Sýnir: Innlendar fréttir
10.665 fréttir fundust
Síða 212 af 214
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Þjórsárdalsvegur (32), Hallslaut – FossáSamið hefur verið við Steypudranga ehf. í Vík um endurbyggingu Þjórsárdalsvegar (32-03), frá Hallslaut að Fossá. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Vatnsnesvegur (711) um VesturhópshólaáBrúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar mun byggja brú yfir Vesturhópshólaá þar sem engin tilboð bárust í verkefnið Vatnsnesvegur (711) um Vesturhópshólaá í febrúar. Verkefnið felst í byggingu 17 m langrar brúar, nýbyggingu og endurbyggingu Vatnsnesvegar á 2,2 km kafla og byggingu heimreiða og Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Kortleggja varasama hviðustaðiGerð vindhviðu kortaþekju fyrir helstu þjóðvegi er yfirskrift lokaskýrslu eftir Einar Sveinbjörnsson og Svein Gauta Einarsson hjá Veðurvaktinni ehf. Verkefnið var styrkt af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Samningur vegna Öldu-brúar yfir Fossvog undirritaðurSamningur um hönnun á nýrri brú yfir Fossvog var undirritaður í höfuðstöðvum EFLU í vikunni. Hönnunartillagan, sem var unnin af EFLU í samstarfi við BEAM Architects, bar sigur úr bítum í hönnunarsamkeppni Vegagerðarinnar undir lok síðasta árs. Leynd var yfir samkeppninni Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Mat á umhverfisáhrifum FjarðarheiðargangaVegagerðin hefur unnið skýrslu um mat á umhverfisáhrifum um Fjarðarheiðargöng og skilað til Skipulagsstofnunar. Frestur almennings og umsagnaraðila til að skila umsögnum er til 5. júlí 2022. Um Fjarðarheiði liggur hæsti fjallvegur á Íslandi til þéttbýlisstaðar þar sem aðeins er um eina Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár við DimmuHluti framkvæmda við nýjan Arnarnesveg felst í gerð göngustíga og nýrrar brúar yfir Elliðaár við Dimmu. Um er ræða mikla samgöngubót fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Forhönnun brúarinnar gerir ráð fyrir timburbrú í þremur höfum og þess er sérstaklega gætt Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Klæðing - myndband um klæðingarverkKlæðing er sú aðferð sem mest er notuð á Íslandi við að leggja bundið slitlag. Hin aðferðin er að leggja malbik sem gert er á umferðarmestu vegum landsins. Ef ekki væri fyrir klæðinguna væri mun færri kílómetrar af þjóðvegum lagðir Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Víkurfjara hörfar í vetrarstormumMikið landbrot hefur orðið í fjörunni við Vík í Mýrdal frá áramótum og er rofið sums staðar yfir fimmtíu metrar. Vegagerðin stefnir á að hækka flóðvarnargarða sem liggja meðfram þorpinu. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi á áætlunUmferð verður hleypt á fjögurra kílómetra kafla nýs Suðurlandsvegar frá Selfossi í átt að Hveragerði í sumar. Framkvæmdir við annan áfanga Suðurlandsvegar er á áætlun en verkinu á að ljúka á næsta ári. Samhliða er unnið að því að klára Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Skrifað undir verksamning vegna vegagerðar um TeigsskógBergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Óskar Sigvaldason framkvæmdastjóri Borgarverks skrifuðu undir verksamning í húsakynnum Vegagerðarinnar 10. maí. Verkið snýst um vegalagningu frá þverun Þorskafjarðar að vegamótum við Djúpafjörð m.a. um Teigsskóg. Kaflinn er um 10 km og verkinu á að Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Loftgæðamælar í lykilhlutverkiHaldin var vinnustofa í tengslum við rannsóknarverkefnið Þátttaka almennings í vöktun á svifryki sem unnið var af ReSource International og styrkt af Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Breikkun Suðurlandsvegar (1) frá Bæjarhálsi að HólmsáVegagerðin, í samvinnu við Reykjavíkurborg og Mosfellsbæ, áformar að tvöfalda Suðurlandsveg (Hringveg 1) frá vegamótum við Bæjarháls að Hólmsá ofan Reykjavíkur. Lagður verður 2 + 2 vegur og tengingum fækkað frá því sem nú er ásamt því að gerðir verða nýir reið-, Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Metumferð í apríl á HringvegiMet var sett í umferðinni á Hringvegi í apríl en aldrei hefur mælst jafnmikil umferð í þeim mánuði. Umferðin frá sama mánuði í fyrra jókst um tæpt 21 prósent. Umferðin reyndist 8,5 prósentum meiri en hún hefur áður mælst í Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Opið hús í Vík vegna færslu Hringvegar (1) um MýrdalVegagerðin auglýsir opið hús þriðjudaginn 17.05.2022 milli klukkan 11 og 17 í Kötlusetri, Víkurbraut 28. Íbúar eru hvattir til að mæta og koma á framfæri ábendingum varðandi matsáætlun og umhverfismat framkvæmda sem nú stendur yfir. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Sett upp nýjar stikurVegfarendur sem ekið hafa yfir Hellisheiði undanfarnar vikur hafa flestir tekið eftir því að vegstikur vantar á stórum köflum og sjást þær liggja víða meðfram veginum. Starfsmenn þjónustustöðva Vegagerðarinnar eru nú í óða önn að setja upp stikur og í Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Suðurlandsvegur frá Bæjarhálsi að Hólmsá - opinn kynningarfundurNiðurstöður umhverfismats vegna framkvæmda við tvöföldun Suðurlandsvegar, frá vegamótum við Bæjarháls að Hólmsá austan Hafravatnsvegar, verða kynntar á opnum fundi í Norðlingaskóla, 27. apríl kl. 17-19. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Sjaldan fleiri holur eftir erfiðan veturVorverkin hjá Vegagerðinni eru nú komin í fullan gang, enda sumarið handan við hornið og mikilvægt að tryggja öruggar og greiðar samgöngur eftir langan vetur. Starfsmenn Vegagerðarinnar vinna hörðum höndum að því að gera við holur sem hafa myndast í Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Samkomulag um gerð reiðstígaVegagerðin og Landssamband hestamannafélaga skrifuðu þann 6. apríl undir samkomulag um gerð og útfærslur reiðstíga með stofn- og tengivegum sem lagðir eru bundnu slitlagi. Samkomulagið felur í sér að Vegagerðin skuldbindur sig til að gera reiðfært meðfram vegi þegar lagt Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Gull fyrir BorgarlínunaBorgarlínan hlaut tvenn gullverðlaun í keppni FÍT, Félags íslenskra teiknara, árið 2022. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn föstudaginn 1. apríl sl. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Fullu dýpi náð í LandeyjahöfnHerjólfur ohf. hóf að sigla sjö ferðir á dag í Landeyjahöfn laugardaginn 2. apríl. Fjarlægja þurfti 15 þúsund rúmmetra af sandi til að opna höfnina, en fyrir þann tíma höfðu siglingarnar verið háðar sjávarföllum og farnar fjórar ferðir á dag. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Umferð á Hringvegi eykst í marsUmferðin á Hringveginum í mars jókst um 2,4 prósent en umferðin hafði dregist saman í janúar og febrúar frá fyrra ári. Mikil aukning varð á mælisniði við Mýrdalssand sem bendir til aukningar ferðamannaumferðar. Frá áramótum hefur umferðin þó dregist saman Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Örlítil umferðaraukning á höfuðborgarsvæðinuUmferðin á höfuðborgarsvæðinu jókst um rétt 0,2 prósent í nýliðnum marsmánuði miðað við sama mánuð fyrir ári síðan. Samdráttur hefur verið í umferðinni frá áramótum sem nemur tæpum fjórum prósentum miðað við janúar til mars í fyrra. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Verulega aukið traust í garð VegagerðarinnarTraust til Vegagerðarinnar jókst mjög mikið á milli áranna 2020 og 2021, samkvæmt traustmælingu Gallups. Nú bera 57 prósent landsmanna traust til Vegagerðarinnar samanborið við 43 prósent árið 2020. Engin stofnun eða embætti hjá hinu opinbera eykur traust sitt viðlíka Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Opnað fyrir umferð um Axarveg um helginaUnnið er að því að opna veginn yfir Öxi. Mikill og þykkur ís liggur yfir veginum og nokkurn tíma mun taka að losa hann af. Stefnt er að því að opna fyrir umferð föstudaginn 25. mars en vegfarendur þurfa að Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Almenningssamgöngur á landsbyggðinni - morgunverðarfundurVegagerðin stendur fyrir morgunverðarfundi um almenningssamgöngur á landsbyggðinni fimmtudaginn 31. mars. Gestir geta mætt á fundinn í húsnæði Vegagerðarinnar í Suðurhrauni 3 í Garðabæ eða fylgst með í beinu streymi. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Mæla hemlunarviðnám á nýju malbikiVegagerðin gerði auknar kröfur til hemlunarviðnáms á nýju malbiki árið 2021. Í kjölfarið var tækjabúnaður Vegagerðarinnar uppfærður og tveir nýir veggripsmælar (skiddometer) keyptir frá Moventor í Finnlandi. Einn er í Miðstöð í Garðabæ og annar á Akureyri. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Nýr vegur um ÖxiSamvinnuverkefni um nýjan veg yfir Öxi verður boðið út á árinu. Í byrjun febrúar var haldinn fundur um verkefnið þar sem framkvæmdin var kynnt auk þess sem farið var yfir skilgreiningu samvinnuverkefna og hvernig staðið verður að útboðsferli verkefnisins. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Mikið hringt í 1777 í tíðinniÞað hefur verið mikið að gera hjá starfsfólki Vegagerðarinnar sem svarar í upplýsingasímann 1777. Þangað sækja landsmenn mikið þegar það er ótíð líkt og verið hefur undanfarnar vikur. Á einum degi í lok febrúar bárust t.d. 1.649 símtöl og þann Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Malarslitlög - ekki bara drullaHafdís Eygló Jónsdóttir jarðfræðingur á stoðdeild Vegagerðarinnar hélt afar áhugaverðan fyrirlestur um malarslitlög á rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar sem fram fór í lok október á síðasta ári. Hér fer Hafdís yfir það helsta sem fjallað var um í fyrirlestrinum. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Vegagerðin tilnefnd tvívegis fyrir sjólagsvef sinnTveir vefir sem tengjast Vegagerðinni eru tilnefndir til Íslensku vefverðlaunanna 2021 . Um er að ræða www.sjolag.is og www.borgarlinan.is. Hönnunarstofan Kolofon sá um smíði þessara vefja fyrir og í samvinnu við Vegagerðina. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Árekstrarpúði sannar gildi sittStarfsmenn Vegagerðarinnar þurfa oft að vinna við erfiðar aðstæður úti á vegum í mikilli og hraðri umferð. Til að verja öryggi þeirra eru notaðar varnarbifreiðar sem útbúnar eru svokölluðum öryggispúða. Einn slíkur sannaði gildi sitt á dögunum þegar fólksbíll ók Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Dýpið í LandeyjahöfnÓvenjuslæmt tíðarfar það sem af er ári hefur leitt til þess að ekki hefur verið hægt að sigla eins oft til Landeyjahafnar og var gert árið 2021. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Frábært að fá að vinna við raunverulegt verkefniFranz Sigurjónsson meistaranemi í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands hefur undanfarnar vikur unnið að meistaraverkefni sínu í húsakynnum Vegagerðarinnar í Garðabæ. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Björguðu álftapari í sjávarháskaStarfsmenn þjónustustöðvar Vegagerðarinnar í Vík komu örmagna álftapari til bjargar á dögunum. Álftirnar fengu bað og húsaskjól þar til þær hresstust og flugu á vit nýrra ævintýra. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Varasamar holur í óvenjulegri tíðVegfarendur, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, eru hvattir til að aka varlega og vera sérstaklega vakandi vegna holna sem nú eru að myndast í bundnu slitlagi á vegum. Þetta á sérstaklega við nú þegar tíðin er að breytast og veðurfar skiptist milli Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Aðgengi fyrir hjólastólanotendur á leiðum 51 og 57Hjólastólanotendur geta nú pantað ferðir með landsbyggðavögnum á leiðum 51 (Reykjavík – Selfoss) og 57 (Reykjavík – Akureyri). Þjónustan er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Strætó. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Úthlutað úr Rannsóknasjóði VegagerðarinnarÚthlutun úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2022 er lokið en umsóknarfrestur rann út 28. janúar. Alls bárust 134 umsóknir og sótt var um samtals rúmlega 403 milljónir króna. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Gríðarlegur samdráttur í umferð á HringvegiUmferðin í febrúar á Hringveginum dróst saman um 16,4 prósent í febrúar og hefur aldrei á þessum árstíma dregist jafn mikið saman. Sama á við um umferðina frá áramótum. Hér munar mestu um samdrátt í umferð um Hellisheiði sem kemur Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Deiliskipulag ArnarnesvegarTillaga að nýju deiliskipulagi Arnarnesvegar 3. áfanga verður kynnt 3. mars 2022 klukkan 17.00 á streymisfundi en frestur til að senda athugasemdir hefur verið framlengdur til 11. mars. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Kynningarfundur um ÖlfusárbrúVegagerðin boðar til opins kynningarfundar föstudaginn 18. febrúar kl. 10 um fyrirhugað útboð á samvinnuverkefninu Hringvegur um Ölfus. Verkefnið felur í sér færslu Hringvegar norður fyrir Selfoss með byggingu nýrrar brúar á Ölfusá við Efri Laugardælaeyju. Fundurinn verður í beinu Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Hellisheiðin oft erfið við að etjaVegurinn yfir Hellisheiði er umferðarþungur sem gerir vetrarþjónustu hans erfiðari en ella. Í myndbandi sem tekið var upp eftir óveðrið mánudaginn og þriðjudaginn 8. og 9. febrúar síðastliðinn koma fram þær krefjandi aðstæður sem Vegagerðin og verktakar eiga við að Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Morgunfundur um Samgöngusáttmálann - Sagan og staðanSaga og staða verkefna á vegum Samgöngusáttmálans verður til umfjöllunar á morgunfundi Vegagerðarinnar, þriðjudaginn 15. febrúar kl. 9.00–10.15. Á fundinum verður farið yfir helstu framkvæmdir og áætlanir sem tengjast sáttmálanum, hvernig verkefnum hefur miðað fram á við og hvaða framtíðarsýn Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Lokið við tvöföldun Vesturlandsvegar í MosfellsbæForstjóri Vegagerðarinnar og fulltrúi Mosfellsbæjar skrifuð undir verksamning við Loftorku Reykjavík ehf. á föstudag vegna lokaáfanga við endurbætur á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Minni umferð á höfuðborgarsvæðinuUmferðin á höfuðborgarsvæðinu í janúar reyndist rúmum tveimur prósentum minni í ár en í sama mánuði í fyrra. Umferðin dróst saman rétt eins og á Hringveginum en þar dróst hún einmitt aðallega saman í mælipunktum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Met slegið í ölduhæð á GarðskagadufliÖldumælingardufl við Garðskaga mældi ítrekað öldur yfir 30 metra í óveðrinu sem gekk yfir landið síðdegis þann 7. febrúar og stóð til aðfaranótt mánudags 8. febrúar. Slík há ölduhæð er afar sjaldgæf við Ísland, og fyrra met í ölduhæð á Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Minni umferð á Hringvegi í janúarUmferðin á Hringveginum dróst saman um nærri sex prósent í janúar miðað við janúarmánuð í fyrra. Umferð dróst mest saman í nágrenni höfuðborgarsvæðisins en jókst hinsvegar töluvert á Austurlandi. Umferð um teljara á Mýrdalssandi jókst mikið og meira en tvöfaldaðist. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Axarvegur (939) nýr vegur yfir Öxi - kynningarfundurFundurinn fer fram í beinu streymi Vegagerðin boðar til opins kynningarfundar föstudaginn 4. febrúar kl. 09:00 um fyrirhugað útboð í samvinnuverkefninu „Axarvegur (939) – nýr vegur yfir Öxi. “ Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Fjöldi umsókna barst til Rannsóknasjóðs VegagerðarinnarAlls bárust 135 umsóknir um verkefnastyrk til Rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar upp á samtals 405.830.844 krónur. Rannsóknasjóðurinn hefur 150 milljónir króna til umráða á þessu ári. Tilkynnt verður um úthlutun úr sjóðnum í byrjun mars. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Rannsókn á landmótun fornra ísstraumaLandmótun fornra ísstrauma á Norðausturlandi er yfirskrift samantektarskýrslu rannsókna 2019-2021 eftir Ívar Örn Benediktsson við Háskóla Íslands. Verkefnið var styrkt af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Vegur um Teigsskóg í útboðStefnt er að því að bjóða út framkvæmdir við veg um Teigsskóg í Þorskafirði, frá Þórisstöðum að Hallsteinsnesi, í lok janúar eða byrjun febrúar, að sögn Sigurþórs Guðmundssonar, verkefnastjóra á framkvæmdadeild Vegagerðarinnar. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir