Sýnir: Héraðsfréttir
2.702 fréttir fundust
Síða 8 af 55
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Nafnskírteini – örugg og áreiðanleg persónuskilríkiÍ ljósi frétta undanfarna daga um falsanir og misnotkun á skilríkjum ungmenna vill Þjóðskrá Íslands vekja athygli á að stofnunin gefur út örugg og áreiðanleg persónuskilríki í formi nafnskírteina. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Tillaga um líkamsræktarhús við Hástein auglýstVestmannaeyjabær hefur auglýst tillögu að breyttu deiliskipulagi íþróttasvæðisins við Hástein. Samkvæmt tillögunni má reisa allt að 950 fermetra líkamsræktarhús á tveimur hæðum norðvestan við Íþróttamiðstöðina. Tillagan gerir einnig ráð fyrir nýju anddyrishúsi sem getur orðið allt að 680 fermetrar. Tígull.is Héraðsfréttir
Nýtt nám í kennslu íslensku sem 2. málsHáskólaráð Háskólans á Akureyri (HA) samþykkti á fundi sínum 26. september sl. að setja á laggirnar nýtt nám í kennslu íslensku sem annars máls við kennaradeild háskólans. Náminu er ætlað að mæta vaxandi þörf fyrir sérhæfingu kennara í íslenskum skól... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Elín heiðruð fyrir störf í þágu ferðaþjónustu á NorðurlandiUppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi fór fram á Norðurhjarasvæðinu þann 15. október en þar komu ferðaþjónustuaðilar saman, kynntu starfsemi sína og fögnuðu árangri liðins árs. Á hátíðinni voru veittar viðurkenningar í þremur flokkum. Elín S. Feykir.is Héraðsfréttir
Talsverðar framkvæmdir á GrenivíkViðbygging við leikskólann Krummafót á Grenivík eru langt komin. Hún er Hún er nálægt 150 fermetrum að stærð og mun hýsa alla starfsmannaaðstöðu, stoðþjónustu, fundar- og samkomuaðstöðu. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Miðar vel í vegagerð á JökuldalÍ staðinn vinnum við frá klukkan átta á kvöldin til átta á morgnana. Það er nánast eins og að vinna á daginn því vinnuljósin á vélunum eru orðin svo öflug. Þetta hefur gerst síðustu 10-15 ár. Austurfrétt - Fréttir Héraðsfréttir
Aðskotahlutur í hnetublönduMatvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Bónus Hnetublöndu með trönuberjum og pistasíum vegna aðskotahluts (trábita) sem fannst í einum poka. Fyrirtækið Aðföng hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Héldu haustfund SSVÁrlegur haustfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fór fram í síðustu viku á Varmalandi í Borgarfirði. Á fyrri degi þinghaldsins var kynnt fjárhagsáætlun samtakanna fyrir næsta ár. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Tónlistarveisla fram undan á TröllaskagaHausttónleikar Tónlistarskólans á Tröllaskaga (TÁT) hefjast í dag, mánudaginn 19. október, og verða alls sex tónleikar haldnir í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð á næstu vikum. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Skallagrímur beið lægri hlut gegn SelfossiSkallagrímur tapaði fyrir Selfossi, 86:69, í 1. deild karla í körfuknattleik í Vallaskóla á Selfossi fimmtudagskvöldið 15. október. Heimamenn lögðu grunninn að sigrinum með öflugum öðrum leikhluta þar sem þeir skoruðu 34 stig gegn 20 stigum Borgnesinga. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Probygg bauð lægst í breytingar á KerhólsskólaTíu önnur tilboð bátust í verkið. E. Sigurðsson ehf bauð 99,1 milljón króna, Borg byggingarlausnir 106,9 milljónir, Tindhagur 108,4 milljónir, Verkeining 108,6 milljónir, K16 109,6 milljónir, All Verk 112,1 milljón, Alefli 113,7 milljónir, HR smíði 123,3 milljónir, Vörðufell 130,0 milljónir og… Sunnlenska - Fréttir Héraðsfréttir
Svona framkoma verður ekki liðinTryggvi Jóhannsson formaður Einingar Iðju bregst í harðorðri yfirlýsingu á heimasíðu félagsins ókvæða við fréttum af fyrirhugaðri hækkun á gjaldskrá Norðurorku um næstu áramót. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Hækkanir Norðurorku - Svona framkoma verður ekki liðinTryggvi Jóhannsson formaður Einingar Iðju bregst í harðorðri yfirlýsingu á heimasíðu félagsins ókvæða við fréttum af fyrirhugaðri hækkun á gjaldskrá Norðurorku um næstu áramót. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
„Svona framkoma verður ekki liðin“Tryggvi Jóhannsson, formaður verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju lýsir, miklum vonbrigðum með þá ákvörðun stjórnar Norðurorku að vilja hækka gjaldskrá fyrirtækisins meira um næstu áramót en yfirlýst stefna Akureyrarbæjar er. Þetta kemur fram í yfirlýsin... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Niðurstöður PISA verða afhentar sveitarfélögum og skólumMennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið ákvörðun um að upplýsa þau sveitarfélög og grunnskóla, sem eftir því leita, um sínar niðurstöður í PISA könnun fyrir 2025. Þau sveitarfélög sem þegar hafa óskað eftir sínum niðurstöðum munu fá þær afhentar að lokinni frekari gagnagreiningu ráðuneytisins. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Ný lög um bókhaldDrög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um bókhald hafa verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpinu er ætlað að leysa af hólmi bókhaldslög frá árinu 1994 og færa reglurnar til samræmis við nútímaumhverfi en í dag er bókhald að mestu fært og varðveitt með rafrænum hætti. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Vegagerðin gerir athugasemdir við skipulag við MalarvöllVegagerðin hefur gert athugasemdir við skipulag íbúðabyggðar og leikskóla við Malarvöll og Löngulág. Þetta kom fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyjabæjar mánudaginn 12. október, þar sem skipulagsfulltrúi kynnti stöðu málsins. Tígull.is Héraðsfréttir
Ákvörðunin tekin í hliðarherbergi af fulltrúm þriggja flokkaÁkvörðun um að hætta við áform um íbúðabyggð fyrir verkamenn við Krýsuvíkurveg var ekki tekin á neinum formlegum fundi hjá Hafnarfjarðarbæ. Skv. heimildum Fjarðarfrétta var ákvörðunin tekin á sama tíma og fundur forsetanefndar stóð yfir en þangað mættu oddvitar sk. meirihlutaflokka ekki. Fjarðarfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Vestfjarðastofa: vill semja við lægstbjóðanda um þverun DjúpafjarðarBirt hefur verið ályktun stjórnar Vestfjarðastofu frá 30. september sl. um útboð Vegagerðarinnar á lokaáfanga vegagerðar í Gufudalssveit. Tilboð í verkáfangann voru opnuð daginn áður. Um er að ræða nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 km kafla yfir Djúpa- og Gufufjörð. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Mótmæla harðlega tillögu um fækkun lögregluumdæma„Sveitarstjórn telur að fyrirhugaðar breytingar gangi gegn hagsmunum íbúa á Vesturlandi og feli í sér óæskilega miðstýringu opinberrar þjónustu og mikilvægra öryggismála. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Byggðasafn Vestfjarða: starfsemi til endurskoðunarFundargerð framhaldsaðalfundar Byggðasafns Vestfjarða var lögð fram í bæjarráði Ísafjarðarbæjar í síðustu viku, en fundurinn var haldinn þann 11. maí 2026. Þar kemur fram að Gylfi Ólafsson hafi farið yfir stöðu safnsins sem hann telur bæði vera of þrönga og of víða og rakti ýmsa möguleika á eflingu… BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Vilja hækka gjaldskrá umfram stefnu bæjarinsMeirihluti stjórnar Norðurorku vill hækka gjaldskrá fyrirtækisins meira um næstu áramót en yfirlýst stefna Akureyrarbæjar er varðandi slíkar hækkanir. Akureyrarbær á 98% hlut í Norðurorku, bæjarstjórinn segir frekar óheppilegt að fyrirtækið fari ekki... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Ísafjarðarbær: leggst gegn því að leggja niður embætti lögreglustjóra á VestfjörðumÍ síðustu viku ræddi bæjarráð Ísafjarðarbæjar um drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu). Bæjarráð Ísafjarðarbæjar samþykkti að lýsa þungum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á skipulagi lögreglunnar í landinu sem fela í sér… BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Meirihlutinn bakkaði með áformin eftir mótmæli íbúaBirt hefur verið frétt á vef Hafnafjarðarbæjar þar sem tilkynnt hefur verið að hætt hafi verið við áform um uppbyggingu tímabundinna íbúða fyrir verkafólk við Krýsuvíkurveg, m.a. með hliðsjón af sjónarmiðum sem komu fram í samtali við íbúa. Fjarðarfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Fjölgun innbrota í bifreiðarLögreglan vil hvetja umráðamenn bifreiða að læsa þeim og skilja ekki eftir verðmæti á opnum og óvörðum stað. Þar sem bifreiðum er lagt á vegum fyrirtækja hefur það mikið forvarnargildi að stilla upp myndavélum til að vakta bifreiðastæði. Víkurfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Ný lýðheilsustefnaBæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt nýja lýðheilsustefnu sveitarfélagsins. Stefnan miðar að því að íbúar njóti góðrar heilsu og vellíðunar á öllum æviskeiðum. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Enn 2,7 milljarðar eftir í Myllubakkaskóla og HoltaskólaGuðný Birna Guðmundsdóttir sagði fyrri meirihluta Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar hafa samþykkt að hækka lánaheimild sveitarfélagsins um 800 milljónir króna í alls fjóra milljarða. Tilgangurinn hefði verið að verja meira fé til grunnskólanna og ljúka verkefnunum fyrr. Víkurfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Sýning Hönnu frá Jaðri opnuð í ByggðasafninuSýning Hönnu Jónsdóttur frá Jaðri í Suðursveit var opnuð í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla í Stykkishólmi á laugardaginn. Í verkum sínum tengir Hanna saman tungumál og handverk og leikur sér með stafsetningu, margræðni og óvæntir útúrsnúningar. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Gengið um Öndverðarnes á fyrsta degi vetrarÖndverðarnesið liggur á austurbakka Sogsins og er umvafið náttúrulegum birkiskógi í liðlega 6.000 ára gömlu Grímsneshrauninu. Þar liggur gönguleið meðfram bökkum Sogsins að Hvítá. Saman mynda þessar tvær ár Ölfusá, vatnsmesta fljót landsins. Sunnlenska - Fréttir Héraðsfréttir
Bolungavík: samið við Ísafjarðarbæ um félagsþjónustuBæjarstjórn Bolungavíkur samþykkti í síðustu viku að leggja starf niður félagsmálastjóra Bolungavíkurkaupstaðar og var Guðný Hildi Magnúsdóttur sagt upp störfum og er hún þegar hætt. Ísafjarðarbær mun yfirtaka stjórnun félagsþjónustunnar. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Veginum á milli Djúpavogs og Hafnar lokað eftir að bíll skemmdist í fokiSamkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni átti mjúk lokun að vera á veginum á milli Djúpavogs og Hafnar í gær. Hún hefði falið í sér að ökumenn á stórum ökutækjum hefðu verið stöðvaðir og þeim ráðlagt að fara ekki þar um. Austurfrétt - Fréttir Héraðsfréttir
Stuðningsmönnum ÍBV boðið á opinn fund um framtíð knattspyrnunnarStuðningsmönnum ÍBV er boðið á opinn fund um stöðu og framtíð knattspyrnunnar í Vestmannaeyjum í Týsheimilinu annað kvöld, þriðjudaginn 20. október, kl. 19:30. Það er Alex Freyr sem býður til fundarins fyrir hönd knattspyrnudeildar ÍBV. Tígull.is Héraðsfréttir
Nokkur tjón í Grundarfirði vegna veðurhvellsins á laugardaginnÍ suðaustan hvassviðri síðastliðinn laugardag varð nokkuð tjón í Grundarfirði enda getur vindáttin verið slæm þar. Meðal annars losnuðu þakplötur á íþróttahúsi bæjarins, hurð fauk upp á húsi fjölbrautaskólans, bátur á vagni fauk á hliðina og flutningavagn frá Ragnari og Ásgeiri lagðist sömuleiðis á… Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Hekla fyrst íslenskra kvenna í bakgarðshlaupinuEyjakonan Hekla Hannesdóttir hljóp 35 hringi í landsliðakeppni í bakgarðshlaupi sem hófst í Elliðaárdal á laugardag. Það gera 234,5 kílómetrar. Hekla bætti sitt eigið met um tvo hringi og varð efst kvenna í íslenska landsliðinu Persónulegt met hjá Heklu Fyrir keppnina var besti árangur Heklu 33… Tígull.is Héraðsfréttir
Leikskólinn Hnoðraból er fjörutíu ára – afmælishátíð á morgunÁ morgun, þriðjudaginn 20. október, verður með pompi og prakt haldið upp á 40 ára afmæli Leikskólans Hnoðrabóls á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði. Skólinn hefur frá árinu 2020 verið til húsa í nýju og glæsilegu húsnæði sem er sambyggt grunnskólanum á staðnum. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Foreldrar gætu greitt daggjald í FrístundFræðsluráð Vestmannaeyja tók á fundi sínum 14. október jákvætt í að breyta gjaldtöku í Frístund þannig að foreldrar greiði daggjald í stað núverandi fyrirkomulags. Ráðið fól sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs, að útbúa drög að nýrri gjaldskrá og leggja fyrir næsta fund ráðsins. Tígull.is Héraðsfréttir
Framfarafélag Vestfjarða: Vestfirðir geta gegnt stærra hlutverki í öryggi norðurslóðaFramfarafélag Vestfjarða vekur athygli á erindi Gylfa Ólafssonar, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar og formanns Fjórðungssambands Vestfirðinga á Hringborði norðurslóða um Breytt öryggisumhverfi á norðurslóðum og segir Gylfi það kalla á að innviðaþarfir Vestfjarða séu skoðaðar í nýju samhengi. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Gjaldskrár hækkar að hámarki um 2,5%Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt samhljóða að miða við að gjaldskrár sem lagðar eru á heimili í sveitarfélaginu hækki að hámarki um 2,5% á næsta ári. Markmiðið er að halda aftur af kostnaðarhækkunum heimilanna og leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólgu. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Rjúpnaveiðar mega hefjast á föstudaginnHér á Vesturlandi verður heimilt að veiða rjúpu frá og með föstudeginum 23. október. Samkvæmt ákvörðun Umhverfisráðuneytisins verður tímabil veiðanna frá föstudögum til og með þriðjudögum á tímabili sem ákveðið er sérstaklega innan hvers veiðisvæðis. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Skúta við það að leggjast á hliðina í SiglufjarðarhöfnBjörgunarsveitin Strákar var kölluð út í kvöld eftir að hafnarvörður óskaði eftir aðstoð við að tryggja frönsku seglskútuna Southern Star í Siglufjarðarhöfn. Mikið hvassviðri gengur nú yfir bæinn og var skútan farin að hallast verulega. Óttast var að hún legðist á hliðina og að tjón hlytist af. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Akureyringur lést í slysi á GæsavatnaleiðMaðurinn sem lést í slysi á Gæsavatnaleið, á hálendinu norðan Vatnajökuls á föstudagskvöldið, var 47 ára Akureyringur, Arnþór Örlygsson. Arnþór, sem var fæddur 16. júní 1979, lætur eftir sig eiginkonu, fjögur börn, stjúpson og barnabörn. Lögreglan ... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir