Sýnir: Fréttir og undirflokka
22.842 fréttir fundust
Síða 72 af 457
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Úkraínumaður handtekinn fyrir að leggja á ráðin um fjöldastunguárás í PóllandiSamkvæmt saksóknaraembætti Lublin var grunaði að undirbúa morð sem byggðust á kynþáttafordómum, sem hluta af hræðilegri netáskorun sem kölluð var „Blóðugi föstudagurinn“. Dómstóll úrskurðaði að hann yrði haldið í gæsluvarðhaldi í þrjá mánuði að beiðni saksóknara. Frettin - Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Veðurspá fyrir morgundaginn versnarVon er á vonskuveðri um nær allt landið á morgun þegar djúp og kröpp lægð gengur yfir. Veðurstofan hefur bætt við appelsínugulri veðurviðvörun á Suðurlandi. Hún tekur gildi strax í fyrramálið klukkan 05:00 og gildir til klukkan 10:00. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kristrún: Hugmyndin „fyrst og fremst fyrirsjáanleiki“Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir markmið frumvarps um svokallaða leigubremsu fyrst og fremst vera að tryggja fyrirsjáanleika á leigumarkaði. Aðgerðin ein og sér muni ekki leysa vanda markaðarins og aukið framboð húsnæðis þurfi til að halda aftur af leiguverðshækkunum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Mjög djúp og kröpp lægð nálgast landiðÁ fimmtudag:Minnkandi norðvestanátt og snjókoma framan af degi á Norður- og Austurlandi. Vaxandi suðvestan átt 8-15 síðdegis með lítilsháttar skúrum eða éljum á norðvestan- og vestanverðu landinu, en þurrt í öðrum landshlutum. Hiti víða 0 til 7 stig, hlýjast við vestur- og suðurströndina. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Lungnaaðgerð páfans gekk velAðgerð Leós páfa vegna hnúts í lunga tókst vel, að sögn Vatíkansins. Páfinn gekkst undir aðgerðina á sjúkrahúsi í Róm á þriðjudag og var kominn aftur á herbergi sitt að henni lokinni. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Hlöllabátum við Smáralind lokaðSamlokustaður undir vörumerki Hlöllabáta sem rekinn hefur verið í Orkunni við Smáralind að Hagasmára hefur verið lokað. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Greiðslukerfi Krónunnar komið í lagFreyja Leópoldsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni, segir að greiðslukerfisvandræðin séu einungis bundin við þessa tilteknu Krónuverslun. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Greiðslukerfi Krónunnar í Austurveri liggur niðriFreyja Leópoldsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni, segir að greiðslukerfisvandræðin séu einungis bundin við þessa tilteknu Krónuverslun. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fór úr bílnum og hljóp undan lögregluLögregla gaf ökumanni fyrirmæli um að stöðva akstur með forgangsljósum í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Þau virti hann ekki, stöðvaði þó síðar bílinn en hljóp þá af stað undan lögreglu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Cornell-háskóli aflýsir öllum bræðralagsskemmtunumStjórnendur í Cornell-háskóla hafa ákveðið að aflýsa öllum viðburðum og skemmtunum í húsakynnum bræðralaga í skólanum út skólaárið sem lýkur næsta vor. Þetta segir Michael Kotlikoff formaður háskólaráðsins í yfirlýsingu. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Hljóðupptökur vógu þungt: Andri stýrði atburðarásinniHljóðupptökur úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar og framburður meðákærðra vógu þungt þegar Héraðsdómur Suðurlands komst að þeirri niðurstöðu að Andri hefði skipulagt og stjórnað frelsissviptingu manns í Reykholti í apríl 2024. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Greinir á um hvort flugbrautin sé nothæfSigrún Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla Isavia, segir að flugbrautin á Djúpavogi sé nothæf. Í liðinni viku fjallaði Morgunblaðið hins vegar um að heimastjórn Djúpavogs hefði lagt til að flugbrautinni yrði breytt í vegslóða þar sem hún hefði verið ónothæf um árabil. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Enn versnar spáin með nýjum viðvörunumEnn versnar spáin fyrir morgundaginn og mun Veðurstofan gefa út appelsínugular viðvaranir fyrir Suðurland og Breiðafjörð til viðbótar við þær sem gefnar hafa verið út fyrir Vestfirði og Norðurland vestra. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Japanir kepptu í svefniÍ Japan, þar sem langir vinnudagar og annasamt líf setur mark sitt á svefnvenjur fólks, kepptu svokallaðir afreksmenn í svefni um að leggjast niður, slaka á og sofna sem hraðast og sofa sem fastast. Keppnin var haldin á vegum dýnufyrirtækis í Tókýó. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Reykholtsmálið: Einbeittur brotavilji og algert skeytingarleysiAndri Már Mortensen Birgisson, sem dæmdur var í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn í Reykholtsmálinu, var höfuðpaur og aðalskipuleggjandi þess. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Suðurlands sem birtur var í dag. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Bandero leitar skjóls í ReykjavíkSkipið Bandero siglir nú til Reykjavíkur í skjól frá suðaustanáttinni. Til stóð að flytja skipið í gærkvöldi en þá var skipstjórinn hvergi sjáanlegur. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása HútaAir Atlanta hefur dregið gríðarlega úr umsvifum sínum í Sádíu-Arabíu undanfarna mánuði að sögn framkvæmdastjóra vegna átaka í Mið-Austurlöndum. Hann segir félagið fylgjast grannt með stöðunni í landinu eftir mannskæðar eldflaugaárásir Húta sem beinst hafa gegn flugvöllum í landinu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Áform um að stytta hámarkstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 árHámarkstími nýrra verðtryggðra fasteignalána styttist úr 40 árum í 25 samkvæmt áformum fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem birt hafa verið í Samráðsgátt stjórnvalda. Það er í samræmi við tillögur sérfræðingahóps um afnám verðtryggingar á neytendalán og eldri frumvörp. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Samherji kaupir Bjarna Ólafsson AKSamherji hefur fest kaup á uppsjávarskipinu Bjarna Ólafssyni AK 70 frá Síldarvinnslunni. Skipið var smíðað árið 1999 í Noregi og […] Kaffið.is - Fréttir Héraðsfréttir
Kakkalakkar reglulega vandamál á stúdentagörðunumÞegar tilkynning berst til FS um kakkalakka eru virkjaðir ákveðnir verkferlar sem hefst á því að íbúi þarf að skila inn viðgerðarbeiðni. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vara við flóðum – Flætt gæti upp á bryggjurLandhelgisgæsla Íslands varar við að búast megi við mjög hárri sjávarstöðu í óveðrinu á morgun vegna lágs loftþrýstings. Þetta geti valdið flóðum. DV Fréttir Fréttir
Æviminningar SvefneyingsÚt er komin bókin Æviminningar Svefneyings, en þar segir Þórður Sveinbjörnsson frá fjölskyldu sinni og öðrum íbúum Svefneyja á uppvaxtarárum sínum um miðja síðustu öld. Í bókinni lýsir Þórður eyjabúskapnum, leikjum og afþreyingu, fyrstu skólagöngu og minnisstæðum ferðum í aðrar eyjar. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Sádi-Arabar ráðast á olíubirgðarstöð í JemenSádi-Arabar gerðu í dag árás á olíubirgðastöð Yemen Petroleum Company í borginni Sanaa í vesturhluta Jemen. Þetta segja talsmenn Húta í Jemen, en talsmaður stjórnvalda í Sádi-Arabíu hafði fyrr í dag sagt að fólk ætti að halda sig frá stöðinni. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Vara við hvassviðri syðst og ofsaveðri á NorðvesturlandiVegagerðin varar vegfarendur við mjög hvössum vindi undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum frá því snemma í fyrramálið og til um kl. 9:00 á morgun. Gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn og búist er við að veðrið verði hvað verst á norðvestanverðu landinu. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings47. þing Alþýðusambands Íslands hefst í dag. Vísir verður í beinni í dag frá þinginu auk þess sem fylgjast má með streymi af málþingi sem fram fer í dag frá tíu til eitt í hátíðarsal Hilton Reykjavík. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af BrexitYfirmaður bresku leyniþjónustunnar staðfestir að yfirvöld í Rússlandi hafi reynt að hafa afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu árið 2016. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Óttast kostnaðarsamar framkvæmdir vegna myglu í ráðhúsinuSkellt hefur verið í lás í ráðhúsinu á Hvammstanga eftir að mikil mygla fannst í húsnæðinu. Einhverjir starfsmenn voru farnir að finna fyrir einkennum segir sveitarstjóri. Tekin voru bæði stroksýni og efnissýni á nokkrum stöðum á öllum hæðum hússins. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínuKona á áttræðisaldri var flutt í öfuga átt eftir læknisskoðun á Bærum-sjúkrahúsið í Noregi. Í stað þess að aka henni um 500 metra á hjúkrunarheimili þar sem hún dvelur var henni ekið alla leið í Hallingdal, í nokkurra klukkustunda fjarlægð. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Feðgar háðu úrslitaeinvígi í ÓlafsfirðiAlls mættu 18 keppendur til leiks þegar Pílufélag Fjallabyggðar hélt Money In Money Out mót í Ólafsfirði í gærkvöldi, mánudaginn 12. október. Meðal þátttakenda voru gestir frá Dalvík og Akureyri. Keppt var í 301 DIDO og var góð stemning meðal keppenda. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar?Formaður Eflingar segir það blákalda og augljósa staðreynd að formaður VR reyni að sölsa undir sig ASÍ með tillögu sinni um fækkun varaforseta. Formaður VR segir um að ræða samsæriskenningar, núverandi fyrirkomulag sé ólýðræðislegt. Útlit er fyrir spennandi landsþing ASÍ. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Um 50.000 manns tóku þátt í Íþróttaviku EvrópuÍþróttavika Evrópu #BeActive fór fram dagana 23. til 30. september. Um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir voru haldnir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt. Ísland hefur tekið þátt í Íþróttaviku Evrópu frá árinu 2015. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Leggja til óbreytt útsvar á næsta áriBæjarráð Vestmannaeyja leggur til að útsvar verði óbreytt á næsta ári, 14,91%. Lögbundið hámark útsvars er 14,97%. Tillagan var lögð fram á fundi bæjarráðs 6. október, þegar fjallað var um forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. Í áætluninni er gert ráð fyrir 3,5% verðlagshækkunum. Tígull.is Héraðsfréttir
Vara við yfir 40 m/s vindhviðum í nótt og á morgunLögreglan í Vestmannaeyjum varar bæjarbúa við því að vindhviður geti í nótt og í fyrramálið farið vel yfir 40 m/s, en gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir stóran hluta landsins í nótt og á morgun vegna mikils hvassviðris. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Samherji kaupir uppsjávarskip af SVNSamherji hefur fest kaup á uppsjávarskipinu Bjarna Ólafssyni AK 70 frá Síldarvinnslunni (SVN). Skipið var afhent í dag og heldur til veiða. Það fær nýtt nafn þegar það kemur í heimahöfn á Akureyri. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
„Á minni vakt verður almannafjölmiðillinn ekki veiktur“Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, segir ekki koma til greina að veikja Ríkisútvarpið með því að taka það af auglýsingamarkaði. Hann segir þó að til skoðunar sé að breyta fyrirhuguðu þaki á auglýsingatekjur RÚV í kjölfar umsagna um nýtt fjölmiðlafrumvarp. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sendiherrann beðinn um að segja af sérKimberly Guilfoyle, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Grikklandi, hefur verið beðin um að segja af sér. Hún hefur staðið í ströngu undanfarna daga vegna ásakana um að hún hafi staðið í ósiðlegu og jafnvel ólöglegu athæfi skömmu áður en hún var staðfest í stöðuna af öldungadeild Bandaríkjaþings. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir