Sýnir: Héraðsfréttir
2.703 fréttir fundust
Síða 45 af 55
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafaÞað er kominn tími til að stjórnmálamenn hætti að tala um eldri borgara sem einsleitan hóp. Eldri borgarar eru fjölmennur og fjölbreyttur hópur. Sumir hafa góðar tekjur og búa við ágæt kjör. Aðrir þurfa að snúa hverri krónu við og hafa verulegar áhyggjur af því hvernig þeir ná endum saman. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Bolungavík: 1.306 tonna afli í ágústÍ ágústmánuði bárust liðlega 1.300 tonn af bolfiski á landi í Bolungavíkurhöfn. Strandveiðin skilaði 242 tonnum og sjóstangveiðibátar lönduðu rúmum 9 tonnum. Togarinn Sirrý ÍS landaði 287 tonnum eftir þrjár veiðiferðir. Dragnótabátarnir Ásdís ÍS og Saxhamar SH lönduðu báðir afla í mánuðinum. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Fyrsta Aglow samvera verður í kvöldFyrsta Aglow samvera verður í kvöld 2. september í Safnaðarheimili Landakirkju kl. 19.30. Guðrún Erlingsdóttir kemur til okkar, en hún bjó í Eyjum og starfaði með Aglow í mörg ár. Hún spilar á gítar og mörg lög og textar urðu til á þeim tíma. Tígull.is Héraðsfréttir
SFS: kynntu starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja á ÍsafirðiHópur nemenda úr Háskólanum í Reykjavík hélt til Ísafjarðar síðastliðinn föstudag í vísindaferð í boði Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Hópurinn fékk meðal annars kynningu á starfsemi Háafells, Kerecis og Arctic Fish. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Hildur Arna ráðin framkvæmdastjóri EimsHildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims – félags um bætta nýtingu auðlinda á Norðurlandi. Hún tekur til starfa 1. október næstkomandi. Hildur hefur yfir 10 ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjó... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Opinn fundur í dag um vestnorrænt samstarfNorræna félagið á Norðurlandi býður til opins fundar í Amtsbókasafninu á Akureyri í dag, miðvikudaginn 2. september kl. 17:00. Á fundinum mun Jón Gnarr, formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, segja frá starfi Vestnorræna ráðsins og þeim málum ... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Haust- og vetrarstarf slökkviliðsins hafiðHaust- og vetrarstarf Slökkviliðs Fjallabyggðar er hafið. Slökkviliðsmenn komu saman í gærkvöldi og fóru yfir grunnþætti slökkvistarfsins. Á æfingunni var meðal annars farið yfir vatnsöflun, árásartækni við eldsvoða og reykköfun. Æfingin gekk vel að sögn slökkviliðsins. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Árborg semur við GTS um akstursþjónustuÍ tilkynningu frá Árborg kemur fram að GTS ehf. hefur sinnt stærstum hluta akstursþjónustu fyrir sveitarfélagið undanfarin sex ár og hefur samstarfið verið farsælt. Nýi samningurinn tryggir áframhaldandi þjónustu og styður við örugga og áreiðanlega akstursþjónustu fyrir íbúa sveitarfélagsins. Sunnlenska - Fréttir Héraðsfréttir
Fjallabyggð vill fá þyrlu til AkureyrarBæjarráð Fjallabyggðar skorar á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að setja fram tímasetta og fjármagnaða áætlun um fasta starfsstöð björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Áskorunin var samþykkt á fundi bæjarráðs 27. ágúst. Í áskoruninni tekur b... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Ein nótt segir ekki alltaf alla söguna um kæfisvefn barnaNiðurstöður nýrrar rannsóknar, sem unnin var með þátttöku starfsfólks Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), benda til þess að kæfisvefn hjá börnum geti mælst talsvert mismunandi frá einni nóttu til annarrar. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Ævintýragarðurinn lokar í næstu vikuÆvintýragarðurinn við Oddeyrargötu 17 sem hefur verið opinn í allt sumar mun loka frá og með mánudeginum 7. september. Aðsókn […] Kaffið.is - Fréttir Héraðsfréttir
Útgáfuhóf á Loftinu BankastrætiÚt er komin ljóðabókin Syngur í skógi, níunda bók hafnfirska ljóðskáldsins Draumeyjar Aradóttur. Síðustu þrjár bækur hennar, Varurð, Einurð og Brimurð, urðu allar metsölubækur og hlutu afbragðs dóma og umsagnir, jafnt hjá bókmenntagagnrýnendum og lesendum. Fjarðarfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Endurvekja viðtalstíma bæjarfulltrúaFyrsti viðtalstími bæjarfulltrúa á Akureyri verður á Amtsbókasafninu á Akureyri 22. september 2026. Í málefnasamningi meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar kemur fram það markmið að endurvekja viðtalstíma bæjarfulltrúa og efla samráð við íbúa og fyrirtæki. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Áhyggjur af atvinnumálum á BorgarfirðiHeimafloti Borgfirðinga telur 13 báta, þar af eru 4-6 sem gera út á handbeitta línu utan strandveiðitímans. Ítrekuð skerðing línuívilnunar er því sögð hafa neikvæð áhrif á heilsársstörf. Tvær fiskvinnslur eru á staðnum með alls 9-11 starfsmenn í fullu starfi. Austurfrétt - Fréttir Héraðsfréttir
Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri EimsHildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims og tekur til starfa 1. október næstkomandiHildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Ný stafræn þjónusta í siglingumNý stafræn þjónusta Samgöngustofu gerir skipaeigendum og sjómönnum kleift að nálgast mikilvægar upplýsingar um sín mál á Ísland.is. Eigendur skipa og báta geta nú skoðað upplýsingar um skip sín undir „Eignir og tæki“ á Mínum síðum. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Töfrar að skrifa ljóðRithöfundurinn Ingibjörg Birgisdóttir hefur gefið út sína fjórðu barnabók, Litaævintýri Siggu og Dóra. Næstkomandi laugardag verður útgáfuhóf á bókasafninu á Selfossi. Hingað til hafa bækur... DFS.is - Fréttir Héraðsfréttir
Tékknesk seglskúta kom til SiglufjarðarTékkneska seglskútan Boomerang kom til Siglufjarðar síðdegis síðastliðinn sunnudag og lagði aftur frá bryggju í gær. Boomerang kom til Íslands eftir siglingu frá Scoresbysundi á austurströnd Grænlands. Ferðin hófst 20. ágúst og var siglingaleiðin um 650 sjómílur, eða rúmlega 1.200 kílómetrar. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Endurbætur á stjórnsýsluhúsinu hefjast á næsta áriSveitarstjórn Norðurþings samþykkti samhljóða á fundi sínum á fimmtudag að stefnt verði að því að endurbætur á stjórnsýsluhúsinu að Ketilsbraut 7–9 hefjist árið 2027. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Birta og Salka eru fyrir fólk á öllum aldri„Hvað er Birta og Salka? “ Þessa spurningu fékk ég fyrir stuttu og miðað við það fjölbreytta og öfluga starf sem þar fer fram finnst mér að sem flest á Akureyri og í nágrenni ættu að vita svarið. Þannig hefst grein Valdísar Rutar Jósavinsdóttur, um... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Hlíðarkaup opnar netverslunFyrr í sumar urðu eigendaskipti á Hlíðarkaup á Sauðárkróki eins og greint var frá. Það vita það sennilega margir að fjölskyldan sem tók við rekstrinum er öllum hnútum kunnug þegar kemur að tæknimálum. Feykir.is Héraðsfréttir
Hanna Þórey ráðin tómstundafulltrúi í BolungarvíkHanna Þórey Björnsdóttir hefur verið ráðin tómstundafulltrúi Bolungarvíkurkaupstaðar og hefur þegar hafið störf. Í starfi sínu mun Hanna Þórey leiða og þróa fjölbreytt tómstunda-, æskulýðs- og félagsstarf fyrir íbúa sveitarfélagsins. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Reynt að koma andanefju við Djúpavog aftur á flotMbl.is greindi fyrst frá málinu. Lögreglunni á Austurlandi barst tilkynning klukkan 10:13 í morgun um andanefjuna. Hún er í Brandsvík, sem er fyrir utan byggðina í sunnanverðum Djúpavogi. Fjöldi íbúa hefur því fylgst með aðgerðunum. Austurfrétt - Fréttir Héraðsfréttir
Landvinnsla komin á fulla ferð eftir sumarleyfiVinnsla hófst á ný hjá Útgerðarfélagi Akureyringa í síðustu viku eftir sumarleyfi og þar með er landvinnsla Samherja komin aftur á fullt skrið. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Þjóðaratkvæðgreiðslan: aðild að Evrópusambandinu hafnaðÍ þjóðaratkvæðagreiðslunni síðasta laugardag kom skýrt svar við spurningunni sem borin var fram. Því var hafnað að hefja að nýju viðræður um aðild að Evrópusambandinu. Í svarinu felst líka skýrt svar við annarri spurningu, sem ríkisstjórnin vildi ekki bera upp. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Vignir ráðinn framkvæmdastjóri lækningaVignir lauk kandídatsprófi frá læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 2011 og stundaði svo sérnám í barnalækningum við Sahlgrenska Háskólasjúkrahúsið og lauk doktorsprófi frá Gautaborgarháskóla 2021. Vignir flutti aftur til Íslands 2021 í heimabæinn Hveragerði og hóf störf sem barnalæknir hjá HSU. Sunnlenska - Fréttir Héraðsfréttir
Umsóknarfrestur er til miðnættisNú er umsóknarfresti að ljúka í Startup Landið 2026, nýsköpunarhraðal fyrir frumkvöðla og nýsköpunarteymi á landsbyggðinni. Hraðallinn er samstarfsverkefni landshlutasamtaka og atvinnuþróunarfélaga um land allt, þar á meðal Austurbrúar, og er markmið hans að styðja þátttakendur við að þróa… Feykir.is Héraðsfréttir
Árneshreppur: Þorgerður ráðin sveitarstjóriSveitarstjórn Árneshrepps hefur ráðið Þorgerði Lilju Björnsdóttur í starf sveitarstjóra til eins árs. Þorgerður er ráðin í 60% starfshlutfall. Heildarlaun hennar sem sveitastjóri verða 650.396 kr. á mánuði. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Skagafjörður og Viljandi villtSagt er frá því á heimasíðu Skagafjarðar að sveitarfélagið muni á komandi árum taka þátt í verkefninu Viljandi villt en sífellt færist í aukana að sveitarfélög leyfi völdum flötum í þéttbýli að vaxa villt. Feykir.is Héraðsfréttir
Bifröst: Metfjöldi annað árið í röðAnnað fjölmennasta skólaár í sögu Háskólans á Bifröst er að ganga í garð. Nú í haust setjast 1896 nemendur að námi við háskólann, þar af eru 826 nýskráðir. Er það metfjöldi nemenda, annað árið í röð. Á sama tíma í fyrra voru 1980 nemendur við háskólann. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Skemmdarverk í skjóli næturHún var ekki skemmtileg aðkoman fyrir starfsmenn GHjálmarssonar þegar þeir mættu til vinnu sinnar í Móahverfi í morgun. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Samtalið við bæjarbúa fært nærViðtalstímar bæjarfulltrúa á Akureyri verða endurvaktir í september eftir að hafa legið niðri um nokkurra ára skeið. Tillagan verður lögð […] Kaffið.is - Fréttir Héraðsfréttir
Mikil gasmengun við LáguhvolaÍ tilkynningu frá Veðurstofunni segir að mikil gasmengun fylgi þessum jarðhitaleka en stofan er með gasmæli við Láguhvola sem eru um 2 km frá jökuljaðri Kötlujökuls. Í nótt mældist aukning í brennisteinsvetni (H2S) og er nú komið yfir heilsuverndarmörk. Sunnlenska - Fréttir Héraðsfréttir
Ný innisundlaug opnuð í Sundlaug AkureyrarNý innisundlaug hefur verið opnuð í Sundlaug Akureyrar eftir umfangsmiklar endurbætur á húsnæðinu. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar í […] Kaffið.is - Fréttir Héraðsfréttir
Það styttist í að körfuboltinn fari á fulltÞað er fyrsti dagur septembermánaðar í dag, heiður himinn og sólin skín sem aldrei fyrr, Þá er heldur betur ekki ónýtt að birta lista yfir leiki Tindastólsliðanna sem framundan eru í mánuðinum og það er nóg af leikjum þó einhverjir sakni þess kannski hversu fáir fara fram í Síkinu. Feykir.is Héraðsfréttir
September listamaður í Gallery ListaseliSeptember gestalistamaður í Gallery Listaseli er Viðar Breiðfjörð frá Vestmanneyjum. Hann sýnir abstrakt og húsamyndir málaðar með olíu á striga. Viðar hefur haldið ýmsar... DFS.is - Fréttir Héraðsfréttir
Sindragata 4b: Húsið risiðFramkvæmdir við þriggja hæða fjölbýlishús á Ísafirði að Sindragötu 4b ganga vel að sögn Garðars Sigurgeirssonar, framkvæmdastjóra Vestfirskra verktaka. Húsið er byggt með innfluttum tilbúnum einingum og var reist á síðustu þremur vikum. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Ísafjörður: höfnin greiðir vegagerð í DagverðardalBæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur ákveðið að kostnaður vegna viðgerðar á veginum að Vegagerð í Dagverðardal í Skutulsfirði, eigi að bókast áhöfnina með tilliti til þeirra framkvæmda sem hafa átt sér stað í tengslum við hafnargerð og fyrirstöðugarða. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Tveir Helgar sigruðu á 100 ára afmælismótum TV um helginaLaugardaginn 29. ágúst kl. 12.00- 18.00 fór fram 100 ára afmælismót TV í atskák. Keppendur voru samtals 36, þar af þrír stórmeistarar. Tímamörk voru 15 mín. á skák + 5 sek. á leik. Tefldar voru átta umferðir og tók hver þeirra um 40 mínútur. Skákstjóri var Ingvar Þór Jóhannesson skákmeistari. Tígull.is Héraðsfréttir
Sýning Örlygs um geirfuglinn gæti öðlast framhaldslífVerk siglfirska listamannsins Örlygs Kristfinnssonar eru nú til sýnis í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Sýning um heilagan fugl. Sýningin er tileinkuð geirfuglinum og lýkur sunnudaginn 6. september, eftir tæplega fjögurra mánaða sýningartíma. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Ferð á leik Liverpool og Everton á AnfieldTA Sport og akureyri.net bjóða upp á hópferð í beinu flugi frá Akureyri á nágrannaslag Liverpool og Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem fram fer síðustu helgina janúar. Áður hafði verið tilkynnt um eina ferð í vetur, á leik Liverpool... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Tveggja turna tal norður af HrauniÞað hefur mátt sjá nokkrar myndir á samfélagsmiðlum undanfarna daga af borgarísjaka úti fyrir Skagafirði. Feyki bárust rétt í þessu myndir af þessum tígulega tveggja turna jaka þar sem hann dólar um 1-2 kílómetra beint norður af vitanum á Hrauni á Skaga. Feykir.is Héraðsfréttir
Fimm tonnum af fatnaði hent í hverjum mánuði í MúlaþingiEf ég ætti að giska á það magn sem við getum nýtt af þessu í hvert sinn, myndi ég halda að það sé hugsanlega í kringum fimm prósent og það háir okkur líka að plássið hér á markaðnum er tiltölulega lítið. Austurfrétt - Fréttir Héraðsfréttir
Ólympíuhlaup ÍSÍ fyrir alla skólaÓlympíuhlaup ÍSÍ sem áður hét Norræna skólahlaupið, hefur verið fastur liður í skólastarfi fjölmargra grunnskóla frá árinu 1984 þegar hlaupið var haldið í fyrsta sinn. Þessi viðburður er tengdur Íþróttaviku Evrópu / BeActive. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
VMA leigir húsnæði í Rósenborg á haustönnVerkmenntaskólinn (VMA) hefur tekið hluta jarðhæðar Rósenborgar (gamla skólahús Barnaskóla Akureyrar) á leigu fram að áramótum. Þar verður kennsla fyrir nemendur á sérnámsbraut skólans. Ítrekað hefur verið fjallað um mikinn húsnæðisvanda sem VMA býr... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Fjölskylduhlaup 10. september í tilefni af Gulum septemberKaupfélag Skagfirðinga og Vörumiðlun leggja verkefninu Gulur september lið en það stuðlar að vitundarvakningu um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Á alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga, fimmtudaginn 10. september, verður því blásið til skemmtihlaups á Sauðárkróki fyrir alla fjölskylduna. Feykir.is Héraðsfréttir