Sýnir: Fréttir og undirflokka
22.808 fréttir fundust
Síða 31 af 457
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandiFyrirhuguð íbúðablokk við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði kemur í veg fyrir áframhaldandi flugeldasölu í húsnæði Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, að sögn sveitarinnar. Hún óskar eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu svo halda megi sölunni áfram. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranirRáðamenn í Suður-Kóreu heita hörðum viðbrögðum standi einræðisstjórn Norður-Kóreu við þær hótanir að auka viðbúnað á landamærum ríkjanna. Aukin spenna er á Kóreuskaga eftir að hermenn frá Suður-Kóreu særðust alvarlega vegna jarðsprengja sem Suður-Kóreumenn segja að hafi verið komið fyrir af… Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Skoða reglubreytingar vegna hættu á slysasleppingumUmhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur hafið vinnu við að skoða breytingar á reglugerð um umhverfismat til að taka af allan vafa um að áhættumat nái einnig til afleiddra áhrifa náttúruvár, svo sem slysasleppinga úr sjókvíaeldi vegna ofanflóða. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Flókið að minnka svæði fyrir viðvaranirVeðurstofan er þessa dagana að rýna í ýmislegt í tengslum við óveðrið á landinu í síðustu viku en mikið eignatjón varð á Siglufirði. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Eigendur NO vilja fylgja samkomulagi um hóflegar hækkanirGjaldskrár Norðurorku munu ekki hækka umfram 2,5% um næstu áramót eftir ákvörðun eigenda fyrirtækisins á aukaaðalfundi á þriðjudagsmorgun. Á þeim fundi var tillögum meirihluta stjórnar hafnað, en þær gerðu ráð fyrir á bilinu 2,5 og upp í 7% hækkun á gjaldskrá veitnanna um næstu áramót. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Eigendur NO vilja fylgja samkomulagi um hóflegar hækkanirGjaldskrár Norðurorku munu ekki hækka umfram 2,5% um næstu áramót eftir ákvörðun eigenda fyrirtækisins á aukaaðalfundi á þriðjudagsmorgun. Á þeim fundi var tillögum meirihluta stjórnar hafnað, en þær gerðu ráð fyrir á bilinu 2,5 og upp í 7% hækkun á gjaldskrá veitnanna um næstu áramót. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Undirskriftasöfnun lokiðUndirskriftasöfnuninni til stuðnings Endurhæfingarsundlauginni á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki er lokið. Alls skrifuðu 1228 undir listann sem verður nú sendur til stjórnar HSN, Heilbrigðisráðherra og sveitarstjórnar Skagafjarðar. Alls söfnuðust 1228 undirskriftir. Feykir.is Héraðsfréttir
Reykhólar – Fundað um byggðaþróunarverkefniÍbúafundur var haldinn í byggðaþróunarverkefninu Fjársjóður fjalla og fjarða fimmtudaginn 15. október sl. Hrefna Jónsdóttir formaður verkefnisstjórnar setti fundinn og bauð nýjan verkefnisstjóra, Guðmund Konráðsson, velkominn til starfa um leið og hún þakkaði Emblu Dögg Bachmann fyrir góð störf í… BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Tveir menn grunaðir um grófa nauðgun á tveimur stúlkum í MalmöMennirnir voru handteknir á laugardagsmorgun í tjaldi á Ön í Malmö í Svíþjóð, eftir að þeir voru grunaðir um að hafa nauðgað tveimur stúlkum undir 15 ára aldri. Stúlkurnar höfðu flúið af heimili á vegum sænsku barnaverndarþjónustunnar. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Seldi allt sitt fyrir TikTok-ást sem var aldrei raunverulegEdimar Rocha Martins, 49 ára, frá Imperatriz í Maranhão-fylki, rakst á TikTok-reikning konu sem kallaði sig Jéssica Oliveira. Reikningurinn var með yfir 300 þúsund fylgjendur og sýndi myndbönd af konu sem sagðist búa á sveitabýli og leita að maka. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Vídeódanshátíðin Boreal Screendance Festival 2026 hefst á föstudaginnVídeódanshátíðin Boreal Screendance Festival 2026 hefst á föstudaginn í Ketilhúsi Listasafnsins á Akureyri. Boreal hefur verið haldin á mörkum hausts og vetrar frá árinu 2020, fyrst í Mjólkurbúðinni en nú leggur hátíðin undir sig Listagilið rúmar þrjár vikur í október og nóvember. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Ekki hægt að flokka öll særandi ummæli til hatursorðræðuSíðustu vikur hefur Meining á Rás 1 fjallað um hinsegin bakslagið í íslensku samfélagi og skoðað áhrif þess á líf og líðan hinsegin fólks. Í fimmta þætti var hatursorðræða skoðuð, meðal annars áhrif hennar frá félagslegu sjónarhorni. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Morðákæra gegn Castro vekur reiði RússaRússnesk stjórnvöld fordæmdu í dag handtökuskipun sem gefin hefur verið út í Flórída í Bandaríkjunum á hendur Raúl Castro, fyrrverandi forseta Kúbu, í tengslum við morðákæru. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Tap á þriðja fjórðungi hjá Arctic FishLeiðrétt rekstrarafkoma (e. operational EBIT) Arctic Fish á þriðja ársfjórðungi var neikvæð um 4,2 milljónir evra, eða sem svarar til rúmlega 570 milljóna króna. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
25 börn útskrifuð úr ÆvintýraeyjunniÆvintýraeyjunni, útivistar- og ævintýranámskeiði fyrir börn og foreldra þeirra, lauk í Vestmannaeyjum á sunnudag. Alls tóku 25 börn þátt ásamt foreldrum sínum og hittist hópurinn fjórum sinnum undir leiðsögn Eyrúnar Haraldsdóttur. Tígull.is Héraðsfréttir
Samþykktu tillögu um athugun á rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsinsBorgarstjórn samþykkti í dag tillögu meirihlutans um að hefja athugun á útvistun á rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Menningar- og íþróttasviði borgarinnar verður falið í samráði við fjármála- og áhættustýringasvið að kortleggja rekstur garðsins og meðal annars leggja mat á kostnað… Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fyrirtæki sveitarstjórans á Laugum selur búnað til skreiðarfyrirtækjaSveitarstjórinn í Þingeyjarsveit, Katrín Sigurjónsdóttir, er eigandi fyrirtækis sem selur Samherja skreiðarpoka og þurrkgrindur fyrir skreiðarþurrkun útgerðarfyrirtækisins á Laugum í sveitarfélaginu. Fiskþurrkun Samherja er stærsti einkarekni atvinnurekandinn á Laugum með um 20 starfsmenn. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Christina Applegate ekki með MS-sjúkdóm eftir allt samanApplegate, sem er 54 ára, greindist árið 2021 með þennan ólæknandi sjálfsofnæmissjúkdóm sem hefur áhrif á heila og mænu. Hún hefur verið opinská um mikla verki og þær hamlandi afleiðingar sem sjúkdómurinn hefur haft á líf hennar. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Búið að malbika hringtorg við RjúpnavegVinnu við malbikun og yfirborðsmerkingar á nýja hringtorginu við Rjúpnaveg er lokið en verkið er hluti af framkvæmdum vegna nýs Arnarnesvegar. Þar með er vinnu við vegi og vegtengingar verksins lokið og búið að hleypa á bílaumferð. Hringtorgið er nú Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-HrauniÞorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tekur klukkan 14 í dag fyrstu skóflustunguna að öryggisfangelsinu við Stóra-Hraun. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður verður viðstödd athöfnina og Vísir í beinni útsendingu. Hægt verður að fylgjast með í spilaranum að neðan. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vill að ömmur, afar og jafnvel vinir geti farið í fæðingarorlofMagnea Gná Jóhannsdóttir, fyrsti varaborgarfulltrúi Framsóknar, vill að foreldrar geti framselt allt að fjórar vikur af fæðingarorlofi sínu til ömmu, afa, annars ættingja eða jafnvel náins fjölskylduvinar. Þetta kemur fram í aðsendri grein hennar á DV Fréttir Fréttir
Tækifæri til að sjá allt að 20 stjörnuhröp á klukkustund yfir ÍslandiSamkvæmt grein Lifandi Vísinda eru Óríonítarnir leifar halastjörnunnar Halley, sem síðast sást frá jörðu árið 1986. Halastjarnan kemur ekki aftur fyrr en árið 2061 en skilur eftir sig slóð ryks og smárra ísagna á braut sinni um sólina. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Vetrarbragur kominn á brælurnarÍsfisktogararnir Birtingur, Vestmannaey og Bergey lönduðu allir í Neskaupstað sunnudaginn 18. október. Allir styttu veiðiferðir sínar vegna óhagstæðs veðurs. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Snjallgleraugu falla undir snjalltækjabannMeginregla síma- og snjalltækjabannsins er sú að notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla eða frístundaheimilis sé óheimil á skólatíma. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Bruninn á Brikk: Tímasetningin óheppilegEinar Benediktsson, framkvæmdastjóri og einn af eigendum Brikk við Norðurbakka í Hafnarfirði, áætlar að staðurinn verði lokaður næstu sjö til tíu dagana en eldur kom upp í potti í eldhúsinu í gærkvöld. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Líkir tilburðum Meta við einelti á skólalóðMeð nýjum notendaskilmálum Meta áskilur fyrirtækið sér rétt til að safna og vista efni af vefjum sem tengdir eru fyrirtækjareikningum. Eins og þeir eru orðaðir getur Meta fært rök fyrir því að fyrirtækið geti notað efni af vefsíðum fyrirtækja, þar með talið fjölmiðla, til þess að þjálfa… Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsinsNítján lögmenn sem starfa á sviði skaðabótaréttar segja að nýlegur dómur Hæstaréttar feli í sér tilmæli til Alþingis um að uppfæra þurfi skaðabótalög og færa þau til nútímans. Boltinn sé hjá dómsmálaráðherra. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fær ekki afhentar upplýsingar um ólöglega uppsögnÚrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur synjað beiðni ritstjóra Eyjafrétta um að Vestmannaeyjabær afhendi tölvupóst sem varðar möguleg starfslok tiltekins starfsmanns hjá bænum. DV Fréttir Fréttir
Ákærð fyrir að svíkja hundruð þúsunda af heimilismanniKonan hafði aðgang að kreditkorti mannsins og PIN-númeri þess. Hún er sökuð um að hafa án heimildar tekið reiðufé út af kortinu í hraðbönkum alls fimmtán sinnum. Úttektirnar námu á bilinu 30 til 80 þúsund krónum í hvert sinn. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Barnaverndarkerfið brást - ,,hann féll fyrir eigin hendi"Hilma Dögg er móðir Hávarðar Mána heitins en hann féll fyrir eigin hendi fyrir rúmu ári Hún segir sögu hans og þeirra, hann átti erfitt uppdráttar í grun… Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón krónaKarlmaður hefur verið dæmdur til fjórtán mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar eftir að hafa játað 89 þjófnaðarbrot. Hann stal vörum úr verslunum fyrir um 3,5 milljónir króna. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðannInga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir að ekki komi til greina að endurskoða áform um breyttan einkunnakvarða. Áform hennar um nýtt einkunnakerfi í grunnskólum þar sem tölustafir verða teknir upp að nýju hafa hlotið töluverða gagnrýni. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Preschool reopens in DrangsnesA preschool has reopened in Drangsnes after a seven-year break. Three children are currently settling into the preschool department, which is housed in Drangsnes Primary School. RUV - Fréttir á Ensku News In English
Íbúðaverð: fjölbýli á landsbyggðinni hækkar mestSíðustu 12 mánuði hefur verð á fjölbýlisíbúðum á landsbyggðinni hækkað um 2,32% samkvæmt tölum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, HMS. Það er heldur meira en verð á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu, sem hækkaði um 2,10% á sama tíma. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Alþingi kannar mögulegan leka vegna orða Þórðar SnæsStjórnskipunar og eftirlitsnefnd Alþingis hefur samþykkt að fara í frumkvæðisathugun sökum þess að framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, tilkynnti í grein á Vísi að fyrirhugaður væri hækkun á bankaskatti myndi skila ríkinu 6 milljörðum króna. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
,,Þetta er afleiðing af sturlaðri innflytjendastefnu"Fjölmiðlamaðurinn Stefán Einar Stefánsson, stjórnandi þáttarins Spursmál hjá Mbl.is, gagnrýnir Emmanuel Macron Frakklandsforseta harðlega vegna óeirða sem… Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Gjaldskrá hækkar að hámarki um 2,5%Gjaldskrá Norðurorku verður ekki hækkuð um meira en 2,5% um áramótin. Þetta var ákveðið á auka aðalfundi fyrirtækisins í morgun. Meirihluti stjórnar vildi hækka gjaldskrá rafmagns um 5%, hitaveitu um 5,5% og fráveitu um 7% en eigendur fyrirtækisins, ... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til banaDómsmálaráðherra Mississippi í Bandaríkjunum segir að lögregluþjónn hafi ekki brotið af sér þegar hann banaði eins árs barni í sumar. Þá hafði móðir barnsins verið sökuð um að stela bleyjupakka og barnafötum en þegar lögreglumanninn bar að garði var hún að keyra á brott í bíl vinkonu sinnar. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Mikilvægt að almenningur geti treyst dómstólumHátt í fjögur þúsund hafa skrifað undir undirskriftarlista þar sem skorað er á Alþingi og dómsmálaráðherra að beita sér fyrir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála, frá rannsókn til dómsmeðferðar. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
13 létust í rútuslysiÍ það minnsta þrettán manns létust og 34 slösuðust þegar rúta í eigu fyrirtækis lenti í árekstri við flutningabíl á Assiut-vesturveginum í Egyptalandi í dag. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Hallgrímshátíð í Saurbæ verður um næstu helgiÁ sunnudag verður hátíðarmessa kl. 14.00, síðan kirkjukaffi í boði sóknarnefndar í Sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi og að lokum dagskrá í kirkjunni kl. 16.30 þar sem þess verður minnst að 360 ár eru liðin frá fyrstu útgáfu Passíusálmanna, en þeir voru prentaðir á Hólum í Hjaltadal árið 1666. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Hjólreiðarmaður fluttur á bráðamóttökuHjólreiðarmaður var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku Landspítalans eftir árekstur við bíl á gatnamótum Laugarásvegar, Sundlaugavegar og Brúnavegs í morgun. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Raunverð íbúða hefur lækkað 14 mánuði í röðÍbúðaverð hefur ekki haldið í við verðbólgu síðustu 14 mánuði og útlit er fyrir að sú verði raunin út næsta ár. Þetta kemur fram í tilkynningu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um þróun vísitölu íbúðaverðs. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir