Sýnir: Innlendar fréttir
10.691 fréttir fundust
Síða 146 af 214
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Þekktur bikblæðingakafli malbikaðurHringvegur (1) við veitingastaðinn Baulu í Borgarfirði verður malbikaður í vikunni. Um er að ræða 1,6 kílómetra langan kafla sem nær frá Gljúfurárbrú og um 1 km fram yfir gatnamót Borgarfjarðarbrautar (50) í norður. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
ESB-aðild getur fært störf og verðmæti úr landiVerðmætasköpun íslensks sjávarútvegs byggist ekki aðeins á þeim fiski sem dreginn er úr sjó heldur á samþættri virðiskeðju veiða, vinnslu og markaðssetningar. Fullvinnsla, markaðsstarf, tæknivæðing og nýting hliðarafurða halda störfum, þekkingu og verðmætum innanlands. Aðild að ESB gæti skert… Frettin - Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kristín fyrsti sýslumaður ÍslandsKristín Þórðardóttir hefur verið skipuð í nýtt embætti sýslumanns Íslands og tekur við stöðunni í dag. Sjö sóttu um embættið sem var auglýst til umsóknar í mars. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fullljóst að lífi annarra verði ekki stefnt í hættu við leitinaÞrír erlendir sérfræðingar mátu mögulegar aðgerðir til að ná líki Lúðvíks upp. Í maí fékk lögreglustjórinn á Suðurnesjum minnisblað frá verkfræðistofunni COWI sem lagði mat á aðstæður á vettvangi í Grindavík. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landiðDómsmálaráðherra hefur skipað Kristínu Þórðardóttur í nýtt embætti sýslumanns. Hún á að byrja að undirbúa sameningu allra sýslumannsembætta landsins í eitt sem tekur gildi um áramótin. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minnaKristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir vaxtahækkun Seðlabankans vonbrigði. Hún viðurkennir að hækkanir opinberra gjalda hafi haft áhrif á verðbólgu en segir þær ekki óvenjumiklar í sögulegu samhengi. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vinnuveitandi brotaþola: „Það var ekkert sem passaði”Vinnuveitandi brotaþola í Reykholtsmálinu gaf skýrslu á fimmta degi aðalmeðferðar. Hann segir grunsemdir sínar hafa vaknað strax á mánudegi eftir að ofbeldið átti sér stað þegar brotaþoli hafi ekki mætt til vinnu. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Ég get ekki svarað því“Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, telur ómögulegt að segja til um hvort Íslendingar geti staðið utan sjávarútvegsstefnu sambandsins. Það muni mögulegar samningaviðræður snúast um. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Útgerðarfólk og YouTube-stjarna tekjuhæst á SuðurnesjumÞað er þó ekki fiskur heldur nýsköpun sem situr í öðru sæti listans. Hinn tæplega þrítugi Grétar Ágúst Agnarsson er í öðru sæti samkvæmt lista Heimildarinnar en hann er með 344 milljónir í árstekjur. Heimildin Innlent Innlendar fréttir
Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“Tíu vitni komu fyrir dómara í aðalmeðferð í Reykholtsmálinu, þar á meðal yfirmaður og vinkonur brotaþola sem fór strax að gruna að eitthvað óeðlilegt hefði átt sér stað. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Aðstoð við heimanám fyrir börn í grunnskólumSamtökin Heimili og skóli og Reykjavíkurborg munu taka höndum saman og bjóða upp á aðstoð við heimanám fyrir grunnskólabörn á Borgarbókasafninu í Kringlunni og Borgarbókasafninu í Gerðubergi skólaárið 2026-2027. Samningur þessa efnis var undirritaður af… Frettin - Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hafa tryggt loftferðaréttindi á FilippseyjumÍslensk stjórnvöld hafa samið við stjórnvöld á Filippseyjum um loftferðaréttindi. Fram að þessu hefur enginn loftferðasamningur verið í gildi milli ríkjanna. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Viðræðurnar fóru fram að frumkvæði Íslands. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
RÚV ræður reynsluboltaÞá hefur Rúnar Pálmason verið ráðinn einn umsjónarmanna fréttaskýringaþáttarins Spegilsins og hefur störf í byrjun september. Rúnar starfaði um 15 ára skeið hjá Morgunblaðinu áður en hann hóf störf hjá Landsbankanum árið 2014, fyrst sem vefritstjóri og síðar upplýsingafulltrúi. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Örn Guðmundsson ráðinn framkvæmdastjóri Háskóla ÍslandsÖrn býr yfir 25 ára reynslu af stjórnunar- og leiðtogastörfum innan stórra skipulagsheilda. Hann var framkvæmdastjóri COWI Ísland ehf. á árunum 2023–2024 og þar á undan framkvæmdastjóri Mannvits hf. árin 2018–2023, þar sem hann gegndi einnig starfi fjármálastjóra árin 2015–2018. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Sótti kíló af kókaíni á pósthúsiðMaður hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa mánudaginn 8. júní 2026 á pósthúsinu við Síðumúla í Reykjavík tekið á móti tæpum þrettán hundruð grömmum af kókaíni. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Nýtt Hafnarhús rís við ViðeyjarsundFyrirhugað er að nýja Hafnarhúsið verði um 3.000 fermetrar að stærð. Það mun hýsa bæði skrifstofu- og þjónustustarfsemi Faxaflóahafna ásamt sérhæfðri vinnu- og verkstæðisaðstöðu. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Starfsmenn sáu ekki áverka á fórnarlambinuAnnar starfsmaður sagði Andra fyrst hafa komið einn í verslunina en honum verið tjáð að brotaþolinn þyrfti að mæta sjálfur. Andri sneri síðar aftur með brotaþolann og Ingunni Rut Sigurðardóttur. Þau hefðu stutt við manninn þegar þau gengu inn. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokkiYfir 15 þúsund keppendur eru nú skráðir í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer á morgun og samkvæmt tilkynningu styttist í að uppselt verði í heilt og hálft maraþon. Uppselt er í tíu kílómetra í keppnisflokki en enn hægt að kaupa almannen hlaupamiða í tíu kílómetra hlaup. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Jakob játar áreitni í garð samstarfskonuJakob Birgisson, grínisti og fyrrverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, viðurkennir að hafa áreitt samstarfskonu sína kynferðislega á starfsmannaskemmtun dómsmálaráðuneytisins. Málið kom upp á yfirborðið eftir að skjáskot með ásökunum konunnar fór í dreifingu á samfélagsmiðlum. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Þorbjörg leggur til að Ásgerður verði skipuð dómari við HæstaréttÁsgerður Ragnarsdóttir lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 2004 og viðbótarmeistaragráðu (LL. M.) frá Cambridge-háskóla árið 2008. Hún öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 2005 og fyrir Hæstarétti árið 2016. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚVKristján Kristjánsson, fyrrverandi stjórnandi útvarpsþáttarins Sprengisands á Bylgjunni um árabil, hefur verið ráðinn sem einn umsjónarmanna Kastljóssins á Ríkisútvarpinu. Þá hefur Rúnar Pálmason, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Landsbankans, verið ráðinn sem fréttamaður á ríkisfjölmiðlinum. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Helsta forsenda fyrir réttlætingu hvalveiða sé brostinForystumenn dýra- og umhverfisverndarsamtaka segja markað fyrir hvalkjöt vera brostinn og kalla eftir því að stjórnvöld stöðvi veiðarnar. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu forystumanna samtakanna. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Dæmdur fyrir smygl á kókaíni í pottumHéraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann til fimmtán mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnasmygl. Hann tók á móti tveimur sendingum með samanlagt tæplega 1,3 kíló af kókaíni með 80 til 81 prósents styrkleika. Kókaínið var falið í tveimur pottum í hvorri sendingu. Maðurinn játaði sök fyrir dómi. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Örn verður framkvæmdastjóri HÍÖrn Guðmundsson alþjóðaviðskiptafræðingur hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Háskóla Íslands. Hann tekur við af Guðmundi Ragnari Jónssyni sem fer á eftirlaun eftir áramót. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvarFaxaflóahafnir hyggjast reisa nýjar höfuðstöðvar sínar nærri Skarfabakka við Sundahöfn. Auglýst hefur verið forval um þátttöku í lokuðu útboði á hönnun nýs Hafnarhúss en með framkvæmdinni verður sameinuð meginstarfsemi á einum stað. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Þorvaldur kvartaði undan stýrivöxtum í 200 þúsund króna bolVakti það athygli margra að meðan Þorvaldur kvartaði var hann klæddur í bol frá Dolce and Gabbana sem kostar tæpar 200 þúsund krónur. Forstjórinn hefur verið þekktur fyrir að lifa hátt og sem dæmi á hann Bentley-bíl sem kostar 50 milljónir króna. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Snerti samstarfskonu á ósæmilegan háttJakob Birgisson uppistandari og fyrrverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra gengst við því að hafa snert samstarfskonu sína í ráðuneytinu á ósæmilegan hátt. Hann lét af störfum hjá ráðuneytinu í kjölfarið og hætti allri áfengisneyslu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Erlendir sérfræðingar meta aðstæður við leit að LúðvíkÞrír erlendir sérfræðingar hafa verið fengnir til þess að leggja hlutlaust mat á mögulegar aðgerðir til að ná upp jarðneskum leifum Lúðvíks Péturssonar sem lést í vinnuslysi þegar hann féll í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Morgunblaðið greinir frá. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við HafravatnBjörgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins aðstoðuðu í gærkvöldi við að ná svifvæng niður úr tré við Hafravatn. Vinsælt er að svífa á svifvæng á svæðinu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Starfsmenn Símans gefa skýrslur í ReykholtsmálinuFimmti dagur aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu svokallaða er hafinn og í dag verða teknar skýrslur af íbúum í Reykholti en einnig starfsmönnum Símans ehf. Fjallað hefur verið um að brotaþoli hafi verið færður inn í verslun Símans af sakborningum svo hægt væri að setja upp rafræn skilríki í síma hans. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Nýnasistar ofsóttu tannlæknanema í ReykjavíkÍ skáldsögu sinni Korngult hár, grá augu (2019) byggir Sjón á raunverulegum rannsóknum á þessum hópum og leiðtoga þeirra, sem hann kallar Gunnar Kampen í bókinni. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðannaÍslensk umhverfis- og dýravelferðarsamtök segja markaðsbrest fyrir sölu hvalkjöts undirstrika tilgangsleysi veiðanna. Í yfirlýsingu kalla samtökin eftir því að stjórnvöld axli ábyrgð og stöðvi veiðarnar. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Útlit fyrir að jökulhlaupið í Múlakvísl sé í rénunAllt bendir til þess að jökulhlaup í Múlakvísl sé í rénun. Rafleiðnin í ánni lækkaði í nótt og að sögn Elísabetar Pálmadóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands, eru líkur á að hlaupið taki enda á næstu dögum. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ferðamaður kom á lögreglustöðina og tilkynnti glæpNokkuð var um umferðarlagabrot. Fjórir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og var einn þeirra jafnframt grunaður um að aka án ökuréttinda. Tveir aðrir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um ölvun við akstur og einn var grunaður um að aka sviptur ökuréttindum. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Aska konu fjarlægð úr gröf í skjóli nætur: „Hér hvílir amma, eða fæturnir á henni“„Hér hvílir amma, eða fæturnir á henni. Það er ekki mikið ..., það var svona smá eftir af ösku,“ segir Aðalbjörg Jónsdóttir. Hún segir frá því hvernig gröf ömmu hennar var opnuð að nóttu til í Sóllandi í Fossvogskirkjugarði í Reykjavík í fyrrasumar og stór hluti öskunnar af henni tekinn úr… Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Heldur hvasst og vætusamt veður framundan en hlýtt og þurrt eystraÍ dag fikrar lægðardrag sig nær vesturhluta landsins með smávægilegri vætu til að byrja með. Búast má við suðvestanstrekkingi norðvestantil. Annars gola, stinningsgola, kaldi eða stinningskaldi og dálítil væta. Spáð er bjartviðri að mestu austanlands með allt að 19 stiga hita. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
SFS telur að Evrópusambandsaðild geti fært störf úr landi og skert aflaheimildirSamtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, líta svo á að aðild Íslands að Evrópusambandinu gæti orðið til að skerða aflaheimildir landsins og færa störf úr landi. Samtökin segja jafnframt að aðild geti opnað fyrir erlendar fjárfestingar og eignarhald í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ökuþórinn sem varð skattakóngurDaníel Sigurðsson stofnaði DS lausnir árið 2002 og hefur unnið jafnt og þétt að uppbyggingu fyrirtækisins í um aldarfjórðung. Hann seldi 70 prósent af fyrirtækinu til Fagkaupa á síðasta ári sem skýrir það að hann er tekjuhæsti Íslendingurinn í ár. Heimildin Innlent Innlendar fréttir
Boða samnorræna stefnu um samfélagsmiðlanotkun barna og ungmennaNorðurlöndin hafa í hyggju að gefa út sameiginlega stefnu um samfélagmiðlanotkun barna og ungmenna. Þetta segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, en hún og kollegar hennar funduðu í Kaupmannahöfn í dag. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Finnur enga annmarka eftir sjálfstæða eftirlitsferð í BanderoPaul Watson og lögmenn hans segja að lög hafi verið brotin þegar skipið var kyrrsett og segja skipið vel haffært. Nú er Bandero kominn upp á Akranes. Í dag barst tilkynning frá Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals hf. um að sýslumaðurinn á Vesturlandi hefði kyrrsett Bandero að kröfu Hvals. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðuHópreið yfir Húnavatn þykir eitt mesta ævintýrið í hestaferðum úr Vatnsdal. Fyrirtækið er orðinn einn stærsti vinnuveitandi sveitarinnar með á annan tug starfsmanna en viðskiptavinirnir eru mestmegnis konur. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Frábært tækifæri til að geta gefið til baka“Hlaupari sem hefur safnað áheitum upp á fjórar milljónir króna fyrir Píeta samtökin í Reykjavíkurmaraþoninu segist vilja gefa til baka eftir að hafa glímt við kvíða á yngri árum. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hnúfubakur á svamli skammt frá ReykjavíkHnúfubakur sást svamlandi í Faxaflóa í dag skammt frá Reykjavík. Ferðamenn hjá Sólfarinu við Sæbraut ráku upp stór augu þegar þau sáu dýrið. Leiðsögumaður segir það ekki algengt að sjá slík sporðaköst nálægt landi. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Reiknar með ráðningu starfsfólks á MöltuMarkmiðið með kaupum Icelandair á 49% hlut í Fly Play Europe Holdco er að ná fram einföldun og hagræðingu í starfsemi Icelandair á Íslandi, segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair. Tilkynnt var um kaupin í dag en Fly Play Europe Holdco á dótturfélag á Möltu með maltneskt flugrekstarleyfi. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Samfylkingin mælist stærst á Alþingi á nýSamfylkingin mælist aftur stærsti flokkurinn á Alþingi í nýrri könnun Maskínu sem gerð var í ágúst. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna þriggja er 42,9% og breytist lítið milli kannana. Vísir greinir frá. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir