Sýnir: Fréttir og undirflokka
22.936 fréttir fundust
Síða 207 af 459
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Halli ríkissjóðs jókst um tíu milljarða milli áraAfkoma hins opinbera versnaði á öðrum ársfjórðungi ársins. Hallinn nam 48,3 milljörðum króna, eða 3,8 prósentum af landsframleiðslu fjórðungsins, samkvæmt nýjum bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Á sama tíma í fyrra nam hallinn 3,0 prósentum af landsframleiðslu. Heimildin - Efnahagsmál Innlendar fréttir
Yfir tvö þúsund laxar á land úr Jöklu í sumar„Þetta var vissulega gleðilegur áfangi og veiðin var fín í gær líka svo það á eftir að bætast meira í,“ segir Þröstur Elliðason, leigutaki árinnar, en það er fyrir hans atbeina síðustu tuttuga ár tæp, sem tekist hefur að byggja upp laxarækt í ánni. Austurfrétt - Fréttir Héraðsfréttir
Ákærður vegna banaslyss við Vík í sumarÖkumaður hefur verið ákærður fyrir hegningar- og umferðarlagabrot með því að hafa valdið banaslysi í sumar, nánar tiltekið laugardaginn 20. júní á Kerlingardalsvegi austan við Vík. Í ákærunni sem dagsettt er 11. september er atvikinu lýst þannig: DV Fréttir Fréttir
Bílastæðafyrirtæki þurfa að endurgreiða milljarðaNorskur dómstóll hefur gert innheimtufyrirtækinu Riverty að endurgreiða norskum bílstjórum um 300 milljónir norskra króna, sem jafngildir tæpum fjórum milljörðum íslenskra króna, vegna ólögmætra innheimtugjalda á einkabílastæðum. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnarNýr meirihluti vill gera úrbætur á aðgengi og upplýsingagjöf um bílastæðahúsin í borginni. Þau séu vannýtt. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti nýlega að minnka gjaldskyldu í miðbæ um klukkutíma. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrirBæði Rússar og Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á innviði hvor annars. Er það eftir að Donald Trump staðhæfði að ráðamenn í báðum ríkjum hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði. Ekkert samkomulag virðist hafa verið í höfn þegar Bandaríkjaforseti lýsti þessu yfir. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Varað við snörpum hviðum á SuðvesturlandiÍ nótt er búist við hvassviðri úr suðaustri um suðvestanvert landið með hviðum að 35 metrum á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi, og jafnvel við Eyjafjöll. Þetta kemur fram í tilkynningu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufriðAðalstjórn SÁÁ segir í forgangi að funda með starfsfólki og tryggja „vinnufrið, öryggi og traust“ innan samtakanna. Aðalstjórn lýsir í ályktun yfir stuðningi við framkvæmdastjórn SÁÁ í þeirri vinnu framkvæmdastjórnar sem miðar að því að tryggja að heilbrigðisþjónusta samtakanna haldi áfram. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ásmundur heldur áfram að dæma fólkÁsmundur Helgason hefur verið skipaður forseti Félagsdóms, en hann gegndi áður embætti varaforseta dómsins. Breytingarnar koma í kjölfar þess að Ásgerður Ragnarsdóttir, fráfarandi forseti, lét af störfum til að taka við embætti dómara við Hæstarétt þann 1. september síðastliðinn. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Aðalstjórn SÁÁ lýsir stuðningi við framkvæmdastjórnFramkvæmdastjórn SÁÁ heldur starfi sínu áfram. Þetta varð ljóst þegar aðalstjórn félagsins samþykkti stuðningsyfirlýsingu við hana á fundi í gærkvöld. Mikil óánægja hefur ríkt meðal starfsmanna SÁÁ undanfarið vegna framgöngu stjórnar. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
From The Archives: Bjarni Ben Becomes Prime MinisterOn September 10, 2026, RÚV reported that Bjarni Benediktsson received a telephone call from President Elect Donald Trump stating an intent to make Iceland a 51st US state. We have reported that here. The Reykjavík Grapevine-News News In English
Svona ætlar Cloudflare að breyta internetinuBandaríska fyrirtækið Cloudflare byrjar í dag að meina vitvélum og leitarvélum með mörg verkefni að skrapa vefsíður án leyfis eða greiðslu. Skröpurum verður þá bannað að fylla í leitarskrár og þjálfa gervigreind á sama tíma. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Svona ætlar Cloudflare að breyta internetinu í dagBandaríska fyrirtækið Cloudflare byrjar í dag að meina vitvélum og leitarvélum með mörg verkefni að skrapa vefsíður án leyfis eða greiðslu. Skröpurum verður þá bannað að fylla í leitarskrár og þjálfa gervigreind á sama tíma. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Ísafjarðarbær: framlengir styrk við Act aloneMenningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar samþykkti í gær á fundi sínum að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja endurnýjum samnings við Act Alone fyrir sem gildir fyrir árin 2027-2029. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Síðasti varnargarðurinn á Seyðisfirði vonandi fullbúinn um miðjan nóvemberVarnargarðarnir eru alls þrír talsins: Öldugarður, Fjarðagarður og Bakkagarður. Árið 2024 var lokið við Fjarðagarðinn, sem þvergarður á milli hinna tveggja. Í fyrra kláraðist Öldugarðurinn. Eftir það hefur allur krafturinn verið settur í Bakkagarðinn og hann er að klárast. Austurfrétt - Fréttir Héraðsfréttir
Vertíðin hafin: „Alltaf gaman að veiða síld“Vilhelm Þorsteinsson EA-11 kom til Eskifjarðar í gærmorgun með um 950 tonn af síld, sem er fyrsti farmur skipsins á nýhafinni síldarvertíð. Skipið var að veiðum austur af landinu og gekk túrinn ágætlega, að sögn Birkis Hreinssonar skipstjóra á Vilhe... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
48,3 milljarða halli hjá hinu opinberaTekjur hins opinbera jukust mun minna en útgjöldin á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt tölum Hagstofunnar sem voru birtar í dag. Tekjur jukust um 4,3% en útgjöld um 6,1%. Þetta átti sinn þátt í að afkoma hins opinbera var neikvæð um 48,3 milljarða króna. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Síldarvertíð er hafin hjá SamherjaVilhelm Þorsteinsson EA-11 kom til Eskifjarðar í gærmorgun með um 950 tonn af síld, sem er fyrsti farmur skipsins á […] Kaffið.is - Fréttir Héraðsfréttir
Hvattir til að hætta undirbúningi fyrir stríð í geimnumStjórnvöld í Kína hvöttu Bandaríkin í dag til að „hætta undirbúningi fyrir stríð“ í geimnum, eftir að bandaríski geimherinn staðfesti að hann hefði komið vopnum fyrir á sporbaug í fyrsta sinn. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Íslendingar sigruðu nígerísk fyrirtæki í héraðsdómiStefnandi hélt því fram að Klumba hefði tekið við greiðslum án þess að afhenda umsamið magn afurða. Dómurinn taldi hins vegar ósannað að Klumba hefði beitt svikum eða blekkingum. Þá næði viðskiptayfirlit, sem krafan byggðist á, til margra viðskiptamanna og uppruni hluta greiðslnanna væri óljós. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Ásmundur verður forseti FélagsdómsRagnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað Ásmund Helgason forseta Félagsdóms. Hann var varaforseti dómsins en tekur við forsetaembættinu af Ásgerði Ragnarsdóttur sem lét af því embætti þegar hún var skipuð dómari við Hæstarétt. Björn L. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Heildarafli í ágúst 71 þúsund tonnLandaður fiskafli í ágúst 2026 var 71 þúsund tonn, 33 prósentum minni en í ágúst árið á undan, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Afföll hjá Kaldvík hafa aukist um 6,5 prósentustig eftir marglyttuárásinaFélagið vildi í síðustu viku ekki svara frekari spurningum Austurfréttar um atvikið og vísaði til þess að það gæti ekki tjáð sig um einstaka atburði umfram það sem fram kæmi í markaðstilkynningum. Í tilkynningunni frá í morgun segir að Kaldvík muni veita nánari upplýsingar þegar við á. Austurfrétt - Fréttir Héraðsfréttir
Ferðamenn varaðir við paradísareyjunni - Orlofshús brennd eða sprengd í loft uppVopnaðir aðskilnaðarsinnar á frönsku Miðjarðarhafseyjunni Korsíku hafa sent ferðamönnum, aðkomufólki og þeim sem hyggjast kaupa sér orlofseign á eyjunni skýr skilaboð: Haldið ykkur heima. Átök um sjálfstæði Korsíku frá Frakklandi eiga sér áratugalanga sögu en á síðustu árum hefur baráttan DV Pressan Erlendar fréttir
Segja að marglyttum hafi fækkaðÞrátt fyrir ágang marglyttu á eldissvæðum Kaldvíkur í Reyðarfirði eru horfur félagsins um slátrun á þessu ári óbreyttar, eða um 17 þúsund tonn. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Útlendingum fækkað það sem af er áriErlendum ríkisborgurum sem eru skráðir með búsetu á Íslandi hefur fækkað um 519 eða 0,6 prósent frá því í desember. Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 2.405 eða um 0,7 prósent. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Miklar raskanir vegna gruns um skemmdarverkLestarsamgöngur víða í Hollandi stöðvuðust í dag eftir það sem yfirvöld grunar að hafi verið samræmd skemmdarverk þar sem rör voru fest við lestarteina á mörgum stöðum. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Marglyttum sem herjuðu á laxa á Reyðarfirði fækkarDauði meðal laxa í eldiskvíum Kaldvíkur á Reyðarfirði jókst alls um 6,5% síðan 4. september eftir að marglyttur herjuðu á kvíarnar. Í tilkynningu til kauphallarinnar segir Kaldvík að brugðist hafi verið við þessu með því að auka slátrun úr völdum kvíum og að skip hafi verið kölluð til svo hægt væri… Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Nýtt og betra ON app komið í loftiðNýtt og endurbætt ON app er nú komið í loftið. Með nýja appinu stígum við næsta skref í því að þróa hleðsluþjónustu ON og gera hleðsluupplifun viðskiptavina enn betri. Tígull.is Héraðsfréttir
Kjötsúpukvöld Karlakórsins í Kiwanis á föstudagKarlakór Vestmannaeyja býður alla karlmenn velkomna í kjötsúpuveislu í Kiwanishúsinu nk. föstudag, 18. September, kl. 20.00 Kjötsúpukvöld KKVE er kjörið tækifærið til að kynna sér starf kórsins og jafnvel ganga til liðs við einn skemmtilegasta félagsskap sem hugsast getur. Tígull.is Héraðsfréttir
Ljósmyndasýning Ferðafélags Ísfirðinga á laugardaginnLaugardaginn 19. september verður síðasta gönguferð ársins hjá Ferðafélagi Ísfirðinga. Það er óvissuferð. Að henni lokinni tekur við annar viðburður hjá ferðafélaginu. Það er ljósmyndasýning. Engin smáræðis sýning, því um 1.500 myndir verða sýndar. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Nýtt og betra ON app komið í loftiðNú er nýtt og endurbætt ON app komið í loftið. Með nýja appinu stígur Orka náttúrunnar næsta skref í því að þróa hleðsluþjónustu sína... DFS.is - Fréttir Héraðsfréttir
Tónlistarskóli A-Hún. fékk gefins rafmagnspíanóÁ dögunum barst Tónlistarskóla Austur-Húnavatnssýslu einstaklega góð og kærkomin gjöf þegar Minningarsjóður hjónanna frá Garði og Vindhæli gaf skólanum rafmagnspíanó ásamt píanóstól. Feykir.is Héraðsfréttir
Táknræn gjöf til krabbameinsdeildar HSUKrabbameinsfélag Árnessýslu færði krabbameinsdeild HSU fallega bjöllu sem mun fá sérstakan sess á göngudeild. Við að hringja bjöllu í lok krabbameinsmeðferðar markar lok ákveðins kafla... DFS.is - Fréttir Héraðsfréttir
Dísilverð aldrei hærra í BandaríkjunumDísilverð hefur aldrei verið hærra í Bandaríkjunum en í dag. Gallonið af dísil er komið í 6,27 lítra. Ástæðan er miklar verðhækkanir vegna stríðs Bandaríkjanna og Írans sem hefur lokað að mestu fyrir eldsneytisútflutning frá Persaflóa. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrluTveimur blysum var skotið frá rússnesku skipi á danska herþyrlu sem var við reglulegt eftirlit í gær. Danska utanríkisráðuneytið hefur kallað rússneska sendiherrann á sinn fund vegna uppákomunnar. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Nýtt og endurbætt ON app komið í loftiðOrka náttúrunnar hefur tekið í notkun nýtt og endurbætt ON app. Með appinu er ætlunin að bæta hleðsluupplifun viðskiptavina og auka möguleika þeirra sem nýta hleðsluþjónustu ON. Meðal nýjunga í appinu er að nú er hægt að nota bæði Apple Pay og Google Pay til að greiða fyrir hleðslu. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Hafna viðræðum til hægriÁ morgun verður lokaniðurstaða þingkosningana í Svíþjóð ljós en óformlegar þreifingar formanna flokka eru þó þegar hafnar. Miðflokkurinn hafnaði í gær viðræðum við flokk núverandi forsætisráðherra og sagði hann hafa tapað kosningunum. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Ekki liggur fyrir hvort árásardróni var á ferðOrrustuþotur skutu niður dróna í Kaunas-sýslu í Litáen í nótt. Herinn gaf út gula hættuviðvörun vegna drónans og lofthelginni var lokað um tíma af öryggisástæðum. Dróninn flaug inn í lofthelgi Litáens skömmu eftir miðnætti að staðartíma og var strax gefin út hættuviðvörun vegna hans. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Rússar skutu blysum að danskri herþyrluÁhöfn rússneskrar freigátu skaut tveimur blysum að þyrlu danska hersins sem fylgdist með ferðum skipsins. Annað blysið fór nærri þyrlunni en olli ekki skaða. Freigátan var á siglingu á alþjóðlegum siglingaleiðum milli Sjálands í Danmörku og Þýskalands, suður af Gedser. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
13 særðust í árásum Húta á Sádi-Arabíu13 særðust í flugskeyta- og drónaárásum Húta í suðurhluta Sádí-Arabíu í nótt. Hútar hafa einnig gert árásir á olíuinnviði í Sádí-Arabíu. Yfirvöld í Sádí-Arabíu hafa hótað að svara fyrir árásirnar. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir TrumpNýr úrskurður Hæstaréttar Bandaríkjanna um póstatkvæði í þingkosningunum í nóvember er vonbrigði fyrir Donald Trump forseta. Trump undirritaði forsetatilskipun í mars þar sem innleiða átti nýjar kröfur með það að markmiði að takmarka slík atkvæði. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Svaf ölvunarsvefni í GarðabæNokkur værð var yfir höfuðborgarsvæðinu í nótt og fá stærri mál komu inn á borð lögreglu. Þrír gistu fangageymslur þegar dagbók lögreglunnar var rituð. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir