Sýnir: Fréttir og undirflokka
22.924 fréttir fundust
Síða 181 af 459
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrunAtvinnuvegaráðuneytið staðfesti í ágúst ákvörðun MAST um að leggja 288 þúsund króna stjórnvaldssekt á nautgriparæktanda vegna ítrekaðra alvarlegra frávika. Sektin var lögð á hann í desember í fyrra en hann kærði ákvörðunina til atvinnuvegaráðuneytisins sem hefur nú staðfest hana með tilliti til… Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Einn hirti tæpar 130 milljónir í lottóinu í kvöldStálheppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í lottóútdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 129 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá. DV Fréttir Fréttir
Einn fékk 129 milljónir í fyrsta vinnigStálheppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó í kvöld og fær hann rúmar 129,2 milljónir króna í sinn hlut. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tvö mál vegna heimilisofbeldis til rannsóknarÍ einu tilviki var ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum bæði áfengis og fíkniefna. Maðurinn reyndist jafnframt vera án ökuréttinda og er einnig grunaður um brot gegn vopnalögum þar sem hann var með hníf. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklætiÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir fundaði með utanríkisráðherra Úkraínu í dag en sá síðarnefndi segist hafa lýst þakklæti á fundi sem hann átti með utanríkismálanefnd Alþingis. Þar hafi verið lögð áhersla á að styrkja samstarf ríkjanna. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Milljarður á dag og orðspor Íslands undir í kjaradeilu flugvirkjaFormaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að tekjutap af yfirvofandi verkfalli flugvirkja geti hlaupið á milljörðum fyrir greinina. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni. Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Evrópsambandsríki deila um rússneska auðmennDeilur meðal ríkja Evrópusambandsins um hvort fella eigi rússneska auðmenn af refsiaðgerðalista sambandsins hafa harðnað eftir að Lúxemborg krafðist þess að Mikhail Fridman yrði tekinn af listanum ef Frakkland fengi sambærilega undanþágu fyrir Alisher Usmanov. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Trump segist ekki líða tilraunir til að hægja á vexti gervigreindarDonald Trump Bandaríkjaforseti réðst á laugardag harkalega gegn gagnrýnendum gervigreindar og gagnavera og sagðist ekki ætla að leyfa „eyðileggingu“ greinarinnar. Jafnframt tilkynnti hann um stofnun nýrrar „gervigreindarsérsveitar“ á vegum stjórnvalda. Heimildin - Erlent Erlendar fréttir
Stólarnir lögðu lið Sindra á Gastec æfingamótinuKarfan.i segir frá því að Tindastóll innbyrti sinn annan sigur á Gastec æfingamótinu í Varðarhöllinni á Egilsstöðum í dag þegar liðið hafði betur gegn Sindra, 93–79, í öðrum leik mótsins í dag. Áður höfðu Stólarnir lagt lið Hattar sl. fimmudagskvöld, 65-69, og eru því sigurvegarar mótsins. Feykir.is Héraðsfréttir
Vatnsdalshólarnir eru annað hvort 729 eða 1836Vatnsdalshólarnir í Austur-Húnavatnssýslu, líkt og eyjarnar á Breiðafirði og vötnin á Arnarvatnseheiði, verið sagðir óteljandi. Kannski eru þetta gamlar fréttir en á Vísindavef Háskóla Íslands var greint frá því í gær að hólarnir í Vatnsdal væru annað hvort 729 eða 1836 en niðurstöðutalan fer eftir… Feykir.is Héraðsfréttir
Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væriLögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti í dag útkalli þar sem ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Sá reyndist einnig vera með hníf á sér og án ökuréttinda. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Beið af sér jarðarför fyrir ökuskírteiniðJóhannes Reykdal er hreinræktaður bíladellukarl svo jaðrar við greiningu. Hann eignaðist fyrsta bílinn ungur, 1939 árgerð af Morris 8, og var ekki ánægður þegar hann fékk skírteinið ekki á afmælisdaginn vegna jarðarfarar. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Við erum öll í áfalli“Kona á fertugsaldri er látin eftir að hafa fallið tugi metra í fjallgöngu á hinu 1.329 metra háa fjalli Romsdalseggen í Mæri og Raumsdal í Noregi þar sem þau ferðafélagi hennar voru við það að ná toppi fjallsins í morgun. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Ræddu þvingunaraðgerðir gegn RússumÁframhaldandi stuðningur Íslands í varnarmálum, efnahags- og mannúðaraðstoð og þvingunaraðgerðir gegn Rússum voru til umræðu á fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Andrii Sybiha utanríkisráðherra Úkraínu í dag. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunniFyrirtækið Stóruvellir ehf. í Bárðardal hættir nú framleiðslu á tólg, hamsatólg, hangifloti og útikertum eftir rúma þrjá áratugi. Nema það taki einhver við keflinu verður því ekki hægt að nálgast hamsatólg í matvöruverslunum þegar lager fyrirtækisins klárast enda eru þau ein um að framleiða hana. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Air China framlengir flugáætlun til ÍslandsAir China hefur ákveðið að halda áfram flugi til Íslands yfir sumarið 2027 og verður leið félagsins milli Peking og Keflavíkur því ekki bundin við vetraráætlun eins og upphaflega var kynnt. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Grunuð um að byrla mönnum lyf og stela Rolex-úrunum þeirraLynda Mae Crouse, 32 ára kona frá Flórída, er sökuð um að hafa byrlað mönnum lyf og stolið af þeim verðmætum úrum. Crouse var handtekin í síðustu viku vegna máls frá 12. apríl. Þá kynntist hún manni á skemmtistað í Hallandale Beach í Flórída. DV Pressan Erlendar fréttir
Skrifstofa lögmanna verði hótelLögmannafélag Íslands áformar að breyta skrifstofubyggingu félagsins í Álftamýri 9 í hótel eða gistiheimili. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið jákvætt í erindið, en þó með skilyrðum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fjölmiðlar fordæma bann við komu í Hvíta húsiðBandarísku miðlarnir CNN, MS Now og Politico fordæmdu í dag bann Bandaríkjaforseta við komu blaðamanna þeirra í Hvíta húsið í Washington. Donald Trump Bandaríkjaforseti sakaði miðlana í gær um að deila falsfréttum og sagði að fleiri fjölmiðlum yrði meinaður aðgangur að Hvíta húsinu í kjölfarið. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Revenue losses could run into billions ISKThe board of the Icelandic Travel Industry Association (SAF) has expressed serious concern about the damaging effects of the planned indefinite strike by Icelandair aircraft mechanics. MBL Fréttir á Ensku News In English
Kínverjar í uppnámi vegna refsiaðgerðaDonald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög um umfangsmiklar nýjar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna stríðsins í Úkraínu. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sérTveir erlendir ríkisborgarar, karl og kona, hafa verið dæmdir í fimm og þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti. Við skýrslutökur breyttist framburður þeirra beggja iðulega en maðurinn sagði konuna hjákonu sína á meðan konan sagði þau ætla að gifta sig. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Krúttlegir gestir heimsækja BangsaspítalannKrúttlegir bangsar og eigendur þeirra litu við á Bangsaspítalanum í dag. Eftir að börnin innrituðu bangsana fylgdu bangsalæknar börnunum og böngsunum inn á læknastofu þar sem þeir fengu þá aðhlynningu sem þeir þurftu á að halda. Bangsaspítalinn er árlegur viðburður og tilgangur hans er tvíþættur. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hnífaárásrás sundþjálfara harmleikurLögregla var kölluð til, en þjálfari KR mun hafa flúið vettvang á bíl. Lögregla veitti honum eftirför og ók á bifreiðina til að stöðva hana því hann fylgdi ekki fyrirmælum. Maðurinn slóst við lögreglu en var loks handtekinn, að því er fram kom í dagbók lögreglu í gærmorgun. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Fjárhagsstaða foreldra eigi ekki að takmarka tækifæri barnaMennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna á Íslandi. Skýrsla um fátækt barna og stöðu barnafjölskydlna var birt í vikunni og sýndi að dregið hefði úr fátækt barna frá aldamótum, úr 16,5% í 12,6%. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ríkisstjórnin sækir milljarð til sjúklingaGert er ráð fyrir að aukin greiðsluþátttaka sjúkratryggðra skili ríkissjóði um einum milljarði króna á þessu ári. Ekki liggur þó fyrir opinber sundurliðun á því hvaða gjöld voru hækkuð eða hversu mikil áhrif breytingarnar hafa á einstaka sjúklingahópa. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Árás sundþjálfara harmleikur segir forseti ÍSÍForseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) segir atvik fyrir utan fund Sundsambands Íslands á fimmtudagskvöld hafa verið harmleik. Hann segir ÍSÍ í samskiptum við sambandið og félögin sem um ræðir og reynt sé að hlúa að öllum sem áttu hlut að máli. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“Fyrrverandi framkvæmdastjóri SÁÁ líkir átökum innan samtakanna við „klassíska valdabaráttu“ og sakar fráfarandi forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga hafa ætlað að sölsa undir sig völd. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hælisleitandi rændi strætisvagni og ók á bílaStrætisvagni var stolið af hælisleitanda í Shropshire í Bretlandi eftir hafa ráðist á bílstjórann, en vagninn lenti síðar í árekstri við röð kyrrstæðra bíla. Á myndskeiðum sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum má sjá mann… Frettin - Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Rúmlega ellefu milljóna króna styrkur í fuglaskoðunarskýli á LeirutangaFramkvæmdasjóður ferðamannastaða er tilbúinn að veita rúmlega ellefu milljóna króna styrk til byggingar fuglaskoðunarskýlis á Leirutanga, komist verkefnið á framkvæmdaáætlun Fjallabyggðar árið 2027. Fjallabyggð og Framkvæmdasjóður ferðamannastaða gerðu samning um verkefnið árið 2024. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Íbúar Fjallabyggðar orðnir 2.027Íbúum Fjallabyggðar fjölgaði um tíu frá 1. desember 2025 til 1. september 2026 samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár Íslands. Alls voru 2.027 íbúar skráðir með búsetu í Fjallabyggð 1. september, samanborið við 2.017 íbúa 1. desember á síðasta ári. Fjölgunin nemur því um 0,5 prósentum á tímabilinu. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Smalamennskur í uppáhaldi | Segir Bjarni á MannskaðahóliÁ Mannskaðahóli á Höfðaströnd í Skagafirði búa Bjarni Salberg Pétursson og Sunna Dís Bjarnadóttir ásamt börnum sínum Árnýju Birtu 8 ára, Halldóri Helga 6 ára og Þorbjörgu Evu 1 árs. Bjarni og Sunna eru bæði búfræðingar frá Hvanneyri. Bjarni og Sunna keyptu jörðina af foreldrum Sunnu 2018. Feykir - Bændur Bændur
Fjallabyggð tekur þátt í uppbyggingu verknámshúss VMAFjallabyggð verður meðal sveitarfélaga við Eyjafjörð sem taka þátt í kostnaði við fyrirhugaða stækkun verknámshúss Verkmenntaskólans á Akureyri. Stefnt er að allt að 1.500 fermetra viðbyggingu fyrir verk- og starfsnám og að framkvæmdum verði lokið árið 2029. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinuNýr meirihluti í Reykjavík hefur sniðið nýja umgjörð um nýtt daggæslustig fyrir 12 til 30 mánaða börn í Reykjavík. Sigrún Ásta Einarsdóttir, formaður daggæslu- og leikskólaráðs í borginni, segir breytingarnar háðar reglugerðarbreytingum. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Undirbúa lokun Heilbrigðiseftirlits SuðurlandsStjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga hefur fundað vegna málsins og ítrekar í bókun mikilvægi þess að faglega sé staðið að umskiptunum gagnvart starfsfólki. Stjórn SASS leggur áherslu á að ríkið nýti sér þann mikla mannauð og staðarþekkingu sem þegar er til staðar á Suðurlandi við uppbyggingu á… Sunnlenska - Fréttir Héraðsfréttir
Belarús hélt heræfingar nærri Póllandi og LitháenBelarús stóð fyrir heræfingum nálægt vesturlandamærum sínum að Evrópusambandinu í vikunni, að því er varnarmálaráðuneyti landsins greindi frá á samfélagsmiðlum. Æfingarnar vörðu frá þriðjudegi til föstudags. Spenna hefur aukist milli Rússlands og Evrópu vegna stríðsins í Úkraínu. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvertUm 2.400 þátttakendur frá yfir 150 skólum um allt land sækja nú rafræna ráðstefnu um skólamál. Verkefnið hófst með samtali kennara á samfélagsmiðlinum Twitter en hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir