Sýnir: Innlendar fréttir
10.691 fréttir fundust
Síða 166 af 214
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Virkjunarleyfi í höfnUmhverfis- og orkustofnun veitti Orkubúi Vestfjarða 1. júlí síðastliðinn virkjunarleyfi fyrir 9,9 MW Kvíslatunguvirkjun í Selárdal í Strandabyggð. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Margrét Helga skipuð dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystraMargrét Helga var settur dómari við Héraðsdóm Vestfjarða 2021, þar sem hún jafnframt gegndi störfum dómstjóra, og við Héraðsdóm Reykjaness 2025. StjórnarráðiðDómsmálaráðherra hefur skipað Margréti Helgu Kristínar Stefánsdóttur í embætti dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra frá 1. október. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímannSævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, segir það ekki rétt að börn yngri en tólf ára þurfi að nota gleraugu allan tímann á meðan almyrkvinn stendur yfir þann 12. ágúst. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutningMagnús Árni Skúlason, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Reykjavík Economics, segir nýjar tölur um aðflutning erlendra ríkisborgara til landsins renna stoðum undir þá tilgátu að ferðaþjónustan og byggingargeirinn séu fullmannaðir geirar sem stendur. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni„Velgengni íslensks sjávarútvegs byggist á yfirráðum yfir sjávarauðlindinni og markvissri fiskveiðistjórnun sem grundvallast á vísindum. Á þeim grunni hefur orðið til öflug atvinnugrein sem skapar verðmæti og fjölbreytt störf og styður við byggðafestu um land allt. “ MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vara við hvössum vindi við fjöllSpáð er allhvassri norðaustanátt í vindstrengjum við fjöll á norðvestan- og vestanverðu landinu í dag og víðar um sunnan og vestanvert landið á morgun. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum„Mér hefur þótt það vanta í umræðu um loftslagsmál í hvað peningarnir fara og að það sé svona sannfæring hjá skattgreiðendum um að það sé verið að beina þeim í ábatasöm verkefni. Ég get bara fullyrt það að hjá Loftslags- og orkusjóði þá tókst það á árinu 2025. “ Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Aðsend grein: Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því?Eldarnir í Frakklandi og á Spáni hafa haft skelfilegar afleiðingar. Meira en 220.000 manns flúðu undan eldtungunum vestan við Bordeaux. Fyrir utan Madríd sviðu eldar tvöfalt stærra svæði en höfuðborgin og hröktu tæplega 90.000 manns frá heimilum sínum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Rigning eða súld á öllu landinuÍ dag spáir norðaustan 10 til 15 metrum á sekúndu um landið norðvestanvert en sunnan 5 til 10 sunnan- og austanlands. Það má búast við rigningu eða súld á öllu landinu og hita á bilinu 7 til 12 stig. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Stöðvaður tvö kvöld í röðLögreglan sem sinnir verkefnum í Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ stöðvaði sama ökumann í gærkvöldi, annað kvöldið í röð. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Belgíski flugherinn sinnir gæslu á ÍslandiFlugsveit belgíska hersins kemur til landsins í lok vikunnar til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Þotugildra verður sett upp á Akureyrarflugvelli. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráðaSamtök fyrirtækja í sjávarútvegi telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða yfir fiskveiðiauðlindinni og afleiðingunum af því, áður en kosið verði um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Belgíski flugherinn sinnir loftrýmisgæslu öðru sinniFjórar F-16 orrustuþotur belgíska flughersins og 110 liðsmenn eru væntanlegir til landsins nú í vikulok þegar loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins hefst. Þetta er í annað sinn sem Belgar sinna eftirlitinu. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Landaskipting útflutnings stórlega bjöguðÍ nýrri skýrslu Rannsóknarmiðstöðvar um samfélags- og efnahagsmál sem ber heitið „Utanríkisverslun Íslands: Raunveruleg mynd“ er farið yfir gögn úr innlendum og erlendum gagnabönkum sem lúta að utanríkisviðskiptum Íslands í því skyni að draga upp skýrari mynd af því hverjar helstu viðskiptaþjóðir… MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tafir á siglingum Sæfara í sumar bagalegar en fyrirhugaðar þjónustuskerðingar enn verriHalla Ingólfsdóttir, formaður hverfisráðs Grímseyjar, segir þær tafir á siglingum bagalegar sem orðið hafa eftir að minniháttar skemmdir urðu á skrúfubúnaði Grímseyjarferjunnar Sæfara í júní. Þær valda því að siglingin tekur oft um tíu til fimmtán mínútum lengri tíma en vanalega. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tafir á siglingum Sæfara í sumar bagalegar en fyrirhugaðrar þjónustuskerðingar enn verriHalla Ingólfsdóttir, formaður hverfisráðs Grímseyjar, segir þær tafir á siglingum bagalegar sem orðið hafa eftir að minniháttar skemmdir urðu á skrúfubúnaði Grímseyjarferjunnar Sæfara í júní. Þær valda því að siglingin tekur oft um tíu til fimmtán mínútum lengri tíma en vanalega. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tafir á siglingum Sæfara í sumar bagalegar en fyrirhugðarar þjónustuskerðingar enn verriHalla Ingólfsdóttir, formaður hverfisráðs Grímseyjar, segir þær tafir á siglingum bagalegar sem orðið hafa eftir að minniháttar skemmdir urðu á skrúfubúnaði Grímseyjarferjunnar Sæfara í júní. Þær valda því að siglingin tekur oft um tíu til fimmtán mínútum lengri tíma en vanalega. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kertum fleytt til minningar um fórnarlömbinFriðarsinnar komu saman víða um land í kvöld og fleyttu kertum til minningar um þau sem létust er Bandaríkjanmenn vörpuðu kjarnorkusprengjum á japönsku borgirnar Hírósíma og Nagasakí árið 1945. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Evrópusambandið er ekki konfektkassi“„Evrópusambandið er ekki konfektkassi þar sem við getum farið og valið okkur bestu molana og sagt nei við hinum,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lokanir á Arnarnesvegi vegna framkvæmdaArnarnesvegi verður lokað milli Fífuhvammsvegar og Reykjanesbrautar á morgun vegna malbikunarframkvæmda, að því gefnu að veður leyfi. Fram kemur í tilkynningu á vef Garðabæjar að fræsa eigi hringtorgið við Smárahvammsveg. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Hagkerfið virðist í ákveðnum herpingi“Viðskiptaráð birtir í dag niðurstöður árlegrar greiningar á stöðu íslenska hagkerfisins og kennir þar ýmissa grasa. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Pennavinurinn reyndist ChurchillÍ nýjasta riti hins virta kampavínshúss Pol Roger er rifjuð upp óvenjuleg saga úr Reykjavík á stríðsárunum sem fáir Íslendingar þekkja. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Slökktu eld á KársnesiEldur kom upp við Kópavogshöfn á Kársnesi nú á tíunda tímanum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi tvo bíla á staðinn en þegar þangað var komið sást eldur í ruslahrúgu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Eldur í KópavogshöfnSlökkvilið var kallað út vegna elds í Kópavogshöfn á Kársnesi í kvöld. Samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins voru tveir slökkviliðsbílar sendir á vettvang, annar frá stöðinni í Skógarhlíð og hinn frá stöðinni í Hafnarfirði. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnarÁfram var nokkuð um innbrot og þjófnaði miðsvæðis í Reykjavík í dag, samkvæmt skrá lögreglu yfir verkefni dagsins. Þá gerðust tveir ökumenn á höfuðborgarsvæðinu sekir um það að vera í þriðja skipti teknir án ökuréttinda. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotannTvöfalda þyrfti flota Landhelgisgæslunnar og koma upp annarri bækistöð á landsbyggðinni ef vel ætti að vera að mati yfirflugsstjóra gæslunnar. Yfirvöld hafi verið jákvæð fyrir slíkri stækkun en nú reyni á efndir. Mikil aukning varð á útköllum hjá gæslunni í sumar,. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kallar eftir heildstæðu kerfismatiErna Bjarnadóttir hagfræðingur hefur skrifað töluvert um mikilvægi íslenska dýraheilbrigðiskerfisins. Umfjöllun hennar spannar allt frá dýravelferð og matvælaöryggi yfir í sýklalyfjaónæmi og nú síðast, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær, setti… MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lifandi dýr verði „rautt strik“Vilhjálmur Svansson, dýralæknir hjá Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, segir að mikilvægt sé að íslensk stjórnvöld gangi fram með kröfu um ófrávíkjanlega undanþágu vegna innflutnings lifandi dýra, komi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Heilmikið ævintýri á handboltamótunumUm 30 Íslendingar eru nú í Belgrad, höfuðborg Serbíu, og hafa þar fylgt U18 ára landsliði karla í handknattleik eftir á EM. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Heimalningurinn Messi í vinnuskólanum á HelluHeimalningurinn Messi á Hellu er tíu daga gamall. Hann hefur sótt vinnuskólann í þorpinu og leikið sér með fótbolta. Fjölskylda fann lambið langt úti í mýri rétt við þorpið á Hellu, eitt og yfirgefið. Hún ákvað að taka það heim til sín, sinna því þar og gefa því úrvalsmjólk úr pela. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáliSakborningar í umfangsmiklu fjárkúgunarmáli eru nú tíu talsins. Brotaþolar eru þrír en lögreglan hefur upplýsingar um að þeir kunni að vera talsvert fleiri og hvetur fólk sem kann að hafa orðið fyrir barðinu á svikurum að stíga fram. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Eins og að lenda í hryllingsmynd“Eftir mikil áföll ætlar Kolbrún María Garðarsdóttir að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu til minningar um móður sína og dóttur sem báðar létust fyrr á þessu ári. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Samband komst á en ekkert heyrðistNýjar upplýsingar úr prófunum Neyðarlínunnar benda til þess að símtalið eftir alvarlegt vinnuslys í Fljótsdal á þriðjudag hafi í raun borist Neyðarlínunni en símasamband verið svo slæmt að hvorki neyðarvörður né tilkynnandi heyrðu hvort í öðru. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Óvenju margar fæðingar í júlíÓvenju mikið gekk á á fæðingardeild Landspítalans í júlímánuði en yfir 350 börn fæddust þar í liðnum mánuði. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sólmyrkvagleraugu á, af og aftur áÓafturkræfur skaði getur orðið á augum ef horft er beint í sólina og venjuleg sólgleraugu duga ekki til að verja augun fyrir skaðlegum geislum frá sólinni. Almyrkvi verður sjáanlegur frá vesturhluta landsins 12. ágúst. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvöldsÍbúi í Hamraborg þar sem niðurrif stendur yfir vegna byggingu nýs miðbæjar Kópavogs segir hávaðann óbærilegan. Hann sér nú ekkert út um gluggann nema viðarplötu. Annar íbúi segir að svo virðist vera sem það hafi hreinlega gleymst að fólk búi í Hamraborg. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lokanir á Arnarnesvegi og við SundagarðaSundagarðar verða lokaðir milli Sundaborga og Sundabakka föstudaginn 7. ágúst. Til stendur að fræsa akrein ef veður leyfir. Framkvæmdir myndu þá standa yfir frá tólf á hádegi fram til fjögur síðdegis. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Varar við vindhviðum á VestfjörðumVeðurfræðingur Vegagerðarinnar varar vegfarendur í kvöld og á morgun við ákveðinni norðaustanátt með vindhviðum allt að 25 metrum á sekúndu í vindstrengjum á Vestfjörðum, þá einkum á fjallvegum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Varað við vindhviðum á VestfjörðumVegagerðin varar við ákveðinni norðaustanátt í kvöld og á morgun með vindhviðum um 25 metra á sekúndu í vindstrengjum á Vestfjörðum, einkum á fjallvegum. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir