Sýnir: Innlendar fréttir
10.697 fréttir fundust
Síða 73 af 214
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnarSigríður Andersen, þingkona Miðflokksins, segir ríkisstjórnina verða dæmda af verkum sínum. Hún hafi verið með „Evrópusambandsblæti“ en þjóðin hafi talað. Hún ætti að einbeita sér að efnahagsmálunum næstu kjörtímabilin. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Skoða að gera 100 metra fljótandi öldubrjótKópavogsbær vill koma fyrir 100 metra löngum fljótandi öldubrjóti í Kópavogshöfn til að draga úr sjógangi sem myndast þar í hvössum suðvestanáttum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
VR hótar uppsögn samningaForsendur kjarasamninganna brustu í ágúst þegar verðbólga mældist yfir þeim viðmiðum sem sett voru. Verkalýðsfélögin, þar á meðal VR, LÍV og fagfélögin, hafa nú frest til 8. október til að ákveða hvort samningunum verði sagt upp. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Fyrsti embættismannafundur Eystrasaltsráðsins í formennskutíð ÍslandsÍsland mun í formennskutíð sinni í Eystrasaltsráðinu hafa áfallaþol samfélaga (resilience) í öndvegi og leitast við að halda áfram og byggja á hagnýtu samstarfi ríkjanna í samræmi við langtímaforgangsmál Eystrasaltsráðsins um öryggi, sjálfbærni og samheldni svæðisins. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Urðu að fjarlægja ökutæki frá vegg með kranabifreiðLögreglan á höfuðborgarsvæðinu varð að kalla til kranabifreið til þess að fjarlægja ökutæki sem hafnað hafði utan vegar og á vegg fyrr í dag í umdæmi lögreglustöðvar fjögur, sem sinnir Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Alveg skýrt að kjarasamningum verður sagt upp ef SA býður engar leiðréttingarFormaður VR segir alveg skýrt að ef Samtök atvinnulífsins bjóði engar leiðréttingar fyrir launafólk verði kjarasamningum sagt upp. Forsendur kjarasamninga brustu í ágúst þegar verðbólga mældist yfir viðmiðum. Verkalýðsfélögin hafa til 8. október til að segja samningunum upp. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Missti stjórn á bílnum og hafnaði á veggAlvarlegasta atvikið átti sér stað á svæði lögreglustöðvar 4, sem nær yfir Grafarvog, Árbæ og Mosfellsbær. Þar missti ökumaður stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði utan vegar og skall á vegg. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Tvær tilkynningar um menn að elta börn í ÁrbæLögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið tvær tilkynningar um að menn hafi elt börn í Árbæ. Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að tilkynningarnar hafi borist frá foreldrum í gegnum vef lögreglunnar. Hjördís segir að rætt hafi verið við foreldrana og að málið sé í vinnslu. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hvasst í fyrramálið – gott að huga að lausamunum utandyraÚtlit er fyrir leiðindaveður í fyrramálið með hvassviðri og rigningu. Veðurstofan spáir suðaustan 13 til 20 metrum á sekúndu og verður hvassast syðst á landinu. Þar gæti jafnvel orðið enn hvassara um tíma og vindurinn því af stormstyrk. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undirNemendur við Garðyrkjuskólann á Reykjum krefjast úrbóta á stöðu námsins. Þeir sendu menntamálaráðherra erindi í vor en hafa engin svör fengið. Nemandi hvetur stjórnvöld til að láta málið sig varða enda sé matvælaöryggi undir. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Leita leiða til að koma í veg fyrir að P-kortahafar séu rukkaðirFyrirtækin sem sjá um gjaldtöku á einkareknum bílastæðum gætu fengið upplýsingar um handhafa stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða til að tryggja að þeir verði ekki rukkaðir í trássi við lög. Þetta er meðal þess sem ber á góma í áformum um lagasetningu sem var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda fyrir helgi. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir ÍslendingaStjórnmálaleiðtogar Danmerkur og Grænlands halda nú til Bandaríkjanna til að undirrita samkomulag um framtíð varnarmála á Grænlandi. Sérfræðingur í varnarmálum segir stöðu Íslands í það minnsta ekki verri reisi Bandaríkjamenn þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Framvísaði ökuskírteini annars mannsMaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir rangar sakargiftir og umferðarlagabrot eftir að hann framvísaði ökuskírteini annars manns þegar lögregla stöðvaði hann á Reykjanesbraut. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hvalveiðum hætt eftir 93 langreyðarHvalur hf. hefur lokið hvalveiðum þetta árið og verða skip félagsins ekki send aftur til veiða. Ákvörðunin var tekin vegna slæmrar veðurspár fyrir næstu viku. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hvalveiðivertíðinni lokiðHvalveiðivertíðinni er lokið í ár og veiddust 93 langreyðar á 94 dögum, segir Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu. Ákveðið hafi verið að hætta hvalveiðum fyrr vegna slæmrar veðurspár fyrir næstu viku. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokiðHvalveiðivertíð Hvals hf. er lokið. Hvalbátarnir eru komnir til hafnar í Reykjavík. Í Hvalfirði er unnið að því að vinna hráefni síðustu hvalanna. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Gagnrýna ráðherra: Fátt breyst í bílastæðamálumStjórn félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) ámælti atvinnuvegaráðherra í grein sem birtist á vef félagsins á föstudag fyrir að hafa á undanförnu ári ekki aðhafst nóg til þess að bæta stöðu bílaeigenda gagnvart bílastæðafyrirtækjum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Áttatíu sinnum til ÍslandsÍslandsvinurinn Catherine Ulrich er nú mætt til landsins í 80. sinn. Hún hefur unnið ötullega að því að kynna Frökkum land og þjóð. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ferjuðu 1.799 steina upp HimnastigannFjöldi fólks á öllum aldri tók þátt í að ferja 1.799 steina upp himnastigann í Kópavogi í dag fyrir Píeta samtökin. Með þessu vildu samtökin vekja athygli á nýju númeri hjálparsíma samtakanna – 1799, og minna á að fólk þurfi ekki að bera þungar byrðar ein. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kosningalög ekki besta verkfærið til að verja byggð í landinuForseti Alþingis hefur fengið erindi frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um að skipuð verði þingmannanefnd til að fjalla um tillögur starfshóps um að jafna vægi atkvæða. Hún segir kosningalög ekki besta verkfærið til að verja byggð í landinu. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari hefur sent Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra bréf vegna smáforrits sem hann þarf að nota, með barninu sínu, til að skrá heimalestur. Hann segir forritið ekkert annað en samfélagsmiðil sem ýti undir óþarfa samanburð. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sérBæjarráð Kópavogs skorar á ríki og sveitarfélög að takmarka gjaldskrárhækkanir gagnvart barnafjölskyldum. Bæjarstjórinn segir það vonbrigði að ríkið hækki allar gjaldskrár um 5,2 prósent. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Uppsagnir, óvissa og fátt um svör frá ríkinuHeilbrigðisfulltrúar landsins eru 76 og eru ráðnir hjá sveitarfélögum. Eftirlit með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum sem er á hendi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga verður að mestu fært frá þeim til ríkisins. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hættulegra að fæða sveinbörnNiðurstöður rannsóknar tveggja vísindamanna gefa til kynna að mæður eigi erfiðara með að eignast sveinbörn en meybörn. Það er meðal annars vegna þess að drengir geta verið stærri við fæðingu en stúlkur og stórir drengir eru líklegri til að fleyta tegundinni áfram. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínuKarlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni og stórfellt brot í nánu sambandi gegn barnabarni sínu, stúlku á ótilgreindum aldri. Brotið átti sér stað á heimili afans. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tvöfalda hámarksrefsingu fyrir vændiskaup af börnum„Almenn og sérstök varnaðaráhrif refsinga verða að vera nægileg til að draga úr kerfisbundinni eftirspurn eftir vændi,“ segir í kynningu draganna sem dómsmálaráðherra kynnti á föstudag. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fluttu snjómæla upp í fjallshlíð með drónaStarfsmenn Veðurstofu Íslands í Neskaupstað settu upp tvo nýja snjómæla við Bræðslugjár og í Miðstrandargili. Þetta eru þekktir snjóflóðafarvegir ofan Norðfjarðarvegar. Stór dróni var notaður til að flytja búnaðinn upp í fjall. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ölvunarakstur og átta í fangageymsluHelstu atriði úr dagbók lögreglu: Þegar þetta er ritað gista átta í fangageymslu lögreglu. Alls eru 175 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili. Listinn er ekki tæmandi. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Taka á bílastæðagjaldtöku einkaaðilaInnviðaráðherra hyggst með áformuðum breytingum á umferðarlögum skýra lagaumhverfið varðandi gjaldtöku einkafyrirtækja á bílastæðum með það fyrir augum að bæta stöðu almennings gagnvart rekstraraðilum gjaldskyldra bílastæða. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ekki að ríða dauðum hestiÞegar Purrkur Pillnikk tróð upp á Flateyri í sumar sagði Einar Örn Benediktsson söngvari eitthvað á þessa leið: „Ef þið haldið að þið séuð að fara aftur til 1982 þá hafið þið rangt fyrir ykkur. Það er árið 2026 og ég hef rétt fyrir mér! “ MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Óeðlilegt ef áhersla á lestur fer eftir kennaraSkoða þurfi hvaða kennsluaðferðir virka best og rýna í verkefni sem ánægja er með. Þá sé óeðlilegt ef áhugasvið kennara hefur áhrif á það hvort mikil áhersla er á lestrarkennslu. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammiForeldrar í Árbæ hafa ráðist í skipulagt foreldrarölt eftir að nokkur börn greindu frá hópi karlmanna sem eltu börnin í hverfinu. Foreldri segir málið á borði lögreglu og hvetur íbúa til að taka þátt í foreldrarölti. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lagði niður stöður varðstjóra og réði tollverði á lægri launumUmboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu á dögunum að ríkisskattstjóri hefði ekki farið rétt að þegar stöður þriggja aðalvarðstjóra voru lagðar niður og fólk ráðið á lægri launum til að sinna sömu verkefnum. Aðalvarðstjórarnir unnu við tollgæslu á Keflavíkurflugvelli. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“„Sveitarfélögin eru alltaf jafn óundirbúin ef eitthvað kemur upp á hjá fólki á vinnubærum aldri,“ segir Magdalena. „Þegar fólk er ungt eru ekki aðrar hugmyndir en að setja það á hjúkrunarheimili. En hvert annars? Heimildin Innlent Innlendar fréttir
Allt rusl tínt úr Landeyjafjöru í dagFjöldi fólks er nú saman kominn í Landeyjafjöru til að tína rusl úr fjörunni sem rekið hefur á land en í dag er alþjóðlegi hreinsunardagurinn, „World Cleanup Day“. Verkefnið er unnið í samstarfi við Bláa herinn. Hreinsunin hófst klukkan 10:00 í morgun og stendur til klukkan 16:00 í dag. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Allt rusl týnt úr Landeyjafjöru í dagFjöldi fólks er nú saman kominn í Landeyjafjöru til að tína rusl úr fjörunni sem rekið hefur á land en í dag er alþjóðlegi hreinsunardagurinn, „World Cleanup Day“. Verkefnið er unnið í samstarfi við Bláa herinn. Hreinsunin hófst klukkan 10:00 í morgun og stendur til klukkan 16:00 í dag. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hreinsuðu talsvert magn af olíu úr göngunumLoka varð fyrir umferð um undirgöng þar sem Hálsavegur liggur undir Vesturlandsveg í um klukkustund vegna olíuleka sem varð úr fólksbíl í morgun. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Á slysadeild eftir að hafa ekið fjórhjóli á tréÖkumaður fjórhjóls var fluttur á slysadeild eftir að hafa misst stjórn á hjóli sínu og ekið á tré í grennd við Hafravatn um klukkan sex í gærkvöldi. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Arnarfell dregið til FæreyjaBilun kom upp í Arnarfelli, gámaflutningaskipi Samskipa, er það silgdi á milli Hjaltlandseyja og Færeyja í gær. Skipið var á leið til Rotterdam í Hollandi. Skipið verður dregið í land til Runavíkur í Færeyjum. Engan sakaði að sögn Samskipa, sem segja að orsök bilunarinnar sé þekkt. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ákærður fyrir stórfellt brot gegn barnabarni sínuHéraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni og stórfellt brot í nánu sambandi gegn barnabarni sínu. Meint brot átti sér stað á heimili mannsins 22. desember 2023. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Bólusetningar aðeins fyrsta skrefiðFleiri verkefni lyfjafræðinga eru í undirbúningi en heilbrigðisráðherra segir víðari ávísunarrétt ekki til skoðunar. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólksNý stjórn Ungs jafnaðarfólks var kjörin á landsþingi þeirra um helgina. Jóhannes Óli Sveinsson, forseti samtakanna, var kjörinn til tveggja ára á síðasta landsþingi og þurfti því ekki að endurnýja umboð sitt. Fimm nýir fulltrúar voru kjörnir í stjórn samtakanna. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fjórhjól lenti á tréÖkumaður á fjórhjóli slasaðist þegar hann missti stjórn á hjóli sínu með þeim afleiðingum að það lenti á tré. Slysið varð við Hafravatn um klukkan sex síðdegis í gær. Ekki fengust upplýsingar um hvort eða hversu alvarlega ökumaðurinn slasaðist. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman af því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félags um verndun fjarðar og berst nú með oddi og egg gegn ráðabruggi um að koma niður sjókvíum í… Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hótuðu að loka VogiEmbætti landlæknis setti SÁÁ úrslitakosti í síðustu viku og tilkynnti að ef ekkert yrði að gert á næstu tveimur virkum dögum þyrfti að loka sjúkrahúsinu Vogi. Til að forðast þetta þyrfti sérfræðilæknir að gangast við faglegri ábyrgð á heilbrigðisstarfseminni fyrir klukkan 16 síðasta mánudag. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Séu að sökkva og landlæknir hótað að stöðva starfseminaEmbætti landlæknis setti SÁÁ úrslitakosti í síðustu viku og tilkynnti að ef ekkert yrði að gert á næstu tveimur virkum dögum þyrfti að loka sjúkrahúsinu Vogi. Til að forðast þetta þyrfti sérfræðilæknir að gangast við faglegri ábyrgð á heilbrigðisstarfseminni fyrir klukkan 16 síðasta mánudag. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Níutíu og níu ný hjúkrunarrými rísaHúseiningar fyrir nýtt hjúkrunarheimili við Hamranes 43 í Hafnarfirði hófu að berast til landsins á síðastliðnum dögum. Alls munu 99 hjúkrunarrými rúmast í húsinu sem verður um 6.900 fermetrar og á fimm hæðum MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í SprengisandiÞað er fjölbreytt dagskrá að vanda í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Páll Magnússon stýrir þættinum í dag og tekur á móti Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra til að ræða breytingar í útlendingamálum, tillögu um breytta skiptingu þingmanna milli kjördæma, fækkun sýslumanna og… Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Útlendinga- og menntamál og hallalaus fjárlög í SprengisandiÞað er fjölbreytt dagskrá að vanda í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Páll Magnússon stýrir þættinum í dag og tekur á móti Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra til að ræða breytingar í útlendingamálum, tillögu um breytta skiptingu þingmanna milli kjördæma, fækkun sýslumanna og… Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir