Sýnir: Héraðsfréttir
2.702 fréttir fundust
Síða 2 af 55
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Batna bara með aldrinumBriddsíþróttin er með blóma í Borgarfirði. Síðastliðið mánudagkvöld var spilað á átta borðum hjá Bridgefélagi Borgarfjarðar í Logalandi. Þá fór fram þriðja af fjórum kvöldum í aðaltvímenningi vetrarins. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Nýr Jólamarkaður við Brúarstræti á SelfossiJólamarkaður við Brúarstræti verður haldinn allar fjórar aðventuhelgarnar og er markmiðið að skapa notalega jólastemningu í miðbæ Selfoss þar sem íbúar og gestir gegta komið saman, notið aðventunar og verslað fallegar vörur frá fjölbreyttum söluaðilum. DFS.is - Fréttir Héraðsfréttir
Húsnæðiskostnaður íþyngjandi hjá 9,1% landsmanna árið 2026Hlutfall einstaklinga sem bjuggu á heimilum með íþyngjandi húsnæðiskostnað var 9,1% árið 2026, eða um 36.000 einstaklingar. Húsnæðiskostnaður telst íþyngjandi þegar hann nemur meira en 40% af ráðstöfunartekjum heimilisins. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Herða refsingar vegna ólöglegrar dreifingar sjónvarpsefnisAlþingi samþykkti í dag breytingar á höfundalögum sem fela í sér að hámarksrefsing fyrir stórfelld eða ítrekuð brot hækkar úr tveggja ára fangelsi í sex ár. Markmiðið er að stemma stigu við ólöglegri dreifingu og sölu höfundaréttarvarins efnis á netinu í atvinnuskyni og treysta um leið… Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Gjörningalist í fyrsta sinn kennd sem sérstakur áfangi í VMAÞað er ekki á hverjum degi sem nemendur framhaldsskóla fá tækifæri til að stíga út fyrir hefðbundinn ramma listnámsins og láta hugmyndir sínar verða að lifandi listaverki fyrir framan áhorfendur. Það gerðu nemendur listnáms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri þegar þeir tóku þátt í A! Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Aukin hætta á skriðuföllum vegna mikillar rigningarOfanflóðadeild Veðurstofunnar hefur gefið út sérstaka skriðuviðvörun fyrir Austfirði og sunnanverða Austfirði sem gildir á fimmtudag og föstudag. Í tilkynningu deildarinnar segir að síðustu dagar hafi verið úrkomusamir sem þýði að jarðvegur sé víða orðinn blautur eða vatnsmettaður. Austurfrétt - Fréttir Héraðsfréttir
Páll segir hækkanir auglýstar sem lækkanirPáll Kristjánsson framkvæmdastjóri Slippsins Akureyri gagnrýnir bæjaryfirvöld fyrir boðaða lækkun álagningarhlutfalls fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði og segir að í raun sé um hækkun að ræða. Þetta kemur fram í grein Páls sem akureyri.net birti ... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Ærin verkefni hjá iðnaðarmönnum á Norðurlandi vestraSamkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun var skráð atvinnuleysi á landinu í október 4,3% en hvergi var atvinnuleysið þó minna en á Norðurlandi vestra eða 1,5%. Það jókst um 0,2% á milli mánaða, var sem sagt 1,3% í september. Það er sagt að það sé kólnun í hagkerfinu og er líklega eitthvað til í því. Feykir.is Héraðsfréttir
Aðventumarkaður Einingar að Laugalandi í HoltumKvenfélagið Eining í Holtum stendur fyrir árlegri aðventuhátíð/aðventumarkaði fyrsta sunnudag í aðventu, þann 29. nóvember nk., kl. 13:00 – 16:00, að Laugalandi í Holtum. Á hátíðinni gefst frábært tækifæri til að versla jólagjafir og jólagóðgæti beint af handverksfólki og rithöfundum, s.s. DFS.is - Fréttir Héraðsfréttir
Vesturland á toppi og botni landslistans í vægi iðnaðarÚt er komin ný Glefsa Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Að þessu sinni er skoðaður iðnaður og vægi hans í útsvarsgrunni sveitarfélaga. Greiningin byggir á tölum Hagstofu Íslands fyrir fyrstu níu mánuði þessa árs og nær til iðnaðar að undanskilinni fiskvinnslu. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Krakkakirkja í ÍsafjarðarkirkjuKrakkakirkjan eru skemmtilegar og notalegar samverur fyrir börn og fjölskyldur. Þar syngjum við saman, heyrum sögur úr Biblíunni, biðjum, leikum og lærum um vináttu, kærleika og trú. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Gular viðvaranir – Hvassir vindstrengir síðdegis í dag og á morgunÞá er vakin athygli á að snemma í fyrramálið hvessir á nýjan leik og gul viðvörun tekur aftur gildi um allt vestanvert landið. Þá verður austan- og suðaustan 15-23 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s við fjöll, t.d. undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi. Varasamt ferðaveður. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Berserkir unnu tvo ÍslandsmeistaratitlaKeppendur frá Glímufélaginu Berserkjum á Selfossi áttu stórglæsilegan dag á Íslandsmeistaramótinu í brasilísku jiu-jitsu í galla (Gi) sem fram fór í Ármannsheimilinu í Reykjavík síðastliðinn sunnudag. Sunnlenska - Fréttir Héraðsfréttir
Lokaáfangi rafvæðingar í fyrir minni skemmtiferðaskip við TorfunefsbryggjuStjórn Hafnasamlags Norðurlands hefur samþykkt að bjóða út kaup á LVCS-lágspennukerfi fyrir Torfunefsbryggju á Evrópska efnahagssvæðinu á næstu dögum. Kerfið er síðasti liðurinn í undirbúningi þess að tengja minni skemmtiferðaskip við landrafmagn. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Að skapa samfélag | Freyja Rut Emilsdóttir skrifarHvernig búum við til samfélag? Hvað er samfélag? Auðvitað er þetta flókið samspil margra þátta, og hugtakið sjálft er notað á ýmsa vegu. Við tölum um alls konar samfélög þvert á hið stóra samfélag allra íbúa. Feykir.is Héraðsfréttir
Íslendingar vilja ekki selja LandsbankannNý könnun Gallup sýnir að 64,9% landsmanna eru andvígir því að ríkið selji eignarhlut sinn í Landsbankanum, að hluta eða öllu leyti. Aðeins 16,1% eru hlynnt sölu og 19% hvorki hlynnt né andvíg. Rúmlega fjórfalt fleiri eru því andvíg sölu Landsbankans en hlynnt. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Ísafjarðarbær: samstaða um fjárhagsáætlun næsta ársFjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir 2027 var afgreidd með níu samhljóða atkvæðum í bæjarstjórn. Bætt þjónusta – lækkun skulda Bæjarfulltrúar meirihlutans B lista og C lista bókuðu: „Fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2027 einkennist af skynsemi, jákvæðri rekstrarniðurstöðu, bættri þjónustu… BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Gæslan og sérsveitin efld vegna aukinna öryggisógnaStjórnvöld hyggjast efla eftirlits- og viðbragðsgetu Landhelgisgæslu Íslands og embættis ríkislögreglustjóra til að mæta nýjum og vaxandi áskorunum í öryggis- og varnarmálum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Þorbjörg S. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Kiwanis styrkir forvarnastarf samfélagslögreglunnar í EyjumKiwanisklúbburinn Helgafell afhenti nýverið samfélagslögreglunni í Vestmannaeyjum styrk til kaupa á sýnileika- og kynningarbúnaði fyrir börn og ungmenni. Frá þessu greinir klúbburinn í tilkynningu. Eyjafréttir Héraðsfréttir
Farþegum Herjólfs fækkaði um 24% í októberRúmlega 18.500 farþegar ferðuðust með Herjólfi í október, 24,2% færri en í sama mánuði í fyrra. Bílum um borð fækkaði einnig á milli ára en fraktflutningar jukust. Þetta kemur fram í fundargerð stjórnar Herjólfs ohf. frá 17. nóvember. Eyjafréttir Héraðsfréttir
Fyrstubekkingar myndskreyta jólagjafakort bæjarinsÞrjár jólamyndir eftir nemendur í 1. bekk í Hamarsskóla prýða jólagjafakort Vestmannaeyjabæjar til starfsmanna í ár. Allar myndir nemendanna verða sýndar í Safnahúsinu frá föstudeginum 27. nóvember. Nemendurnir heimsóttu ráðhúsið á þriðjudag þar sem Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri tók á móti þeim. Eyjafréttir Héraðsfréttir
Múlaþing mótmælir áformum Vegagerðarinnar um að taka fimm vegi af vegaskráVegagerðin ber ábyrgð á viðhaldi og þjónustu héraðsveganna, nema að síðustu 50 metrarnir eru í höndum landeiganda ef vegurinn endar við viðkomandi stað. Í erindum Vegagerðarinnar til Múlaþings segir að vegir innan þéttbýlis geti ekki flokkast sem héraðsvegir og þar sem þéttbýlismörk þessara staða… Austurfrétt - Fréttir Héraðsfréttir
Ný barnaverndarlög styrkja réttindi barnaAlþingi samþykkti í gærkvöldi ný heildarlög um barnavernd sem taka gildi 1. apríl 2027. Um er að ræða umfangsmestu endurskoðun barnaverndarlöggjafar í meira en tvo áratugi. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Ísafjörður: Gullkistan Vestfirðir á morgunVestfirðir eru sannkölluð gullkista skapandi verkefna, menningar og frumkvöðlastarfs. Um allan fjórðunginn starfar öflugt fólk og fjölbreyttar stofnanir sem skapa listir, varðveita menningararf, hanna vörur, standa að viðburðum og byggja upp einstaka menningarupplifun fyrir íbúa og gesti. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Aðalfundur Sögufélags SkagfirðingaAðalfundur Sögufélags Skagfirðinga fyrir árið 2025, var haldinn í Safnahúsinu á Sauðárkróki föstudaginn 20. nóvember síðastliðinn. Í skýrslu formanns kom fram að gefnar hefðu verið út tvær bækur á árinu. 45. Feykir.is Héraðsfréttir
Zion Fruster til liðs við StólanaKörfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við bandaríska leikmanninn Zion Fruster um að leika með liðinu á tímabilinu. Hann kemur inn í liðið í stað Murkey sem var látinn fara á dögunum. Zion segist spenntur að hefja nýjan kafla á sínum ferli með Tindastól. Feykir.is Héraðsfréttir
Farsælt afmælisár hjá GSG – 18 ára ungliði skráði sig 142 sinnum í golfGolfklúbbur Sandgerðis átti farsælt 40 ára afmælisár. Rekstrartekjur klúbbsins námu tæplega 103 milljónum króna og hagnaður ársins var tæpar 22 milljónir. Félagsmönnum fjölgaði verulega og eru þeir nú 420 talsins. Þá fjölgaði skráðum golfhringjum á Kirkjubólsvelli um rúm 25% milli ára. Víkurfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Siglfirskir tipparar hafa hist í rúman áratugÁ Siglufirði hefur hópur áhugasamra tippara, bæði kvenna og karla, komið saman um árabil til að spá fyrir um úrslit knattspyrnuleikja og freista þess að næla sér í góðan vinning. Hópurinn hefur verið starfræktur í um 12 til 13 ár og hefur á þeim tíma náð ágætum árangri. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Varað við stormi á Suðurlandi á fimmtudagGul veðurviðvörun tekur gildi á Suðurlandi klukkan 15 á morgun, fimmtudaginn 26. nóvember, og gildir til miðnættis. Veðurstofa Íslands spáir suðaustan- og austanstormi, 18–25 m/s. Hvassast verður austantil á svæðinu og vindhviður geta sums staðar farið yfir 35 m/s. Eyjafréttir Héraðsfréttir
Nemendur FS sýna verk sín á samsýningu framhaldsskólannaHeimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru rauður þráður í sýningunni. Nemendur geta merkt verk sín með spjaldi sem vísar til þess markmiðs sem þeir telja eiga best við hvert verk. Með því geta þeir sýnt hvernig viðfangsefni þeirra tengjast sjálfbærri þróun. Víkurfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Fulltrúar frá Hólum á alþjóðlegri ráðstefnu í TokyoÁ heimasíðu Háskóla Íslands á Hólum er sagt frá ICEEP ráðstefnunni sem haldin var í Tokyo í Japan daga 26.-30. október. Á ráðstefnunni er fjallað um þjálfunarlífeðlisfræði, hreyfingafræði og fleira sem varðar hin ýmsu hestakyn. Feykir.is Héraðsfréttir
Gul stormviðvörun á fimmtudagÍ dag, miðvikudag, verða hvassir vindstrengir á suðvestanverðu landinu síðdegis, t.d. undir Eyjafjöllum. Þar geta skapast varasamar aðstæður fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Sunnlenska - Fréttir Héraðsfréttir
Samstarf Skagafjarðar og Sýndarveruleika til umræðu í sveitarstjórnÍ fundargerð sveitarstjórnar Skagafjarðar frá því 23. nóvember kom fram að samtal hefur staðið yfir milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og forsvarsmanna Sýndarveruleika ehf. um framtíðarfyrirkomulag og nýtingu húsnæðisins að Aðalgötu 21 eða gömlu Gránu og gamla samlaginu. Feykir.is Héraðsfréttir
Skemmtileg hefð í VarmahlíðarskólaÞað er árleg hefð í Varmahlíðarskóla að vera með jólatré fyrir framan skólann og að nemendur í 4. bekk sæki það og það hefur þegar verið gert. Nemendur örkuðu af stað með umsjónarkennurum og húsverði, fundu gott tré, söguðu það niður og báru það heim í skólann. Feykir.is Héraðsfréttir
Það sem kostar ekki krónuUndanfarnar vikur hafa nemendur í gönguáföngum FSU fengið einfalt verkefni – að hafa augun opin fyrir hjörtum í umhverfinu í tímum. Hjartalaga laufblað, steinn, pollur eða eitthvað sem mörg myndu ganga fram hjá án þess að veita því athygli. Afraksturinn hefur ekki látið á sér standa. DFS.is - Fréttir Héraðsfréttir
Ótrúlegt frjálsíþróttaár að bakiNú þegar líður að lokum 2026 er ekki annað hægt en að horfa til baka á þetta frábæra frjálsíþróttaár sem er að baki hjá iðkendum félaga innan HSK. Aldrei hafa keppendur af okkar sambandssvæði verið kallaðir inn í jafn mörg landsliðsverkefni og náð jafn góðum árangri. DFS.is - Fréttir Héraðsfréttir
Beðið um greiðslu fyrir pakka? Ekki smella straxFram undan eru stærstu netverslunardagar ársins, svartur föstudagur 27. nóvember og netmánudagur 30. nóvember, og svo jólapakkarnir. Á þessum tíma bíða margir eftir sendingum og það nýta svikarar sér. Tígull.is Héraðsfréttir
Ljósaganga gegn kynbundnu ofbeldiÍ dag, á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gegn konum, fer fram ljósaganga frá Ráðhústorginu og samkoma á Amtsbókasafninu í beinu framhaldi. Ljósagangan hefst kl. 16:30, en viðburðurinn er haldinn í tilefni af 16 daga átaki gegn ofbeldi. Gengið v... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Davíð Örn Óskarsson hlýtur Súluna 2026Davíð hefur um árabil verið öflugur þátttakandi í menningarlífi bæjarins og komið að fjölmörgum verkefnum á sviði lista og menningar. Hann hefur meðal annars látið að sér kveða í leiklistarstarfi, leikmynda- og sviðshönnun, grafískri hönnun og myndbandagerð. Nánar í næsta tölublaði Víkurfrétta. Víkurfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Hægja á framkvæmdum, lántökuþörf eykstÁkvörðun um að gjaldskrár Norðurorku hækkuðu ekki um meira en 2,5% hefur veruleg áhrif á áætlaðar tekjur fyrirtækisins og hefur fjárfestinga- og fjárhagsáætlun félagsins verið endurskoðuð í samræmi við það. Rekstur fyrirtækisins verður skoðaður ofan ... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Aðventa í Norðangarra - húslestur í hljóðheimiLaugardaginn 28. nóvember kl. 13 lifna við í Davíðshúsi (Bjarkarstíg 6) Fjalla-Bensi, Eitill og Leó þegar Norðangarri flytur Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson. Sagan verður lesin í heild sinni við lifandi tónlist og hljóðheim sem verður til á staðnum. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Skútaberg leggur fram úrbótaáætlunHeilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hefur samþykkt framkvæmda- og úrbótaáætlun Skútabergs ehf. vegna tiltektar og úrbóta á athafnasvæði fyrirtækisins á Moldhaugnahálsi. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Hver er möguleikinn á gagnaverum á Austurlandi?Í dag starfa þrjú alþjóðleg gagnaver á Íslandi: Verna Global, atNorth og Borealis Data Center. Saman mynda þau Samtök gagnavera sem eru hluti af Samtökum iðnaðarins. Austurfrétt - Fréttir Héraðsfréttir
Bækur og blómFimmtudaginn 26. nóvember efna Harpa Rún Kristjánsdóttir skáldbóndi, Auður Önnu Magnúsdóttir og Steinunn Sigurðardóttir skáld og hálfur Selfyssingur til upplestrar í Blómaborg Hveragerði sem hefst klukkan 16.30. Skáldsysturnar tala saman um nýútkomnar bækur sínar. DFS.is - Fréttir Héraðsfréttir
Maddie gefur okkur gríðarlega orku og stemningu í hópinn„Ég var virkilega ánægður með stelpurnar i þessum leik, þetta var alls ekki auðvelt og ég var ánægður með hvað allar stigu upp og lögðu sitt af mörkum. Frábær liðssigur,“ sagði Hlynur Freyr Einarsson þjálfari kvennaliðs Tindastóls sem bar sigurorð af liði Ármanns í Bónus deildinni í gærkvöldi. Feykir.is Héraðsfréttir