðveislu rannsóknargagna hjá sérstökum saksóknara.Vísir Innlendar fréttirInnlendar fréttirHafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunniKarlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað þáverandi sambýliskonu sinni á heimili þeirra í janúar árið 2022, með því að hafa samræði við hana á meðan hún var meðvitundarlaus. Þá er hann sagður hafa útbúið myndskeið af nauðguninni.Vísir Innlendar fréttirInnlendar fréttirHægt að loka Reykjanesbraut með fjarstýringuVegagerðin hefur tekið í notkun nýjan, fjarstýrðan lokunarbúnað á Reykjanesbraut til vesturs, við mislæg gatnamót skammt frá álverinu í Straumsvík. Með búnaðinum er hægt að loka brautinni með stuttum fyrirvara, sem styttir viðbragstíma og eykur öryggi bæði vegfaranda og viðbragðsaðila.Vegagerðin - FréttirInnlendar fréttirVill láta rannsaka störf sérstaks saksóknara og fleiriNefndin mun einnig fara yfir störf annarra stofnana og embættismanna að því leyti sem þau tengjast rannsóknum sérstaks saksóknara en þar má til dæmis nefna lögregluna, embætti ríkissaksóknara, Fjármálaeftirlitið, Samkeppniseftirlitið og aðra réttarvörslu- og eftirlitsaðila.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirPassamyndin nú óþörf hjá sýslumanniAllt að 40 þúsund umsækjendur um ökuskírteini gætu árlega komist hjá því að mæta til sýslumanns því nú hefur verið heimilað að nota ljósmynd úr gildu vegabréfi í stafrænum umsóknum.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirSmyrill í NorðurmýriÍbúar í Norðurmýri urðu varir við smyril í morgun. Ýr Jóhannsdóttir gekk fram á fuglinn á horni Gunnarsbrautar og Flókagötu á leið sinni til vinnu í morgun. „Ég hef aldrei séð svona fugl í hverfinu,“ segir hún.Ruv Innlendar fréttirInnlendar fréttirAtvinnuleysi dróst samanAtvinnuleysi mældist 5,7 prósent í september en alls voru rúmlega fimmtán þúsund án atvinnu samkvæmt árstíðarleiðréttum niðurstöðum rannsóknar Hagstofunnar.Vísir Innlendar fréttirInnlendar fréttir„Ekki metnir að verðleikum“„Þessi vinna þarf að skila breytingum sem sjúkraliðar og sjúklingar finna fyrir. Við þurfum skýrari hlutverk, raunveruleg tækifæri til starfsþróunar og kerfi sem styðja við störf sjúkraliða. Tillögunum þarf síðan að fylgja eftir með skýrri ábyrgð og tímasettum aðgerðum.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirTöpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinumForysta Viðreisnar fær kaldar kveðjur í nýjum pistli Jóns Gnarr, sem lýsir sér sem hermanni sem hafi verið sendur óstuddur í tapaðan bardaga. Ábendingum hans um bágborið ástand herdeildarinnar hafi lítt verið sinnt og nú telji hann sér betur borgið utan hennar.Vísir Innlendar fréttirInnlendar fréttirEiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í ParísEiríkur Rögnvaldsson, uppgjafaprófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, segir að þrátt fyrir fréttir af miklum óeirðum í París hafi daglegt líf í borginni að mestu gengið sinn vanagang þegar hann dvaldi þar nýverið.Mannlíf - InnlentInnlendar fréttirSkyrið er í sókn og hús stækkaðMikil aukning í framleiðslu og sölu á skyri ræður því að Mjólkursamsalan stækkar vinnslustöð sína á Selfossi. Búið er að steypa veggi og verið er að loka þekju 1.500 fermetra húss sem er sunnan við aðalbyggingu mjólkurbúsins.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirKyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitiðÁrásin átti sér stað á heimili parsins. Samkvæmt framburði konunnar sparkaði maðurinn upp hurð að svefnherbergi þar sem hún hafði læst sig inni. Hann réðst síðan á hana í rúminu, sló hana ítrekað í andlitið, reif í hár hennar, hélt fyrir munn hennar og nef og tók hana kyrkingartaki.Mannlíf - InnlentInnlendar fréttirKyrkti sambýliskonuna þar til hún óttaðist um líf sittÁrásin átti sér stað á heimili parsins. Samkvæmt framburði konunnar sparkaði maðurinn upp hurð að svefnherbergi þar sem hún hafði læst sig inni. Hann réðst síðan á hana í rúminu, sló hana ítrekað í andlitið, reif í hár hennar, hélt fyrir munn hennar og nef og tók hana kyrkingartaki.Mannlíf - InnlentInnlendar fréttirAlls 137% munur á tilboðunumMikill munur var á þeim tveimur tilboðum sem bárust í byggingarrétt á lóðinni Hraunberg 1 í Breiðholti. Landslagnir ehf. áttu hæsta tilboðið í byggingarréttinn sem hljóðar upp á allt að 16 íbúðir. Það var upp á tæplega 123 milljónir króna.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirDæla eldsneyti til styrktar Bleiku slaufunniStarfsfólk Orkunnar tekur þátt í Bleika deginum en það mun í dag taka yfir eldsneytisdælurnar á Orkustöðinni við Dalveg í Kópavogi milli klukkan 11 og 14.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirSífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum samanSamtökin Norðurhjálp hafa aldrei náð að gefa jafn háar upphæðir til þeirra sem þurfa á aðstoð að halda og í ár. Ein af stofnendum samtakanna segir það sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman.Vísir Innlendar fréttirInnlendar fréttirMokað allan liðlangan daginnFramkvæmdir við dýpkun í Hafnarfjarðarhöfn hafa staðið yfir frá í fyrravetur. Næsta sumar mun ný smábátahöfn líta dagsins ljós og breytir ásýnd hafnarsvæðisins. Nákvæmar mælingar liggja að baki slíkum verkefnum og áætlað er að um 50 þúsund rúmmetrum af jarðefni hafi verið mokað upp af hafsbotni.Ruv Innlendar fréttirInnlendar fréttirÁsgeir grípur til varna eftir Kveiksumfjöllun um ÖlgerðinaHann segir staði sína kaupa vörur af alls 14 drykkjarvörubirgjum og að búnaður frá Ölgerðinni sé einnig notaður undir vörur frá keppinautum fyrirtækisins. Á Röntgen séu meðal annars Peroni og náttúruvín á dælu og ein dæla ávallt frátekin fyrir smábrugghús.Mannlíf - InnlentInnlendar fréttirFramlengja gæsluvarðhald yfir fjórum sakborningum í stórum fíkniefnamálumLandsréttur staðfesti á föstudag og mánudag þrjá úrskurði Héraðsdóms Reykjaness og einn úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir mönnum sem grunaðir eru um að eiga aðild að stórfelldu fíkniefnasmygli. Mennirnir tengjast þremur málum sem eru til rannsóknar eða fyrir dómstólum.Ruv Innlendar fréttirInnlendar fréttirJasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdiðJasmina segir að á bak við orðið múslimar séu einstaklingar sem hafi ólíkar skoðanir, líf og reynslu. Hún hafi sjálf byggt upp líf sitt á Íslandi, menntað sig, alið upp börn og tekið virkan þátt í lýðræðinu.Mannlíf - InnlentInnlendar fréttirMætir næst skipulagðari og betur vopnum búinnÍ pistlinum rekur Jón vegferð sína innan þingflokks Viðreisnar, sem lauk í síðustu viku með því að hann sagði sig úr þingflokknum, með samlíkingu úr hernaði.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirHélt hún myndi deyja í útskriftarferð til PortúgalUnnur Lilja Andrésdóttir hélt að hún myndi deyja í útskriftarferð sinni með FG til Portúgal fyrir tveimur árum og vill vekja athygli á því að ýmislegt geti komið upp í slíkum ferðum. Fimm menn réðust að henni á skemmtistað eitt kvöldið.Vísir Innlendar fréttirInnlendar fréttirNær einróma óánægja með útfærslu kvarðansUmsagnaraðilar um viðbótarákvæði við breytingar á aðalnámskrá varðandi einkunnakvarða í tíunda bekk grunnskóla virðast vera á nær einu máli um að breytingarnar séu ekki til þess fallnar að stuðla að markmiðum ráðherra um samræmi, aukið jafnræði milli nemenda og skýrleika einkunnanna þótt þau séu…MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirSkoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og ÍslandsTil skoðunar er að hefja ferjusiglingar milli Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarstjóri Múlaþings segir þó langt í að hugmyndin verði að veruleika gangi allt eftir.Vísir Innlendar fréttirInnlendar fréttirTelur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómiEigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð segir allt ógirt land á Íslandi virðast hafa verið tekið einhvers konar eignarnámi með dómi í máli hans gegn Fjarðabyggð. Dómstóll taldi sveitarfélagið ekki hafa skyldu til að smala ágangsfé af jörðinni því féð hefði komið úr sameiginlegum bithaga.Vísir Innlendar fréttirInnlendar fréttirHvalfjarðargöngum var lokað stutta stund vegna bilaðs bílsHvalfjarðargöngum var lokað á níunda tímanum vegna bilaðs bíls í göngunum. Búið er að opna þau aftur. Tilkynnt var um lokunina á vef Vegagerðarinnar klukkan 08:25. Hægt er að fylgjast með uppfærslum á vef Vegagerðarinnar. Fréttin hefur verið uppfærð. Frá Hvalfjarðargöngum. Mynd úr safni.Ruv Innlendar fréttirInnlendar fréttirHvalfjarðargöng lokuðust stutta stund vegna bilaðs bílsHvalfjarðargöngum var lokað á níunda tímanum vegna bilaðs bíls í göngunum. Búið er að opna þau aftur Tilkynnt var um lokunina á vef Vegagerðarinnar klukkan 08:25. Hægt er að fylgjast með uppfærslum á vef Vegagerðarinnar. Fréttin hefur verið uppfærð. Frá Hvalfjarðargöngum. Mynd úr safni.Ruv Innlendar fréttirInnlendar fréttirHvalfjarðargöng lokuð vegna bilaðs bílsHvalfjarðargöng eru lokuð vegna bilaðs bíls í göngunum. Tilkynnt var um lokunina á vef Vegagerðarinnar klukkan 08:25. Ekki er vitað hvenær göngin verða opnuð að nýju. Hægt er að fylgjast með uppfærslum á vef Vegagerðarinnar. Frá Hvalfjarðargöngum. Mynd úr safni. RÚV / Eva Björk BenediktsdóttirRuv Innlendar fréttirInnlendar fréttirHvalfjarðargöng opin á nýjan leikLokað var fyrir umferð um Hvalfjarðargöng vegna bifreiðar sem bilaði í göngunum um klukkan átta í morgun. Klukkan 8.48 voru göngin opnuð að nýju.Vísir Innlendar fréttirInnlendar fréttirViðræður hafnar um ferju milli Seyðisfjarðar og AberdeenTil skoðunar er að koma á siglingum á milli borgarinnar Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarfélagið á í viðræðum við hafnaryfirvöld þar í landi. „Þetta er nú hugmynd sem er lengi búin að vera fljótandi hér í þessu sveitarfélagi eða alveg síðan ferjan hætti að sigla á sínum tíma.Ruv Innlendar fréttirInnlendar fréttirÁtök um vindorkuver í NorðurþingiÁgreiningur er innan sveitarstjórnar Norðurþings um virkjanahugmyndir Hnotasteins á Hólaheiði, austan Kópaskers, þar sem áform eru uppi um að reisa 34-40 vindmyllur sem eru 150-200 metra háar og áætlað er að geti framleitt 190-200 megavött af raforku.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirVíða hálka á höfuborgarsvæðinuÞað frysti á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eflaust þurfa margir að taka fram rúðusköfuna áður en þeir halda út í morgunumferðina.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirVíða hálka á vegumVegfarendur ættu að hafa varann á sér því víða er hálka eða snjóþekja á vegum úti. Einnig er hálka á vissum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Fram kemur á umferðarvef Vegagerðarinnar að hálka eða hálkublettir séu víða frá Vesturlandi um Norðurland, Austurland og Suðausturland.Ruv Innlendar fréttirInnlendar fréttirSæstrengurinn klár eftir þrjú árÁætlaður kostnaður við nýjasta sæstreng Korda er um 10 milljarðar króna og búið er að velja honum lendingarstað bæði á Íslandi og í Skotlandi. Sjávarbotnsrannsóknir hefjast í sumar og er áætlað að taka megi strenginn í notkun kringum áramótin 2029-2030.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirTveir brutu reglurnar og enduðu á bráðamóttökuLögregla stöðvaði erlendan ríkisborgara við akstur en maðurinn var ekki með nein skilríki og gat ekki gert grein fyrir hver hann væri. Hann er jafnframt grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna og var vistaður í fangaklefa á meðan málið er rannsakað.Mannlíf - InnlentInnlendar fréttirSvalt og sums staðar úrkomaHiti verður sums staðar rétt yfir frostmarki í dag og fer mest í átta stig á Austfjörðum. Útlit er fyrir slyddu til fjalla og getur snjóað í 200 metra hæð og ofar. Úrkoman gæti náð inn á Norðurland en íbúar á sunnan- og vestanverðu landinu ættu að sleppa við hana að mestu.Ruv Innlendar fréttirInnlendar fréttirFær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnálKærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu manns sem leigði bílaleigubíl í ferðalagi á Íslandi um formlega afsökunarbeiðni og endurgreiðslu á leiguverði og útlögðum læknakostnaði eftir að hann stakk sig á saumnál í bílnum sem hann var með á leigu.Vísir Innlendar fréttirInnlendar fréttirAf hverju fá nemendur sem uppfylla hæfniviðmið ekki hæstu einkunn?Nemendum í 10. bekk grunnskóla verður gefin lokaeinkunn í tölustöfum í vor samkvæmt nýju einkunnakerfi, verði áætlanir menntamálaráðherra að veruleika. Það verður í fyrsta sinn í rúman áratug sem einkunnir í grunnskóla verða gefnar í tölustöfum, eða síðan bókstafseinkunnir voru teknar inn í…Ruv Innlendar fréttirInnlendar fréttirTvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttökuTveir voru fluttir á bráðamóttöku í gær eða í nótt eftir að hafa dottið af rafmagnshlaupahjóli. Einstaklingarnir voru saman á einu hjóli og óskuðu eftir aðstoð lögreglu og sjúkrabíls.Vísir Innlendar fréttirInnlendar fréttirTveir fluttir á bráðadeildTveir slösuðust og voru fluttir með sjúkrabíl á bráðamóttöku eftir að hafa dottið á rafhlaupahjóli en þeir voru tveir saman á hjólinu.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirVíða bjart sunnan- og vestanlandsÍ dag verður austlæg eða breytileg átt, víða 3-10 m/s en 8-15 m/s á Vestfjörðum seinnipartinn. Þurrt verður að kalla á Suður- og Vesturlandi en rigning eða slydda með köflum annars staðar á láglendi en snjókoma til fjalla. Hitinn verður á bilinu 1 til 8 stig.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirFjármálaráðherra getur ekki skýrt útgjaldaliðinaDaði Már Kristófersson fjármálaráðherra vísar til utanríkisráðuneytisins, spurður að því hvað felist í ýmsum útgjaldaliðum sem íslensk stjórnvöld telja til öryggis- og varnarmála.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirOrðskrúð í menntaáætlun stjórnvaldaÍslensk stjórnvöld hafa kynnt drög sín að þriðju aðgerðaáætlun ríkisins í menntamálum til næstu fjögurra ára þar sem meðal annars er stefnt að því að hækka hlutfall þeirra nemenda sem búa yfir grunnfærni í lesskilningi við lok grunnskólagöngu úr 56% upp í 65%.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirAðsend grein: Skuldbindingar Íslands samkvæmt bókun 35Í lagafrumvarpinu er að mati greinarhöfundar teflt á tæpasta vað að því er varðar heimilt framsal löggjafarvalds.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttir„Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði? “Jasmina Vajzovic, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, gagnrýnir ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, í garð múslima.Vísir Innlendar fréttirInnlendar fréttirHrókeringar hjá ViðreisnSandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi, hefur tekið sæti Ingvars Þóroddssonar, oddvita flokksins í Norðausturkjördæmi, í fjárlaganefnd. Ingvar tekur sæti Söndru í velferðarnefnd í staðinn. Þetta var tilkynnt í þinginu í gær.Ruv Innlendar fréttirInnlendar fréttirBeinbrot og heyrnartap ekki harkalegt kynlífLögfræðingur sem hefur sérhæft sig í kynferðisafbrotamálum segir niðurstöðu meirihluta Landsréttar um að sýkna mann sem áður hafði hlotið fimm ára dóm fyrir nauðgun koma verulega á óvart.MBL Innlendar fréttirInnlendar fréttirSamhjálp enn á hrakhólum: „Við erum í rauninni bara enn með húsnæðismálin í uppnámi“Ári eftir að kaffistofu Samhjálpar við Borgartún var lokað er rekstur hennar enn í óvissu og starfsfólki hefur verið sagt upp störfum. Samtökin náðu aldrei að opna á Grensásvegi eins og til stóð vegna mótmæla íbúa og samanlagt tap þeirra af málinu nemur um 70 milljónum króna.Ruv Innlendar fréttirInnlendar fréttirSegir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufullaFormaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar segist hafa verulegar áhyggjur af áformum dómsmálaráðherra um fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú. Hann segir farið gegn vilja landsbyggðarinnar í málinu og er hann efins um að staðið verði við loforð um að lögreglustöðinni á Ísafirði verði ekki lokað.Vísir Innlendar fréttirInnlendar fréttir
Engar fréttir fundust fyrir þessa leit.
Þitt val um persónuvernd
Fréttir, flokkar og þema virka án þessara viðbóta. Þú getur breytt valinu hér hvenær sem er.
Sjálfstæður teljari vinnur úr síðubeiðnum á þjóninum án teljarakaka eða mælingabeiðna úr vafranum. Sjá gagnalýsingu í persónuverndarstefnunni.
Leyfa hleðslu styrktarglugga frá Buy Me a Coffee. Þjónustan og undirþjónustur hennar fá þá netupplýsingar og geta notað kökur. Þetta gerist þegar glugginn hleðst, þótt þú sendir ekki styrk.
Kaffivalið, ákvörðunarmerkið og lokatíminn eru aðeins í staðbundinni vefgeymslu og gilda í allt að 180 daga. Kaffival þarf ekki köku á Fréttagáttar-léni. Nýtt ákvörðunarmerki við hvert val kemur í veg fyrir að eldra svar yfirskrifi nýrri höfnun. Flokkasía og þema virka óháð þessu vali. Gildistími köku segir ekki hve lengi þjónsgögn eru geymd.
Kaffiglugginn getur meðal annars tengst CookieYes, Google Tag Manager og Stripe. Sjá persónuverndarstefnu Buy Me a Coffee. Fjarlæging gluggans eyðir ekki gögnum hjá þeirri þjónustu.