Sýnir: Innlendar fréttir
10.681 fréttir fundust
Síða 31 af 214
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Allir fá fangelsisdóm í Reykholtsmáli: Andri fékk 8 árAllir sex sakborningarnir í Reykholtsmálinu svokallaða voru dæmdir í óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Þyngsta dóminn hlaut Andri Már Mortensen Birgisson, átta ára fangelsi. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárásLögreglan á Suðurnesjum leitar enn að einum sem grunaður er um að hafa tekið þátt í alvarlegri líkamsárás í Reykjanesbæ aðfaranótt föstudagsins 2. október. Fjórir hafa þegar verið yfirheyrðir. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ráðleggja minni loðnuveiði en gert var ráð fyrirHafrannsóknastofnun og Náttúrustofnun Grænlands hafa uppfært veiðiráðgjöf fyrir loðnuvertíð vetursins. Í júní gerði Hafró ráð fyrir að veiða mætti 358.044 tonn en ný ráðgjöf sem birtist í dag gerir ráð fyrir ríflega 105.000 tonna veiði. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Reka inn á morgun“ áður en veðrið skellur áDjúp lægð stefnir á landið og má búast við hvassviðri og úrkomu á miðvikudag. Versta veðrið verður á norðvestanverðu landinu. Garðar Valur Gíslason er bóndi á Stórhóli í Húnaþingi vestra og var í óðaönn að eltast við eftirlegukindur þegar fréttastofa náði af honum tali. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Andri Már dæmdur í 8 ára fangelsi í ReykholtsmálinuAndri Már Mortenssen Birgisson var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn í Reykoltsmálinu. Frá refsingu hans dregst 41 dagur þar sem hann sat í gæsluvarðhaldi frá 26. apríl til 6. júní 2024. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dómAndri Már Mortenssen Birgisson var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir aðkomu sína að Reykholtsmálinu svokallaða. Dómur var kveðinn upp yfir honum og fimm öðrum en þeim var gefið að sök að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fjögur handtekin grunuð um hópárás og lögregla leitar hins fimmtaFjórir karlmenn og ein kona eru grunuð um stórfellda líkamsárás gegn karlmanni á þrítugsaldri í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum. Lögregla hefur handtekið og yfirheyrt fjögur þeirra en leitar þess fimmta. Þetta staðfestir Stefán Sveinsson lögreglufulltrúi á Suðurnesjum. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sakfelldur og gert að greiða 104 milljónirHéraðsdómur Reykjavíkur hefur sakfellt Sverri Einar Eiríksson fyrir meiriháttar skattalagabrot og var hann dæmdur í 24 mánaða fangelsi þar af 21 mánuð skilorðsbundið. Sverrir var enn fremur dæmdur til að greiða 104 milljónir króna í sekt í ríkissjóð. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Járnþrúður skipuð formaðurÍ stjórn sjóðsins sitja auk Jarþrúðar: Rannveig S. Sigurvinsdóttir, dósent við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík og Martha Lilja Olsen, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. Varamenn eru Bjarni Þór Pétursson, verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun, Stefan C. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Skipuð formaður JafnréttissjóðsÞorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Jarþrúði Ásmundsdóttur sem formann Jafnréttissjóðs Íslands. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Aldrei meiri umferð í september á höfuðborgarsvæðinuUmferðin á höfuðborgarsvæðinu í september reyndist tveimur prósentum meiri en í sama mánuði í fyrra. Aldrei hefur mælst meiri umferð í september, Þrátt fyrir það hefur umferðin frá áramótum aðeins aukist um 0,4 prósent sem er minna en útlit var Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Tekur undirskriftalistann með á ríkisstjórnarfundJóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók í dag á móti rúmlega 13.000 undirskriftum gegn fyrirhuguðu sjókvíaeldi í Seyðisfirði. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tæknibilun kom í veg fyrir próftöku 200 háskólanemaUm 200 nemendur við Háskólann á Bifröst gátu ekki tekið próf á fimmtudaginn vegna tæknivandræða. „Það komu upp auðkenningarvandræði vegna uppfærslu hjá Inspera, sem er þjónustuaðili prófakerfisins hjá okkur, og þetta varð til þess að við urðum að virkja viðbragðsáætlun á fimmtudagsmorguninn og… Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sverrir Einar aftur dæmdur fyrir skattalagabrotHéraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi Sverri Einar á föstudag og dæmdi hann í 24 mánaða fangelsi. Þar af eru 21 mánuður skilorðsbundinn til þriggja ára og þarf hann því að afplána þrjá mánuði. Þá var honum gert að greiða tæplega 105 milljónir króna í sekt. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Gular og appelsínugular viðvaranir á miðvikudag og fram á fimmtudagsmorgunÓveðrið sem geisar á miðvikudag skellur á um klukkan sex að morgni og gengur ekki niður að fullu fyrr en um klukkan sex næsta dag. Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir í flestum landshlutum vegna veðursins. Versta veðrinu er spáð á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Segir leyndina í kerfinu bitna á börnunumJón Pétur Zimsen gagnrýnir að skólar fái ekki lengur eigin PISA-niðurstöður þótt þær hafi áður nýst við umbætur í skólastarfi. Hann telur að menntayfirvöld eigi að miðla upplýsingunum með skýrum fyrirvörum í stað þess að halda þeim frá skólunum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Dæmdur fyrir skattsvik vegna BSkemmtistaða- og áfengisverslunareigandi var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot, meðal annars í rekstri skemmtistaðarins B í Bankastræti. Hann þarf að afplána þrjá mánuði af fangelsisrefsingunni og greiða meira en hundrað milljónir í sekt. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta„Þegar 13 þúsund manns skrifa undir svona áskorun þá verða stjórnvöld auðvitað að hlusta. “ Þetta sagði umhverfisráðherra eftir fund með andstæðingum sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Þeir segjast vona að það verði forgangsmál stjórnvalda að koma í veg fyrir að sjókvíaeldið verði að veruleika. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hjúkrunarfræðingar á bráðalegudeildum 40% færri en æskilegt erFormaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir að stórauka þurfi fjármagn til heilbrigðiskerfisins svo hægt verði að fullmanna stöður hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á bráðalegudeildum. Samkvæmt skýrslu heilbrigðisráðuneytis eru hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar 40% færri en æskilegt er. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Móðir ákærð fyrir að slá, klípa og bíta dætur sínarLögreglustjórinn á Suðurlandi hefur höfðað sakamál gegn móður sem ákærð er fyrir brot í nánu sambandi gegn tveimur dætrum sínum. Meint brot áttu sér stað frá hausti 2019 til 2. mars 2021, þegar stúlkurnar voru á aldrinum fjögurra til átta ára. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Þjóðarhöllin nýja er komin á fullt skriðUndirbúningur að byggingu nýrrar þjóðarhallar í Laugardal er hafinn af fullum krafti hjá Íslenskum aðalverktökum (ÍAV), sem byggja húsið. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ótrúleg tilviljun þegar fjársjóður fannst í HeiðmörkViðar segir tilfinningarnar hafa verið blendnar þegar hann frétti af fundinum. Hann hafi að hluta til syrgt það að hafa ekki sjálfur fundið fjársjóðinn en einnig fundið til mikillar gleði, sérstaklega þegar hann frétti að Guðmundur hefði verið með tvo syni sína með sér og að þeir hafi fengið að… MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Óheppilegt að ráðast í mengandi starfsemi í óþökk nærsamfélagsJóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók í dag á móti undirskriftarlista um að stöðva leyfisveitingu til sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi í firðinum og var ákvörðuninni mótmælt bæði í Reykjavík og á… Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Erum með okkar viðbragðaáætlanir“Röskun gæti orðið á millilandaflugi og innanlandsflugi á miðvikudaginn vegna óveðursins sem spáð er á landinu. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Innflutningur á kjöti hefur stóraukistUm 60% af öllu því kjöti sem flutt er inn til landsins kemur frá nokkrum löndum, þó langmest frá Póllandi og Litáen. Á fyrstu sjö mánuðum þessa árs jókst kjötinnflutningur um 14% að magni miðað við sama tíma í fyrra. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulagEngin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag fylgdu niðurstöðunni við VR og fagfélögin, að sögn Bjarna Benediktssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann segir enga innistæðu fyrir tortryggni Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, og segist treysta sér til áframhaldandi samstarfs… Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tókust á um ágæti fyrirhugaðrar leigubremsuRagnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í síðustu viku fyrir frumvarpi um breytingar á húsaleigulögum. Þar er meðal annars lagt til að mánaðarleg vísitölutenging leigu verði bönnuð og að leigufjárhæð geti að hámarki tekið breytingum einu sinni á ári. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tók ákvörðun um framboð í afmælinuGuðmundur Ari Sigurjónsson alþingismaður var sjálfkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar á flokksstjórnarfundi í Suðurnesjabæ á laugardaginn. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Bjarni Benediktsson er fullkominn hugarburður“Allt traust sem byggt hafi verið upp af hálfu forvera Bjarna Benediktssonar sé nú horfið og að engin samskipti muni verða á milli Eflingar og SA fyrr en kjarasamningar losna. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Óvenjudjúp miðað við árstíma“Veðurstofan mun í dag gefa út gular og appelsínugular veðurviðvaranir. Afar kröpp lægð stefnir á landið. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Óvenjudjúp miðað við árstíma“Veðurstofan mun í dag gefa út gular og appelsínugular veðurviðvaranir. Afar kröpp lægð stefnir á landið. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskistViðvaranir verða gefnar út á landinu öllu vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið á miðvikudag. Veðurfræðingur telur líklegt að flug raskist og segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsinsViðvaranir verða gefnar út á landinu öllu vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið á miðvikudag. Veðurfræðingur telur líklegt að flug raskist og segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna. Þetta er meðal þess sem fjallað er um í hádegisfréttum Bylgjunnar. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Starfsmaður áminntur fyrir óheimilar uppflettingarPersónuvernd hefur komist að þeirri niðurstöðu að vinnsla starfsmann Landspítalans á persónuupplýsingum sjúklings hafi ekki samræmst lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hætta að flytja gler til HollandsAllt skilagjaldsskylt gler sem berst til Endurvinnslunnar fer nú til endurvinnslu innanlands í stað þess að vera flutt með skipi til Hollands. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Gjaldtaka á Gullna hringnum verði endurskoðuðFyrirhuguð gjaldtaka á sér takmarkaða hliðstæðu annars staðar á Norðurlöndum. Þar er almenna nálgunin sú að aðgangur að náttúrusvæðum sé gjaldfrjáls en gjaldtaka fremur tengd tiltekinni þjónustu eða álagi. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Fletti níu sinnum í sjúkraskrá konu án tilefnisPersónuvernd taldi starfsmanninn sjálfan bera ábyrgð á uppflettingunum þar sem hún hefði farið út fyrir aðgangsheimildir sínar. Uppflettingarnar samrýmdust ekki persónuverndarlögum og var starfsmaðurinn áminntur. Ekki þótti þó tilefni til að leggja á hana stjórnvaldssekt. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konuPersónuvernd áminnti starfsmann Landspítalans fyrir að fletta ítrekað upp sjúkraskrá konu án tilefnis. Eftirlitsnefnd sjúkraskráa taldi starfsmanninn hafa brotið persónuverndarlög og lög um ríkisstarfsmenn. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Útlit fyrir vonskuveður á miðvikudagVonskuveðurs er að vænta á miðvikudag og verða líklega gefnar út gular og jafnvel appelsínugular viðvaranir þegar líður á daginn. Eins og spáin er núna verður slæmt veður um allt land og versta veðrið á norðvestanverðu landinu. Vont eða ekkert ferðaveður verður á landinu. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hvassviðri eða stormur og snjókoma eða slyddaÁ miðvikudag: Austan og norðaustan hvassviðri eða stormur. Víða talsverð eða mikil rigning á láglendi, en slydda eða snjókoma til fjalla. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Öll tilboð yfir áætlunVerktakafyrirtækið Eykt ehf. skilaði inn lægsta tilboðinu í innanhússfrágang nýs rannsóknarhúss Nýja Landspítalans við Hringbraut. Húsið hefur þegar verið steypt en lokafrágangur stendur yfir á útveggjum og þaki. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Spáir mjög djúpri lægð sem gæti valdið tjóni„Grannt þarf að fylgjast með þessari þróun næstu tvo til þrjá sólarhringa. Mjög djúpar lægðir eins og sú sem nú er í pípunum valda langoftast óskunda hér og stundum verulegum vandræðum og eignatjóni. En það er enn langur vegur frá Atlanta til Akureyrar! “ skrifar Einar. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfunÍslensk meistaraprófsrannsókn í sjúkraþjálfun hlaut um helgina fyrstu verðlaun evrópskra samtaka um rannsóknir á sviði sjúkraþjálfunar á háskólastigi. Höfundur rannsóknarinnar, Dagbjört Ósk Hreggviðsdóttir, hlaut verðlaunin fyrir lokaverkefni sitt frá námsbraut í sjúkraþjálfun frá… Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sólveig Anna: „Nú er það traust algjörlega horfið“Sólveig Anna hefur verið mjög gagnrýnin á samningaviðræður VR og SA sem náðust á síðustu mínútu í lok síðustu viku. Sólveig segir Samtök atvinnulífsins hafa ákveðið að friðþægja VR og „fylgdarlið formanns félagsins, forystu fagfélaganna“, eins og Sólveig Anna orðar það í pistli sínum. Heimildin Innlent Innlendar fréttir
Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VRAtli Þór Fanndal Guðlaugsson, verkefnastjóri á skrifstofu rektors við Háskólann á Bifröst, gagnrýnir í Facebook-færslu það sem hann telur vera tilraun Breiðfylkingarinnar (Starfsgreinasambandið, Efling, Samiðn og Byggiðn) til að gera lítið úr samkomulagi VR við Samtök atvinnulífsins en… Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir