Sýnir: Fréttir og undirflokka
22.899 fréttir fundust
Síða 145 af 458
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Fá loksins að fagna aldarafmælinuÞyrlu Landhelgisgæslunnar verður lent við Hörpu í dag í tilefni af hundrað ára afmæli Landhelgisgæslunnar. Ekki tókst að fagna afmælinu í sumar vegna komu Bandero til landsins. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Rússland undirbýr sig ekki fyrir stríð við Evrópu – PútínRússland brást við árásum á almenna borgara, sagði Pútín, og benti sérstaklega á „viðamikla“ úkraínska árás á Moskvu þann 20. september, auk árása á íbúðarhús og kjörstjórnarfólk. Hann lýsti gagnárásum Rússa sem „næmum og eyðileggjandi“ fyrir úkraínskar hersveitir. Frettin - Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Gæslan heldur upp á 100 ára afmæliðLandhelgisgæslan fagnar 100 ára afmæli sínu í dag og heldur upp á tímamótin í Silfurbergi í Hörpu. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Árneshreppur: grjótskriða í KaldbaksvíkVegurinn í Árneshrepp er lokaðist í gærkvöldi vegna grjóthruns á veginn. Vegur verður í besta falli jeppafær eftir að Vegagerðin opnar segir á vef sveitarfélagsins. Stór skriða féll í Kaldbaksvík. Það er áfram mikil rigning í veðurkortunum svo það er ekki öruggt ferðaveður inn og út úr sveitinni. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Þessi hefð er ennþá sprelllifandiÁ árunum 1959 til 1961 birti Lesbók barnanna í Morgunblaðinu tvær framhaldsmyndasögur, „Njálsbrennu og hefnd Kára“ og „Grettissögu“. Teikningaranar voru eftir Halldór Pétursson og Kristján J. Gunnarsson ritstýrði textanum. Þær hafa nú í fyrsta skipti verið gefnar út í heild á bók. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“Tæp þrjú ár liðu frá því Rannveig Tenchi Ernudóttir og fjölskylda hennar keyptu hús í Stykkishólmi þar til þau fengu loks afsal fyrir eigninni. Húsið var sagt í góðu ástandi og vel við haldið en fljótlega komu, að sögn Rannveigar, í ljós leki, mygla, skemmdir á hitakerfi og vandamál með frárennsli. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Highland Base heldur Michelin-lyklinum„Við erum ákaflega stolt af þessari viðurkenningu. Hún er fyrst og fremst mikið hrós til starfsfólksins okkar sem tekur svo vel á móti gestum og leggur sig fram um að gera dvöl þeirra einstaka. Það er hlýjan, umhyggjan og fagmennskan, í stóru sem smáu, sem gerir dvölina einstaka. Sunnlenska - Fréttir Héraðsfréttir
Highland Base heldur Michelin-lyklinum„Við erum ákaflega stolt af þessari viðurkenningu. Hún er fyrst og fremst mikið hrós til starfsfólksins okkar sem tekur svo vel á móti gestum og leggur sig fram um að gera dvöl þeirra einstaka. Það er hlýjan, umhyggjan og fagmennskan, í stóru sem smáu, sem gerir dvölina einstaka. Sunnlenska - Fréttir Héraðsfréttir
Dýrt að flytja ruslið til Reykjavíkur„Sveitarfélögin eru að greina stöðuna. Enn liggja ekki neinar ákvarðanir fyrir,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri í Fjarðabyggð. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lík fannst í rústum byggingar sem hrundi í AþenuLík fannst í rústum byggingar sem hrundi í dag eftir sprengingu í hinu sögulega Plaka-hverfi í Aþenu í gær, að því er gríska fréttastofan ANA greindi frá, á meðan björgunarsveitir leituðu þeirra sem saknað var. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Hafi hafnað tillögu Írana um opnum HormússundsÍranir lögðu fram tillögu að samkomulagi við Bandaríkin um opnun Hormússunds innan við viku með milligöngu Katar. Bandaríkjaforseti er sagður hafa hafnað tillögunni. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Myndir: Settist niður í háloftunumFetaði sig 400 metra eftir örmjórri línu, um 80 metrum yfir jörðu, með aðeins jafnvægisstöng sér til halds og trausts. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Líkur á snjókomu á Vestfjörðum og áfram skriðuhættaVíðáttumikil lægð við norðausturströndina beinir norðlægri átt inn yfir norðvesturhluta landsins með talsverðri úrkomu. Vindur verður á bilinu 10–18 m/s. Á láglendi yfirleitt rigning en líkur á slyddu og snjókomu niður undir sjávarmál á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tugþúsundir mótmæla áformum Þjóðverja um herskylduLög Þýskalands um nútímavæðingu herskyldu, sem tóku gildi í janúar, krefjast þess að 18 ára gamlir karlmenn svari spurningalista um vilja sinn og hæfni til herþjónustu. Áætlað er að lögboðnar læknisskoðanir fyrir karlmenn sem fæddir eru árið 2008 eða síðar hefjist í júlí 2027. Frettin - Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Hittu Trump og Rubio í leiðtogaviku Sameinuðu þjóðanna„Á þeim umrótatímum sem við nú lifum er gríðarlega mikilvægt fyrir Ísland að taka virkan þátt í samstarfi þjóða og við gætum hagsmuna okkar Íslendinga með þeim hætti,“ segir Þorgerður Katrín inn á vef utanríkisþjónustunnar. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Ætlar að banna veðmál í íþróttumForseti Brasilíu, Luiz Inácio Lula da Silva, tilkynnti í gær um bann við veðmálasíðum á netinu. Bannið nær til allra veðmála í íþróttum. Veðmálamarkaðinum í Brasilíu hefur vaxið ásmegin á síðustu árum. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Litlar líkur á nýju lagareldisfrumvarpiTöluvert mikið þarf að koma til eigi frumvarp til nýrra heildarlaga um lagareldi að komast aftur á dagskrá. Þetta kemur fram í máli Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra í viðtali við Lagarlíf, sem fylgir Morgunblaðinu í dag. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Styrkumsóknir vegna fjárhagsáætlunargerðarVinna við gerð fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar og stofnana sveitarfélagsins fyrir árið 2027 er hafin. Af því tilefni auglýsir sveitarfélagið eftir umsóknum um styrki vegna verkefna á næsta fjárhagsári. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Persónusniðið verð: „Sumt af þessu er hálf ógeðfellt“Þórarinn Stefánsson er framkvæmdastjóri Mobilitus og stjórnarmaður í Neytendasamtökunum og finnst ákveðin mismunun í viðskiptum vera af hinu góða. Aftur á móti hrýs honum hugur við að fyrirtæki noti ýmis gögn um hann til að bjóða honum hærra verð en næsta manni. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Persónusniðin verð: „Sumt af þessu er hálf ógeðfellt“Þórarinn Stefánsson er framkvæmdastjóri Mobilitus og stjórnarmaður í Neytendasamtökunum og finnst ákveðin mismunun í viðskiptum vera af hinu góða, aftur á móti hrís honum hugur við því þegar fyrirtæki nota ýmis gögn um hann til að bjóða honum hærra verð en næsta manni. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðistHann er nú 28 ára gamall og stundar endurhæfingu á Grensásdeild eftir að frí í Karíbahafinu reyndist honum örlagaríkt. „Ég er hérna til að venja líf mitt við notkun hjólastóls og standa á fætur einn daginn,“ segir hann. Heimildin Innlent Innlendar fréttir
PIFF 2026: Ný þátttökulönd og stuttmyndir með Óskars-tenginguAlþjóðlega kvikmyndahátíðin PIFF verður haldin dagana 8.–11. október á Ísafirði, Súðavík og Þingeyri. Alls verða 41 kvikmynd frá 17 löndum sýndar á hátíðinni í ár, en hún fer nú fram í sjötta sinn eftir að hafa verið stofnuð árið 2021. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Trump mótfallinn áætlun Írana um opnun HormússundsBandaríkin hafa ekki brugðist opinberlega við eftir að Íran lagði fram áætlun um að opna aftur hið hernaðarlega mikilvæga Hormússund, þótt fréttir bentu til þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði hafnað tillögunni. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Koffínið varð Alfie að bana – Systir hans varar fólk við25 ára Breti lést eftir að hafa tekið inn mikið magn koffíns sem hann hafði keypt á netinu. Eiturefnamælingar sýndu banvænt magn koffíns í líkama hans. Breska blaðið Mirror greinir frá þessu. DV Pressan Erlendar fréttir
Einn fluttur á slysadeild eftir umferðarslysEinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild til aðhlynningar eftir umferðarslys í austurborginni í gærkvöld eða í nótt. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslysÓskað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna umferðarslyss í gærkvöldi eða nótt. Einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Slydda eða snjókoma til fjallaÍ dag verður norðan 10-18 m/s um landið norðvestanvert með rigningu á láglendi, en slyddu eða snjókomu til fjalla. Þá er spáð talsverðri úrkomu á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum. Sunnan- og austantil verður vindur hægari og skýjað með köflum og sums staðar dálítil væta. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ofbeldisskimun grunnskólabarna að hefjastAðgerðin er hluti af 25 liða pakka stjórnvalda til að bregðast við ofbeldi gegn börnum og meðal barna, sem kynntur var á vordögum 2025. Skimunin verður í höndum skólahjúkrunarfræðinga og mun hún fyrst um sinn ná til nemenda í 7. og 9. bekk, en til stendur að útvíkka verkefnið í fleiri bekki síðar. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Stór þáttur í verðbólgunniFinnbjörn A. Hermannsson formaður ASÍ og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segja það skipta sköpum fyrir launafólk að matvöruverslanir frysti hluta af vöruverði sínu, sem Prís og Krónan hafa meðal annars þegar gert, og kalla eftir því að allir sem tök hafi á leggist á eitt með… MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Réttindalausir geta ekki leigt bíl nema með fölsunRéttindalausir ökumenn geta ekki tekið Hopp-deilibíla á leigu nema með skjalafalsi. Þetta segir Kristín Hrefna Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Hopps í samtali við Morgunblaðið, en hún var spurð hvernig staðið gæti á því að réttindalaus maður gæti tekið deilibíl frá fyrirtækinu á leigu. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Þriggja bíla árekstur í höfuðborginniLögreglumaður að störfum. Ruv.is / Anton BrinkÞriggja bíla árekstur varð í Reykjavík í gær eða nótt. Í dagbók lögreglunnar segir að óskað hafi verið eftir aðstoð vegna áreksturs þriggja bíla í umdæmi lögreglunnar sem nær yfir Austurbæ, miðborg, Vesturbæ og Seltjarnarnes. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Þurfa að hreinsa skólp beturRáðast þarf í umfangsmiklar breytingar á fráveitukerfum og hreinsistöðvum á höfuðborgarsvæðinu fyrir lok næsta árs til þess að uppfylla nýjar kröfur. Mælingar benda til þess að skólp sé ekki nógu vel hreinsað. Er þá stefnan að reyna að hreinsa út örplast, lyfjaleifar og allt sem hægt er? Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Umhverfisviðurkenningar við hátíðlega heimsóknFerðin hófst í Vatnsholti og þaðan var haldið víða um sveitarfélagið. Þetta nýja fyrirkomulag gaf gestum tækifæri til að sjá með eigin augum þá miklu vinnu, alúð og umhyggju sem liggur að baki hverri viðurkenningu. Afhendingin gekk einstaklega vel og var tekið hlýlega á móti hópnum á öllum stöðum. Víkurfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Grindavíkursaga 11 ára stelpu hlýtur barnabókaverðlauninSólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Víkurfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Bregðast við vaxandi tíðni offitu barna„Kraftmiklir krakkar” er verkefni á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þar sem offita barna er aðalatriðið en tilgangur verkefnisins er að bregðast við vaxandi tíðni offitu barna á Suðurlandi. Boðin er fagleg meðferð og stuðningur innan heilsugæslunnar til að bregðast við vandamálinu. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lýsa yfir hamfaraástandi vegna úrkomu og flóðaÚrkoman hefur valdið miklum flóðum í öllum hverfum borgarinnar. AP / Sakchai LalitYfirvöld í Bangkok, höfuðborg Taílands, hafa lýst yfir hamfaraástandi í öllum 50 hverfum borgarinnar vegna úrkomu og flóða. Mikil úrkoma hefur verið í borginni síðustu þrjá daga sem hefur valdið miklum flóðum. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Sérhannaðir ljósastólpar lýsa upp strandleið og stígaLjósálfarnir eru um 60 sentímetra há steypt ljós sem Íslandshús á Ásbrú þróaði í samstarfi við Reykjanesbæ og Hildiberg ljósahönnun. Þeir voru sérstaklega hannaðir fyrir erfiðar aðstæður við sjávarsíðuna, þar sem salt, vindur, snjór og frost fara illa með hefðbundinn ljósabúnað. Víkurfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Segir rafbyssur lokaúrræði þegar vægari aðferðir virka ekkiSérsveit ríkislögreglustjóra kom lögreglunni til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis á fimmtudag, eftir að tilkynnt var um mann með hníf sem hafði uppi ógnandi tilburði. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Bandaríkjaforseti hafnar tillögu Írana um opnun HormússundsUtanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, segir að Íranar hafi boðið Bandaríkjamönnum tillögu sem gæti leitt til þess að Hormússund yrði opnað á ný innan viku. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hafnað tillögunni. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Sjö drepnir í árásum um hábjartan dag í KyivSjö voru drepnir og 46 særðust í árásum Rússa á Kyiv í dag. Árásirnar voru gerðar á samgönguinnviði, skrifstofubyggingu og 16 hæða blokk í borginni. Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu fordæmir árásirnar og segir þær villimannslegar og að engin hernaðarleg rök réttlæti þær. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Íbúðarhús hrundi eftir sprenginguHúsið var tveggja hæða og stóð við litla götu nærri Akrapolisarhæðinni í Plaka-hverfinu sem er eitt helsta ferðamannahverfi borgarinnar. EPA / ORESTIS PANAGIOTOUSex er saknað eftir að íbúðarhús hrundi vegna sprengingar í Aþenu á Grikklandi í dag. Talið er að gasleki hafi orsakað sprenginguna. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Trump segir Zelensky að hitta Pútín í MoskvuMoskva hefur ítrekað nefnt árásargjarna afstöðu Kænugarðs og fjandsamlega afstöðu evrópskra stuðningsmanna sinna sem helstu hindranir fyrir friðarsamningum. Kreml hefur engu að síður haldið því fram að það sé tilbúið að taka á móti Zelensky til Moskvu hvenær sem er ef hann vill virkilega ná… Frettin - Erlendar fréttir Erlendar fréttir