Sýnir: Fréttir og undirflokka
22.807 fréttir fundust
Síða 28 af 457
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann áÍtalir ætla að senda fimm hundruð hermenn til Mílanóborgar um helgina vegna mótmæla sem fyrirhuguð eru þar og Frakkar gera slíkt hið sama í París. Óeirðir hafa orðið í Frakklandi síðustu daga og hefur utanríkisráðuneytið hvatt Íslendinga til að hafa varann á þegar ferðast er í Evrópu. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Missti báða fæturnaTaka þurfti báða fætur af ástralska þingmanninum Helen Haines, sem ekið var vísvitandi á í vikunni, að sögn eiginmanns hennar. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Af hverju fá nemendur sem uppfylla hæfniviðmið ekki hæstu einkunn?Nemendum í 10. bekk grunnskóla verður gefin lokaeinkunn í tölustöfum í vor samkvæmt nýju einkunnakerfi, verði áætlanir menntamálaráðherra að veruleika. Það verður í fyrsta sinn í rúman áratug sem einkunnir í grunnskóla verða gefnar í tölustöfum, eða síðan bókstafseinkunnir voru teknar inn í… Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hittir Pútín í RússlandiSteve Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjanna, mun hitta Vladimír Pútín Rússlandsforsta í Sanktí Pétursborg í dag í kjölfar viðræðna við Volodimír Selenskí, foreta Úkraínu, sem Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lýsti sem jákvæðum. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Rubio segir fund Zelenskys og Witkoffs jákvæðanMarco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að fundur milli Volodomyr Zelensky Úkraínuforseta og Steve Witkoff, erindreka Bandaríkjastjórnar, í Osló hafi verið jákvæður. Hann bætti við að ekkert óvænt hefði komið fram á fundi þeirra í gær. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttökuTveir voru fluttir á bráðamóttöku í gær eða í nótt eftir að hafa dottið af rafmagnshlaupahjóli. Einstaklingarnir voru saman á einu hjóli og óskuðu eftir aðstoð lögreglu og sjúkrabíls. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tveir fluttir á bráðadeildTveir slösuðust og voru fluttir með sjúkrabíl á bráðamóttöku eftir að hafa dottið á rafhlaupahjóli en þeir voru tveir saman á hjólinu. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Víða bjart sunnan- og vestanlandsÍ dag verður austlæg eða breytileg átt, víða 3-10 m/s en 8-15 m/s á Vestfjörðum seinnipartinn. Þurrt verður að kalla á Suður- og Vesturlandi en rigning eða slydda með köflum annars staðar á láglendi en snjókoma til fjalla. Hitinn verður á bilinu 1 til 8 stig. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kosið verður í dreifbýlisráð 7. nóvemberKosið verður í dreifbýlisráð sveitarfélagsins Stykkishólms laugardaginn 7. nóvember. Kjörfundur fer fram í Félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit og verður kjörstaður opinn frá klukkan 10 til 18. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Fjármálaráðherra getur ekki skýrt útgjaldaliðinaDaði Már Kristófersson fjármálaráðherra vísar til utanríkisráðuneytisins, spurður að því hvað felist í ýmsum útgjaldaliðum sem íslensk stjórnvöld telja til öryggis- og varnarmála. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Orðskrúð í menntaáætlun stjórnvaldaÍslensk stjórnvöld hafa kynnt drög sín að þriðju aðgerðaáætlun ríkisins í menntamálum til næstu fjögurra ára þar sem meðal annars er stefnt að því að hækka hlutfall þeirra nemenda sem búa yfir grunnfærni í lesskilningi við lok grunnskólagöngu úr 56% upp í 65%. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Committee reshuffle within ViðreisnSandra Sigurðardóttir, Viðreisn MP for the South Constituency, has replaced Ingvar Þóroddsson, the party's lead candidate in the Northeast Constituency, on the Budget Committee. Ingvar has taken Sandra's place on the Welfare Committee. The changes were announced in Alþingi yesterday. RUV - Fréttir á Ensku News In English
Pólska þingið samþykkir breytingar á lögum um þungunarrofKosið var um tvenn lagafrumvörp til breytinga á lögum um þungunarrof á pólska þinginu í gær. Ríkisstjórn Donalds Tusk lofaði afglæpavæðingu þungunarrofs í aðdraganda pólsku þingkosninganna árið 2023. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
NATO sendir liðsauka að SvartahafiAtlantshafsbandalagið tilkynnti í gær að sendur verði liðsauki til Svartahafs vegna drónaárása á flutningaskip úti fyrir ströndum Búlgaríu og Rúmeníu undanfarið. Sex drónaárásir hafa verið gerðar þar á síðustu tíu dögum. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Fyrsta staðfesta tilfelli ebólu síðan 2014Yfirvöld í Nígeríu hafa staðfest fyrsta tilfelli ebólu í landinu. Þetta er fyrsta tilfelli ebólu í Nígeríu síðan 2014. Kona sem hafði ferðast frá Úganda til Abuja, höfuðborgar Nígeríu, var lögð inn á spítala vegna veikinda en var síðan greind með ebólu. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
„Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði? “Jasmina Vajzovic, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, gagnrýnir ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, í garð múslima. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Óeirðabál frá Frakklandi til AlbaníuEvrópa logar og akurinn er plægður fyrir kraumandi ólgu. Frakkland er í brennidepli en þau eru fleiri löndin þar sem pupullinn segir stjórnarherrunum til syndanna vegna krappra kjara alþýðu á meðan aðrir halda grímuklæddir út á götu. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Upplýsingamiðlun Bandaríkjanna „virkar núna“Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að miðlun bandarískra leyniþjónustuupplýsinga um mannskæðar eldflaugaárásir Rússa „virki núna“ eftir að viðræðum hans við sérstakan erindreka Bandaríkjanna, Steve Witkoff, lauk fyrr í kvöld. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Hrókeringar hjá ViðreisnSandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi, hefur tekið sæti Ingvars Þóroddssonar, oddvita flokksins í Norðausturkjördæmi, í fjárlaganefnd. Ingvar tekur sæti Söndru í velferðarnefnd í staðinn. Þetta var tilkynnt í þinginu í gær. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Beinbrot og heyrnartap ekki harkalegt kynlífLögfræðingur sem hefur sérhæft sig í kynferðisafbrotamálum segir niðurstöðu meirihluta Landsréttar um að sýkna mann sem áður hafði hlotið fimm ára dóm fyrir nauðgun koma verulega á óvart. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Andlit National Geographic segir transið hafa eyðilagt líf sittÞess í stað hefur því verið kennt að sækjast eftir grípandi myndum og yfirborðskenndum persónulegum frásögnum sem reita fullorðna til reiði og beina athyglinni að tískustraumum meðal ungs fólks. Frettin - Erlendar fréttir Erlendar fréttir
MAX 10 fær grænt ljós eftir áralangar tafirBandarísk flugmálayfirvöld veittu Boeing 737 MAX 10 endanlegt samþykki í dag. Þar með hefur nýjasta útgáfa þessarar vinsælu farþegaþotu með einum gangi hlotið vottun eftir langvarandi tafir. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Saga í skipsflaki við SpánFlak tvímastraðs seglskips, að öllum líkindum, en þó ekki örugglega, ítalska kaupskipsins Galigniano, sem sökk 23. nóvember 1887 úti fyrir Cabopino-ströndinni í Marbella í Málaga-héraðinu á Suður-Spáni, geymir meira en þörunga og saltan sjó. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Witkoff hittir Pútín eftir viðræður við SelenskíVolodimír Selenskí Úkraínuforseti átti „afar árangursríkar og uppbyggilegar viðræður“ við sendifulltrúa Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í Ósló í dag, að sögn bandarísks embættismanns sem ræddi við AFP. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufullaFormaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar segist hafa verulegar áhyggjur af áformum dómsmálaráðherra um fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú. Hann segir farið gegn vilja landsbyggðarinnar í málinu og er hann efins um að staðið verði við loforð um að lögreglustöðinni á Ísafirði verði ekki lokað. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Trump lofar Le Pen sem „rödd íhaldsmanna“Donald Trump Bandaríkjaforseti lofaði Marine Le Pen í dag sem „rödd íhaldsmanna“ í Frakklandi í kjölfar víðtækra óeirða í landinu. Hann gekk þó ekki svo langt að lýsa yfir stuðningi við framboð hennar í forsetakosningunum á næsta ári. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Hverjir brenna bústaði Suðurmæris?Bruni tíu sumarbústaða á þremur árum á tiltölulega litli svæði á Suðurmæri í norska fylkinu Mæri og Raumsdal er ráðgáta sem lögregluyfirvöld staðarins standa ráðþrota frammi fyrir og nú hafa kviksögurnar tekið að sveima um sveit og bæi. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Launalægri óttast frekar áhrif gervigreindar á störf sínGervigreind er þegar farin að breyta störfum og búist er við að áhrif hennar á vinnumarkaðinn verði víðtæk á komandi árum. Þá hefur skýrsla Vörðu, rannsóknarstofnunar atvinnulífsins, um áhrif tækni- og loftslagsbreytinga á störf launafólks verið birt. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Erfingi Max Factor-veldisins laus úr fangelsi – Bæjarstjórinn æfurAndrew Luster, erfingi hins þekkta snyrtivöruveldis Max Factor, hefur verið látinn laus úr fangelsi í Kaliforníu eftir að hafa afplánað um 20 ár af 124 ára fangelsisdómi sem hann hlaut meðal annars fyrir nauðganir. David Fredendall, bæjarstjóri Glendora í Kaliforníu, fór hörðum orðum um á DV Pressan Erlendar fréttir
Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn NorðurorkuÁ aukaaðalfundi Norðurorku sem fram fór í dag var stigið mikilvægt skref í því hvernig Akureyrarbær hyggst sinna hlutverki sínu sem stærsti hluthafi fyrirtækisins. Í fyrsta sinn voru óháðir stjórnarmenn tilnefndir til setu í stjórn félagsins. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunarÞiðnun sífrera vegna hnattrænnar hlýnunar er talin orsök þungmálma í drykkjarvatni á Svalbarða. Íbúum þar hefur verið ráðlagt að drekka ekki kranavatn vegna mengunarinnar. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
„Eftir tíu daga í skónum var ég kominn á hækjur“Sem barn spilaði hann fótbolta, hljóp um og stundaði bæði skíði og gönguskíði án nokkurra vandkvæða, en um fimmtán ára aldur missti hann skyndilega máttinn í vinstri fætinum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Árásir landtökufólks á ólífubændur aukastÍsraelska lögreglan hefur handtekið tíu sem eru grunaðir um árásir á diplómata og bandaríska fjölmiðlakonu. Árásir landtökufólks á ólífubændur eru þegar orðnar fleiri í ár en í fyrra þótt mánuður sé eftir af uppskerutímanum. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Seltjarnarnesbær verður að hagræðaMörg sveitarfélög standa frammi fyrir erfiðari rekstri en áður. Við blasir að þau verða að fara í hagræðingaraðgerðir. Fámennasta og minnsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu er eitt þeirra. „Við, líkt og önnur sveitarfélög, stöndum náttúrulega frammi fyrir miklum áskorunum þessa dagana. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Þetta er bara grafalvarlegt“„Þetta er bara grafalvarlegt,“ segir Agnes Ósk Marzellíusardóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um sölu falsaðra rafrænna skilríkja til yfir 300 ungmenna. Með kaupunum gátu ungmennin óafvitandi veitt ókunnugum aðila aðgang að viðkvæmum upplýsingum úr símum sínum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Meintir njósnarar handteknir í DanmörkuTveir ungir menn í Álaborg í Danmörku hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um að njósna um danskt varnarmálafyrirtæki í þágu rússneskra stjórnvalda. Lögregla leitar enn að þriðja manninum. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Liggur yfir umsögnum um umdeildan náttúrupassaFrumvarp um náttúru- og innviðagjald verður lagt fram á Alþingi á næstu vikum. Áformin sættu töluverðri gagnrýni í samráðsferli og ráðherra skoðar hvort hægt sé að koma til móts við þá gagnrýni, meðal annars hvort passinn gildi á fleiri staði. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hiti undir frostmarki og hálka á vegumHiti er undir frostmarki á fjallvegum á Norðurlandi og á Vestfjörðum. Þar af leiðandi er hálka og krapi á nokkrum vegum og ökumenn verða að hafa varann á. Hálka er á Holtavörðuheiði og á leiðum milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar. Þá eru hálkublettir á nokkrum leiðum á Fróðárheiði, m.a. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflumYfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala kallar eftir frekari rannsóknum á notkun geðrofslyfsins quetiapíns við svefnleysi. Notendum lyfsins hefur fjölgað verulega á síðustu tíu árum, einkum meðal eldra fólks. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir