Sýnir: Innlendar fréttir
10.679 fréttir fundust
Síða 28 af 214
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Veðurspá fyrir morgundaginn versnarVon er á vonskuveðri um nær allt landið á morgun þegar djúp og kröpp lægð gengur yfir. Veðurstofan hefur bætt við appelsínugulri veðurviðvörun á Suðurlandi. Hún tekur gildi strax í fyrramálið klukkan 05:00 og gildir til klukkan 10:00. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kristrún: Hugmyndin „fyrst og fremst fyrirsjáanleiki“Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir markmið frumvarps um svokallaða leigubremsu fyrst og fremst vera að tryggja fyrirsjáanleika á leigumarkaði. Aðgerðin ein og sér muni ekki leysa vanda markaðarins og aukið framboð húsnæðis þurfi til að halda aftur af leiguverðshækkunum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Mjög djúp og kröpp lægð nálgast landiðÁ fimmtudag:Minnkandi norðvestanátt og snjókoma framan af degi á Norður- og Austurlandi. Vaxandi suðvestan átt 8-15 síðdegis með lítilsháttar skúrum eða éljum á norðvestan- og vestanverðu landinu, en þurrt í öðrum landshlutum. Hiti víða 0 til 7 stig, hlýjast við vestur- og suðurströndina. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Hlöllabátum við Smáralind lokaðSamlokustaður undir vörumerki Hlöllabáta sem rekinn hefur verið í Orkunni við Smáralind að Hagasmára hefur verið lokað. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Greiðslukerfi Krónunnar komið í lagFreyja Leópoldsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni, segir að greiðslukerfisvandræðin séu einungis bundin við þessa tilteknu Krónuverslun. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Greiðslukerfi Krónunnar í Austurveri liggur niðriFreyja Leópoldsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni, segir að greiðslukerfisvandræðin séu einungis bundin við þessa tilteknu Krónuverslun. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fór úr bílnum og hljóp undan lögregluLögregla gaf ökumanni fyrirmæli um að stöðva akstur með forgangsljósum í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Þau virti hann ekki, stöðvaði þó síðar bílinn en hljóp þá af stað undan lögreglu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hljóðupptökur vógu þungt: Andri stýrði atburðarásinniHljóðupptökur úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar og framburður meðákærðra vógu þungt þegar Héraðsdómur Suðurlands komst að þeirri niðurstöðu að Andri hefði skipulagt og stjórnað frelsissviptingu manns í Reykholti í apríl 2024. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Greinir á um hvort flugbrautin sé nothæfSigrún Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla Isavia, segir að flugbrautin á Djúpavogi sé nothæf. Í liðinni viku fjallaði Morgunblaðið hins vegar um að heimastjórn Djúpavogs hefði lagt til að flugbrautinni yrði breytt í vegslóða þar sem hún hefði verið ónothæf um árabil. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Enn versnar spáin með nýjum viðvörunumEnn versnar spáin fyrir morgundaginn og mun Veðurstofan gefa út appelsínugular viðvaranir fyrir Suðurland og Breiðafjörð til viðbótar við þær sem gefnar hafa verið út fyrir Vestfirði og Norðurland vestra. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Reykholtsmálið: Einbeittur brotavilji og algert skeytingarleysiAndri Már Mortensen Birgisson, sem dæmdur var í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn í Reykholtsmálinu, var höfuðpaur og aðalskipuleggjandi þess. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Suðurlands sem birtur var í dag. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Bandero leitar skjóls í ReykjavíkSkipið Bandero siglir nú til Reykjavíkur í skjól frá suðaustanáttinni. Til stóð að flytja skipið í gærkvöldi en þá var skipstjórinn hvergi sjáanlegur. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása HútaAir Atlanta hefur dregið gríðarlega úr umsvifum sínum í Sádíu-Arabíu undanfarna mánuði að sögn framkvæmdastjóra vegna átaka í Mið-Austurlöndum. Hann segir félagið fylgjast grannt með stöðunni í landinu eftir mannskæðar eldflaugaárásir Húta sem beinst hafa gegn flugvöllum í landinu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Áform um að stytta hámarkstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 árHámarkstími nýrra verðtryggðra fasteignalána styttist úr 40 árum í 25 samkvæmt áformum fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem birt hafa verið í Samráðsgátt stjórnvalda. Það er í samræmi við tillögur sérfræðingahóps um afnám verðtryggingar á neytendalán og eldri frumvörp. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kakkalakkar reglulega vandamál á stúdentagörðunumÞegar tilkynning berst til FS um kakkalakka eru virkjaðir ákveðnir verkferlar sem hefst á því að íbúi þarf að skila inn viðgerðarbeiðni. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vara við hvassviðri syðst og ofsaveðri á NorðvesturlandiVegagerðin varar vegfarendur við mjög hvössum vindi undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum frá því snemma í fyrramálið og til um kl. 9:00 á morgun. Gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn og búist er við að veðrið verði hvað verst á norðvestanverðu landinu. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings47. þing Alþýðusambands Íslands hefst í dag. Vísir verður í beinni í dag frá þinginu auk þess sem fylgjast má með streymi af málþingi sem fram fer í dag frá tíu til eitt í hátíðarsal Hilton Reykjavík. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Óttast kostnaðarsamar framkvæmdir vegna myglu í ráðhúsinuSkellt hefur verið í lás í ráðhúsinu á Hvammstanga eftir að mikil mygla fannst í húsnæðinu. Einhverjir starfsmenn voru farnir að finna fyrir einkennum segir sveitarstjóri. Tekin voru bæði stroksýni og efnissýni á nokkrum stöðum á öllum hæðum hússins. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar?Formaður Eflingar segir það blákalda og augljósa staðreynd að formaður VR reyni að sölsa undir sig ASÍ með tillögu sinni um fækkun varaforseta. Formaður VR segir um að ræða samsæriskenningar, núverandi fyrirkomulag sé ólýðræðislegt. Útlit er fyrir spennandi landsþing ASÍ. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vara við yfir 40 m/s vindhviðum í nótt og á morgunLögreglan í Vestmannaeyjum varar bæjarbúa við því að vindhviður geti í nótt og í fyrramálið farið vel yfir 40 m/s, en gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir stóran hluta landsins í nótt og á morgun vegna mikils hvassviðris. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Á minni vakt verður almannafjölmiðillinn ekki veiktur“Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, segir ekki koma til greina að veikja Ríkisútvarpið með því að taka það af auglýsingamarkaði. Hann segir þó að til skoðunar sé að breyta fyrirhuguðu þaki á auglýsingatekjur RÚV í kjölfar umsagna um nýtt fjölmiðlafrumvarp. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Salmonella greindist í kryddi KokkuMatvælastofnun varar við neyslu á Timur berry kryddi frá Lifa ehf. sem er selt í Kokka þar sem Salmonella greindist í kryddinu. Fyrirtækið hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað vöruna. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Loka hluta Suðurlandsvegar á fimmtudagColas stefnir að malbiksviðgerðum á Suðurlandsvegi milli Selfoss og Hveragerðis á fimmtudag, ef veður leyfir. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Orsök háspennuslyss í tengivirki Landsnets enn til rannsóknarRannsókn lögreglunnar á Vesturlandi á háspennuslysi í tengivirki Landsnets í Borgarfirði stendur enn yfir. Yfirlögregluþjónn segir að lögregla sé enn að safna gögnum og greina aðstæður til að komast að því hvað olli slysinu. Málið sé ekki komið á þann stað að einhver hafi stöðu grunaðs. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í FrakklandiHún bendir á að Frakkar eigi langa sögu róttækra mótmæla, verkfalla og átaka við yfirvöld. Þar nefnir hún meðal annars frönsku byltinguna, Parísarkommúnuna og mótmælin í maí 1968, þegar námsmenn reistu götuvígi í París og hörð átök brutust út við lögreglu. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Salmonella greindist í innfluttu kryddiMatvælastofnun varar neytendur við neyslu á kryddinu Timur berry frá framleiðandanum Medelys, en Salmonella greindist í vörunni. Lifa ehf., sem dreifir kryddinu hér á landi, hefur innkallað það í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Salmonella greindist í kryddi sem selt er í KokkaMatvælastofnun varar neytendur við neyslu á kryddinu Timur berry frá framleiðandanum Medelys, en Salmonella greindist í vörunni. Lifa ehf., sem dreifir kryddinu hér á landi, hefur innkallað það í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Innkalla krydd vegna salmonelluMatvælastofnun varar við neyslu á Timur berry-kryddi frá Lifa ehf. (selt í Kokku, Laugarvegi 47) þar sem salmonella greindist í kryddinu. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ökumaður sem ók á átta ára dreng hefur gefið sig framÖkumaður sem ók á átta ára dreng í Mosfellsbæ um kvöldmatarleytið í gær hefur gefið sig fram við lögreglu. Drengurinn var á ferð á reiðhjóli við Vefarastræti 11 þegar ekið var á hann. Drengurinn féll af hjólinu og slasaðist auk þess sem hjólið skemmdist. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Salmonella greindist í kryddiMatvælastofnun varar við neyslu á Timur berry kryddi frá Lifa ehf. sem selt er í Kokka á Laugarvegi í Reykjavík. Salmonella greindist í kryddinu, að því er fram kemur í tilkynningu Mast. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
TGI Fridays lokað og staðurinn innsiglaðurVeitingastaðnum TGI Fridays á Laugavegi 96 í Reykjavík var lokað og hann innsiglaður í gær í tengslum við aðgerðir Skattsins. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Segir ríkisstjórnina ekki ætla að banna olíuleitKristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ekki ætla að banna olíuleit í íslenskri lögsögu og að fjárfestum sem hafi áhuga á frekari rannsóknum verði ekki mætt af fjandskap stjórnvalda. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vilja skýra reglur um sjálfkeyrandi bílaRósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði á dögunum fram þingsályktunartillögu ásamt þingmönnum Sjálfstæðisflokks og Miðflokks um að fela innviðaráðherra að undirbúa og leggja fram á Alþingi frumvarp til breytinga á umferðarlögum, lögum um ökutækjatryggingar og lögum um… Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lögmaður segir ekki réttlætanlegt að leggja allan kostnað á Paul Watson-samtökinPaul Watson-samtökin hafna kröfu Faxaflóahafna um að flytja skipið Bandero sjálf brott úr Akraneshöfn og þvertaka fyrir að leggja út fyrir kostnaði af drætti þess þaðan til Reykjavíkur vegna yfirvofandi illviðris. Skipið var dregið milli hafnanna á sjötta tímanum í dag, þrátt fyrir andmæli. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Stendur ekki til að banna olíuleitÞetta kom fram í svari Kristrúnar við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, á Alþingi í dag. Sigmundur vildi fá skýr svör um hvort stjórnvöld myndu standa í vegi fyrir frekari rannsóknum á olíu og gasi á Drekasvæðinu, norðaustur af Íslandi, og hugsanlegri vinnslu í… Heimildin Innlent Innlendar fréttir
Vilja leggja fjölmiðlanefnd niðurÞingmenn Miðflokksins hafa lagt fram frumvarp um að fjölmiðlanefnd verði lögð niður og stjórnsýsla á sviði fjölmiðlunar einfölduð. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgáttSamráði vegna frumvarps menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins um Ríkisútvarpið er lokið. Fjórar umsagnir birtust og má þar finna harða gagnrýni á frumvarpsdrögin. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Segir „forfallavírus“ herja á ráðherraÓlafur Adolfsson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi fjarveru ráðherra Flokks fólksins í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag og sagði svo virðast sem „forfallavírus“ herjaði á ráðherra þegar erfið mál væru til umræðu. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherraÁður en dagskrárliðurinn Óundirbúnar fyrirspurnir hófst á Alþingi kvaddi Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sé hljóðs um fundarstjórn forseta og kvartaði undan tíðum fjarvistum ráðherra í þeim dagskrárlið. Þingmenn eigi til að grípa í tómt þegar þeir vilja spyrja. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vilja borga fyrir eftirlit með au pairÁttatíu og sjö foreldrar segjast reiðubúnir að greiða gjald til að fjármagna eftirlit með au pair á Íslandi. Þau mótmæla fyrirhuguðu afnámi dvalarleyfa vegna vistráðningar og segja stjórnvöld eiga að styrkja vernd vistráðinna og framfylgja eftirliti sem hefur verið lögbundið frá árinu 2023. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Pawel tekur við formennsku þingflokksins af SigmariÞingmenn Viðreisnar hafa kosið Pawel Bartoszek í embætti þingflokksformanns. Hann tekur við embættinu af Sigmari Guðmundssyni. Sigmar hefur verið í veikindaleyfi í upphafi þings. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaðurPawel Bartoszek hefur verið kosinn nýr formaður þingflokks Viðreisnar. Hann tekur við af Sigmari Guðmundssyni þingmanni sem samkvæmt tilkynningu flokksins snýr fljótlega aftur úr veikindaleyfi en hefur óskað eftir því að taka að sér önnur verkefni á þingi. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir