Sýnir: Innlendar fréttir
10.694 fréttir fundust
Síða 53 af 214
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á MánagarðiLögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fellt niður rannsókn á E. coli-sýkingu á leikskólanum Mánagarði, án útgáfu ákæru. Einn var með réttarstöðu sakbornings svo mánuðum skipti vegna gruns um líkamsmeiðingar af gáleysi. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Rannsókn á E. coli-smiti á Mánagarði hættLögregla hefur hætt rannsókn á E. coli-hópsmiti á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í október 2024. Þetta staðfestir Árni Bergur Sigurðsson, settur sviðstjóri ákærusviðs. Hann segir öllum hlutaðeigandi hafa verið tilkynnt um niðurstöðuna. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ný göngubrú vígðNý göngu- og hjólabrú var formlega opnuð í Elliðaárdal í morgun. Brúin kemur í stað veitustokks sem var nýttur sem göngubrú. Krakkar úr Árbæjarskóla tóku þátt í athöfninni. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tæplega hálfs milljarðs skattalagabrot verktakaÞrír karlmenn á aldrinum 35 til 50 ára hafa verið ákærðir af embætti héraðssaksóknara fyrir umfangsmikil skattabrot í rekstri nokkurra verktakafyrirtækja á árunum 2017 til 2024. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Braut gegn ólögráða stúlku í bíl á SeltjarnarnesiKarlmaður hefur verið ákærður af embætti héraðssaksóknara fyrir nauðgun með því að hafa í nóvember í fyrra brotið gegn ólögráða stúlku í bíl á Seltjarnarnesi. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Þórkatla segir endurkaupaáætlun háða lagabreytinguÁætlun fasteignafélagsins Þórkötlu um endursölu eigna til Grindvíkinga er langt komin. Það er aftur á móti mat félagsins að til þess að tryggja farsæla framkvæmd endurkaupaáætlunar sé nauðsynlegt að gerðar verði ákveðnar breytingar á lögum, enda ekki um hefðbundin fasteignaviðskipti að ræða. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Uppfært - Framkvæmdum við Hoffellsárbrú frestað vegna veðursFramkvæmdum við Hoffellsárbrú á Hornafjarðarvegi (987) sem fara áttu fram næstu daga hefur verið frestað vegna veðurs. Með frestun framkvæmdanna fellur jafnframt niður fyrirhuguð niðurfelling gjaldtöku og verður gjaldtaka á Hringvegi 1 um Hornafjörð því óbreytt þar til annað verður Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Íslenskar jökulár úr geimnumBrúnleitur framburður jökuláa sem renna út í Atlantshafið á Suðurlandi er greinilegur á nýrri mynd evrópsks gervitungls. Fjarkönnunin varpar meðal annars ljósi á hvernig set berst með ám og út á haf. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Betur fór en á horfðist“ í vinnuslysinuÁsmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi segir að útlit sé fyrir að betur hafi farið en á horfðist þegar starfsmaður Landsnets fékk „rafmagn í gegnum sig“ þegar hann sinnti störfum í spennuvirki fyrir hönd fyrirtækisins. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tók stúlku kverkataki og nauðgaðiKarlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga ólögráða stúlku í bíl á Seltjarnarnesi í nóvember í fyrra. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirkiEinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans eftir slys í tengivirki við Vatnshamra í Borgarfirði í dag. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan hans eða hvernig slysið varð. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vinnuslys í tengivirki í BorgarfirðiÞyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan eitt í dag vegna vinnuslyss í tengivirki Landsnets í Borgarfirði. Var einn einstaklingur sóttur og lenti þyrlan við Landspítalann í Fossvogi nú rétt fyrir klukkan þrjú. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurfluttEngin ákvörðun hefur verið tekin um hvort lagareldisfrumvarpið verði lagt fram að nýju. Frumvarpið er ekki á dagskrá yfirstandandi löggjafarþings, þótt í atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar hafi verið stefnt að lagasetningu um bæði sjókvíaeldi og landeldi vorið 2026. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Maður fluttur með þyrlu á Landspítala eftir slys í tengivirkiMaður slasaðist í vinnuslysi við tengivirki í Borgarfirði í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og flutti manninn til aðhlynningar á Landspítala. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vesturlandi fór straumur í gegnum manninn. Hann var þó með meðvitund. Maðurinn er starfsmaður Landsnets. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfiÍslenskt réttarvörslukerfi stendur frammi fyrir nýrri og skelfilegri birtingarmynd mansals hér á landi. Þetta fullyrðir Sævar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmaður, í aðsendri grein á Vísi. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangurOECD fann engin tengsl milli þess að símabönn urðu algengari frá 2022 til 2025 og breytinga á árangri nemenda í lestri eða náttúrufræði. Íslenskir nemendur nota jafnframt stafræn tæki minna til afþreyingar í skólanum en nemendur OECD að meðaltali og segja síður að tækin trufli kennslu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Óánægja foreldra í Hafnarfirði með breytingar á reglum um frístundastyrkHafnarfjarðarbær greiddi frístundastyrk mánaðarlega til foreldra. Sumir foreldrar gátu ekki fullnýtt styrkinn því aðeins var greitt fyrir þá mánuði sem barnið iðkaði frístundina. Frá og með 1. janúar 2026 er allri upphæðinni úthlutað einu sinni á ári. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Rafmagnslaust í BorgarfirðiRafmagnslaust er í Borgarnesi, Skorradal og allt upp í Húsafell. Spennar í tengivirkinu Vatnshömrum leystu út. Tölvu- og símkerfi Heilsugæslunnar í Borgarnesi liggja niðri vegna rafmagnsleysisins. Í tilkynningu frá Landsneti segir að unnið sé að því að greina bilunina. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hekla innkallar 2.600 bíla vegna tæringarhættuUm 2.600 bílar af gerðunum Škoda, Volkswagen og Audi verða innkallaðir hér á landi vegna mögulegrar tæringar á bolta sem festir stýrisvél við undirvagn. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Nýttu 46,5 milljónir í eigin þáguHjón um sextugt hafa verið ákærð fyrir fjárdrátt, peningaþvætti og skilasvik í tengslum við umboðsviðskipti með fjögur ökutæki sem félag á þeirra vegum hafði milligöngu um að selja fyrir pólsk félög. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Pólland og Litháen vinna að rýmingaráætlunPólland og Litháen vinna að sameiginlegri áætlun um hvernig flytja megi almenna borgara frá Eystrasaltsríkjunum komi til alvarlegrar krísu eða hernaðarógnar. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ljósastýring á ÓseyrarbrúViðhaldsvinna á Óseyrarbrú á Eyrarbakkavegi (34) hefst þriðjudaginn 29. september. Á meðan á framkvæmdum stendur verður aðeins ein akrein opin um brúna og umferð stýrt með umferðarljósum. Búast má við smávægilegum töfum. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkjaDómurinn taldi þó ekki rétt að skerða bætur hans um helming. Við matið var meðal annars horft til þess að jeppanum hefði verið ekið beint áfram á jafnsléttu og á tiltölulega litlum hraða. Þá taldi dómurinn líklegt að ökumaður jeppans hefði ekið yfir hjólför og ekki sýnt næga aðgát. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Fara þarf varlega í breytingarBryndís Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Laugaráss Lagoon, segir að fyrirhugað náttúru- og innviðagjald muni án efa hafa áhrif á straum ferðamanna í baðlónið sem var opnað fyrir um ári. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Pistill: Við hækkum, ekki þiðHvers vegna hefur fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar – sem forsætisráðherra lýsti sem „sleggju út af fyrir sig“ – ekki haft þau áhrif sem vonast var eftir? Sérfræðingar á fjármálamarkaði hafa lýst yfir vonbrigðum, samtök á vinnumarkaði líka og viðbrögð markaðarins koma fram í því að verðbólguálag… MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hagar grípa til óvenjulegra aðgerða vegna óvenjulegrar stöðuHagar hafa lækkað verð á hátt í þúsund vörum í Bónus og Hagkaup fram að áramótum. Forstjóri fyrirtækisins segir það vilja leggja sitt af mörkum þótt verðbólga á matvöru sé talsvert undir því viðmiði sem sett var í kjarasamningum. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Akstursíþróttir björguðu lífi hans„Hann sagði að hann hefði bara endað í einhverju hræðilegu slysi hefði hann ekki bætt ráð sitt. “ MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanirÞað væri undarleg taktík að boða 5,2 prósenta gjaldahækkanir til að fá sveitarfélög, atvinnurekendur og verkalýðsfélög að samningaborðinu um minni hækkanir, að mati Almars Guðmundssonar, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Um 20 manns sagt upp hjá Arion bankaUm 20 starfsmönnum Arion banka hefur verið sagt upp störfum. Starfsmennirnir munu allir hætta í september, flestir í dag. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Strandlengjan í Höfnum í hausthúmiRagnar Visage, ljósmyndari RÚV, náði þessum fallegu haustmyndum af strandlengjunni við Hafnir á Reykjanesi. Þar sást meðal annars dragnótarbáturinn Maggý VE 108 að veiðum. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Segja ráðuneytið túlka fjármagnskostnað upp á nýttOrkuveita Reykjavíkur óttast að túlkun innanríkisráðuneytisins geti staðið í vegi fyrir því að sveitarfélög taki höndum saman um dýrar framkvæmdir við fráveitur. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“Atvinnuvegaráðherra telur sig mega gera greinarmun á þeim sem eru búsettir á Íslandi og erlendum ferðamönnum þegar kemur að gjaldtöku á ferðamannastöðum, þrátt fyrir inntak EES-samningsins, enda sé ekki verið að mismuna fólki eftir þjóðerni. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dómKarlmaður hefur verið dæmdur til níu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa ítrekað framið fjársvik í verslunum með því að skanna rangt strikamerki í sjálfsafgreiðslu og greiða þannig minna fyrir vörur en þær kostuðu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vel heppnaðar hrossaréttir fyrir norðan„Þetta heppnaðist stórvel, það var aðeins blautt en heppnaðist vel, líklega 1.500 hross þarna og ég held að 300 manns hafi farið ríðandi að sækja hross í dalinn,“ segir Bergur Gunnarsson réttastjóri við Morgunblaðið. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Um 20 sagt upp hjá Arion bankaUm það bil 20 starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Arion banka. Flestar uppsagnirnar taka gildi nú þegar. Þetta staðfestir Haraldur Guði Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka. Vísir greindi fyrst frá. Tilkynnt var um uppsagnirnar í tölvupósti til starfsmanna í morgun. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Harðari tónn en áður hafi verið sleginnRæða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þar sem hún beindi spjótum sínum að Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur vakið mikla athygli. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Eldur kviknaði í gámiEldur kviknaði í gámi við Skúlagötu í Reykjavík um hálfníuleytið í morgun. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Svindlaði í búðum með því að nota vitlausa strikamiðaKarlmaður á fertugsaldri var í dag dæmdur til níu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjársvik. Hann stundaði það um nokkurra mánaða skeið að borga minna fyrir matvæli en verðmerkingar þeirra sögðu til um. Maðurinn var ákærður fyrir 42 brot í verslunum á fjögurra mánaða tímabili í fyrra. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Leiguauglýsingar sýna 9,3% hærra verðAuglýst meðalleiguverð á fermetra sem Samtök leigjenda tóku í síðustu viku saman úr yfir 600 leiguauglýsingum er 9,3% hærra en meðalleiguverðið í nýjum leigusamningum skráðum hjá HMS í ágúst. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræðaRæða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hefur vakið athygli og ekki síst það sem stjórnmálafræðingur segir harðari tón en áður hafi verið sleginn. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
114 milljóna skattalagabrot hjá verktakafyrirtækiKarlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður af embætti héraðssaksóknara fyrir um 114 milljóna skattalagabrot í tengslum við rekstur á verktakafyrirtæki sem hann var framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og prókúfuhafi í. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tími til kominn að skýra löggjöfinaPawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og fyrsti flutningsmaður frumvarps um að heimila innlendar vefverslanir með áfengi, telur að dagar ríkiseinokunar á áfengismarkaði séu taldir. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Búið að ræða við öll vitni í tengslum við banaslysÞrjú létust í slysinu, ökumaðurinn, fæddur 2005, og tvær ungar konur fæddar 2007 og 2009. Slysið varð á Krýsuvíkurvegi við Bláfjallaafleggjarann, þar sem ökumaður virðist hafa misst stjórn á bifreið sinni og hafnað á kletti í vegkanti við beygju sem tók við af blindhæð. Heimildin Innlent Innlendar fréttir
Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurinsÍ niðurstöðu umboðsmanns kemur fram að óheimilt sé að fara með barn úr landi nema báðir forsjáraðilar samþykki ferðalagið. Ef foreldrar sem fara sameiginlega með forsjá barns greinir á um utanlandsferð getur sýslumaður úrskurðað um rétt foreldris til að fara með barnið úr landi. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Fékk glerflösku í höfuðið í MjóddUngmenni fékk glerflösku í höfuðið þegar hópur ungmenna veittist að því og karlmanni á sextugsaldri í Mjódd rétt fyrir klukkan hálfellefu á laugardagskvöld. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Engin lausn að grafa undan verkfallsréttinumSósíalistaflokkur Íslands hefur lýst yfir algjörri andstöðu við hvers konar skerðingu á verkfallsrétti launafólks. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fundur flugvirkja og Icelandair hafinnFundur Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hjá ríkissáttasemjara hófst klukkan 10 í morgun. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómiKjúklingur kom ítrekað við sögu næstu vikurnar. Maðurinn sveik meðal annars út Ali Rodizio kjúkling í nokkrum verslunum og voru vörurnar í einstökum tilvikum að verðmæti rúmlega 3.000 krónur. Þá sveik hann út kjúklingabringur og BBQ-kjúklingaspjót. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Segir ríkisstjórnina viðurkenna mistökLilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins segir það stórt skref að ríkisstjórnin virðist nú tilbúin að endurskoða boðaðar hækkanir opinberra gjalda. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ekið á fimm ára barn á hjóliLögreglunni á Suðurlandi barst í gær tilkynning um ökumann sem ók á fimm ára barn. Atvikið átti sér stað í Hveragerði og var barnið á hjóli þegar ekið var á það. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir