Sýnir: Fréttir og undirflokka
22.890 fréttir fundust
Síða 135 af 458
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirkiEinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans eftir slys í tengivirki við Vatnshamra í Borgarfirði í dag. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan hans eða hvernig slysið varð. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Reykjanesbraut closed overnightReykjanesbraut will be closed to northbound traffic tonight and tomorrow night, as well as overnight into Monday and Tuesday, from 8 p.m. to 7 a.m. due to milling and paving work. MBL Fréttir á Ensku News In English
Vinnuslys í tengivirkiVinnuslys varð í tengivirki Landsnets í Borgarfirði eftir hádegi í dag. Fréttavefur RUV greinir frá að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi verið kölluð út vegna starfsmanns sem slasast hafði við vinnu sína. Viðkomandi var fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Ótilgr. Hægur samdráttur og langt frá markmiðumTæplega fjögurra prósenta heildarsamdráttur varð í heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi á milli ára. Miðað við framtíðarhorfur náum við einungis um 20% samdrætti í samfélagslosun til 2030 sem er um helmingur samdráttarkröfu í þessum flokki fyrir Ísland samkvæmt skuldbindingum gagnvart ESB. Bændablaðið - Fréttir Bændur
Ótilgr. Hestamynd og hellabíóReykjavík International Film Festival (RIFF) hefst 24. september og stendur yfir til 4. október. Bændablaðið - Fréttir Bændur
Ótilgr. Bændur hljóta viðurkenninguEymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir, sem standa að baki Móður jörð í Vallanesi, hljóta viðurkenningu atvinnuvegaráðherra árið 2026 fyrir framúrskarandi árangur í lífrænum landbúnaði. Bændablaðið - Fréttir Bændur
Ótilgr. Ullarvika í fjórða sinnUllarvikan á Suðurlandi verður haldin hátíðleg dagana 27. september–3. október nú í ár. Þessi viðburður sem nú er haldinn í fjórða sinn fagnar íslensku sauðkindinni, ullinni og handverkinu. Bændablaðið - Fréttir Bændur
Ótilgr. Æsispennandi íslensk arfleifð„Þessar mismunandi aðferðir verða notaðar til að skapa tilgátuskyr sem líkir eftir skyri fortíðar. Þó verður þetta alltaf staðgengill enda ekki hægt að endurvekja fortíðina nema að hluta. Þetta er þannig alltaf tilgáta. Smá leynilögreglustemning. Bændablaðið - Fréttir Bændur
Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldiLögreglan í Bretlandi hefur sleppt úr haldi fimm mönnum sem grunaðir eru um að hafa brotið lög um sprengiefni og eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverks. Mennirnir voru handteknir nærri stórri breskri herstöð á sunnudaginn en verður sleppt gegn tryggingu en yfirmaður hryðjuverkalögreglu Bretlands… Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Mönnunum sleppt úr haldiFimm menn, sem voru handteknir vegna gruns um tilraun til sprengjutilræðis á breskri herstöð sem Bandaríkjaher notar, verða látnir lausir gegn tryggingu. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Vinnuslys í tengivirki í BorgarfirðiÞyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan eitt í dag vegna vinnuslyss í tengivirki Landsnets í Borgarfirði. Var einn einstaklingur sóttur og lenti þyrlan við Landspítalann í Fossvogi nú rétt fyrir klukkan þrjú. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Frisbígolfvöllur á Siglufirði til skoðunarFræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar tók fyrir á fundi sínum beiðni um að komið verði upp frisbígolfvelli á Siglufirði. Erindið kemur frá Ólafi Þór Ólafssyni á Siglufirði og er lagt fram í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Meðalfjölskyldan á 60,4 milljónir og skuldar 14,7 milljónirEignir fjölskyldna samkvæmt skattframtölum einstaklinga námu að meðaltali 60,4 milljónum króna árið 2025 og jukust um 8,8% frá árinu 2024. Aukningin er 4,6% á föstu verðlagi ársins 2025 (miðað við ársmeðaltöl vísitölu neysluverðs). BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurfluttEngin ákvörðun hefur verið tekin um hvort lagareldisfrumvarpið verði lagt fram að nýju. Frumvarpið er ekki á dagskrá yfirstandandi löggjafarþings, þótt í atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar hafi verið stefnt að lagasetningu um bæði sjókvíaeldi og landeldi vorið 2026. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Mönnunum fimm sleppt úr haldi í BretlandiFimm karlmönnum sem voru handteknir í Bretlandi í gær grunaðir um að leggja á ráðin um hryðjuverk verður sleppt úr haldi gegn tryggingu. Hryðjuverkadeild bresku lögreglunnar greinir frá þessu. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Maður fluttur með þyrlu á Landspítala eftir slys í tengivirkiMaður slasaðist í vinnuslysi við tengivirki í Borgarfirði í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og flutti manninn til aðhlynningar á Landspítala. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vesturlandi fór straumur í gegnum manninn. Hann var þó með meðvitund. Maðurinn er starfsmaður Landsnets. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Apple dæmt til að greiða 690 milljarðaBandaríska tæknifyrirtækið Apple hefur verið dæmt til að greiða 5,7 milljarða bandaríkjadala í skaðabætur eftir að bandarískur kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið hefði notað tækni annars fyrirtækis án leyfis. Þetta jafngildir um 690 milljörðum króna. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honumSamkvæmt saksóknurum braust Okada meira en hundrað sinnum inn á heimili hennar. Hann stal meðal annars nærfötum hennar og þremur útrunnum ökuskírteinum. Fyrir dómi sagðist hann hafa tekið gömlu ökuskírteinin vegna þess að hann vildi sjá hvernig útlit hennar hefði breyst í gegnum árin. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Starship á sporbraut í fyrsta sinnStarfsmönnum SpaceX hefur tekist að koma geimfarinu Starship á sporbraut í fyrsta sinn. Geimfarið hefur þó nokkrum sinnum verið sent kringum jörðina en aldrei eins hátt og það fór í dag. Þar var geimskipið notað til að koma 26 nýjum Starlink-gervihnöttum á braut um jörðu. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfiÍslenskt réttarvörslukerfi stendur frammi fyrir nýrri og skelfilegri birtingarmynd mansals hér á landi. Þetta fullyrðir Sævar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmaður, í aðsendri grein á Vísi. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangurOECD fann engin tengsl milli þess að símabönn urðu algengari frá 2022 til 2025 og breytinga á árangri nemenda í lestri eða náttúrufræði. Íslenskir nemendur nota jafnframt stafræn tæki minna til afþreyingar í skólanum en nemendur OECD að meðaltali og segja síður að tækin trufli kennslu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tíu ára drengur meðal látinnaTíu ára drengur og tvær konur á þrítugsaldri létust í dag í tilraun til að komast ólöglega yfir Ermarsundið til Bretlands um borð í bát, að sögn franskra yfirvalda. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi„Ef hann er í sjónum er engin von um að finna hann á lífi. Á sama tíma útilokum við ekki að hann geti verið einhvers staðar á landi,“ sagði Jostein Jaarvik Reiestad, aðgerðastjóri hjá lögreglunni í Suðvesturumdæmi Noregs, við VG á laugardag. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Heilbrigðisfulltrúar uggandi um stöðu málaAðalfundur Félags heilbrigðisfulltrúa, sem haldinn var á Ísafirði 24. september síðastliðinn, sendir frá sér ályktun þar sem lýst er áhyggjum af framtíð faglegs heilbrigðiseftirlits í landinu í kjölfar komandi breytinga um næstu áramót. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Tíu ára drengur og tvær konur fórust á ErmarsundiÞrjú létust um borð í yfirfullum gúmmíbát á leið frá Frakklandi til Bretlands í dag, tíu ára drengur og tvær konur. Báturinn sökk ekki en talið er að þau hafi troðist undir. Á hverju ári leggur fjöldi flóttafólks leið sína yfir Ermarsund í von um að fá dvalarleyfi á Bretlandi. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Risaflaug SpaceX komin á sporbaug í fyrsta sinnStarship-risaflaug Elons Musk komst á sporbaug í fyrsta sinn í dag eftir geimskot frá Texas. Þetta þykir vera stór áfangi í framtíðaráformum SpaceX, þar á meðal ferðum til tunglsins og Mars. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Óánægja foreldra í Hafnarfirði með breytingar á reglum um frístundastyrkHafnarfjarðarbær greiddi frístundastyrk mánaðarlega til foreldra. Sumir foreldrar gátu ekki fullnýtt styrkinn því aðeins var greitt fyrir þá mánuði sem barnið iðkaði frístundina. Frá og með 1. janúar 2026 er allri upphæðinni úthlutað einu sinni á ári. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ráðgjöf vegna rækju í Arnarfirði og ÍsafjarðardjúpHafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem leiðir hámarksafraksturs til lengri tíma litið, að afli rækju í Arnarfirði fiskveiðiárið 2026/2027 verði ekki meira en 248 tonn og að rækjuveiðar verði ekki heimilaðar í Ísafjarðardjúpi. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Rafmagnslaust í BorgarfirðiRafmagnslaust er í Borgarnesi, Skorradal og allt upp í Húsafell. Spennar í tengivirkinu Vatnshömrum leystu út. Tölvu- og símkerfi Heilsugæslunnar í Borgarnesi liggja niðri vegna rafmagnsleysisins. Í tilkynningu frá Landsneti segir að unnið sé að því að greina bilunina. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Coraz więcej ptaków z południa dociera na IslandięNa Vestmannaeyjar pojawiły się ostatnio m.in. ibis kasztanowaty i czapla złotawa. Ten pierwszy należał kiedyś do wyjątkowo rzadkich gości na Islandii, jednak w ostatnich latach widywany jest coraz częściej. Pierwsze ibisy kasztanowate odnotowano na Islandii w 1824 roku. RUV - Fréttir á Pólsku Fréttir á pólsku
Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsóknMiklar vangaveltur hafa verið um tengsl málsins við Fairford-flugvöll, sem bandaríski flugherinn hefur nýtt í tengslum við stríðið gegn Íran. Breska lögreglan hefur hvatt til þess að henni verði veitt svigrúm til að rannsaka málið áður en frekari ályktanir eru dregnar. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Ótilgr. Hvaða flaska er best fyrir umhverfið?Umbúðir vega gjarnan þungt þegar kolefnisspor matar- og drykkjarvara er skoðað. Vínflaskan er þar engin undantekning en 40% af kolefnisspori vínflöskunnar eru umbúðirnar. Bændablaðið - Fréttaskýringar Bændur
Rafmagnslaust í Borgarnesi og BorgarfirðiVegna bilunar í flutningskerfi rafmagns varð rafmagnslaust í Borgarnesi og Borgarfirði um kl. 13:33 í dag. „Við vinnum nú að viðgerð og vonumst til að rafmagn komi aftur á kl. 14:45. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000,“ segir í tilkynningu frá Rarik. Lesa meira Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“„Gervigreind er vissulega nógu öflug til að koma af stað atburðum sem valda dauða milljarðs manna. Þannig að þótt það sé ansi erfitt að ná 100 prósenta vissu, hefur aldrei verið til vopn jafn öflugt og sambland af fólki með illan ásetning og nýjustu verkfæri gervigreindarinnar,“ sagði Gates. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Hekla innkallar 2.600 bíla vegna tæringarhættuUm 2.600 bílar af gerðunum Škoda, Volkswagen og Audi verða innkallaðir hér á landi vegna mögulegrar tæringar á bolta sem festir stýrisvél við undirvagn. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Heitir því að skoða allar leiðir til að leysa mönnunarvanda dýralæknaVaxandi erfiðleikar eru við að fá dýralækna í þessi störf. Í samtali við Austurfrétt í ágúst sagði Bára Eyfjörð Heimisdóttir, formaður Dýralæknafélags Íslands, að endurskoða þyrfti kerfið frá grunni. Horfa þurfi til stærðar svæðanna, ábyrgðar dýralækna um að fá afleysingar og launakjara. Austurfrétt - Fréttir Héraðsfréttir
Pólland og Litháen vinna að rýmingaráætlunPólland og Litháen vinna að sameiginlegri áætlun um hvernig flytja megi almenna borgara frá Eystrasaltsríkjunum komi til alvarlegrar krísu eða hernaðarógnar. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Nýttu 46,5 milljónir í eigin þáguHjón um sextugt hafa verið ákærð fyrir fjárdrátt, peningaþvætti og skilasvik í tengslum við umboðsviðskipti með fjögur ökutæki sem félag á þeirra vegum hafði milligöngu um að selja fyrir pólsk félög. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Pólland og Litháen vinna að rýmingaráætlunPólland og Litháen vinna að sameiginlegri áætlun um hvernig flytja megi almenna borgara frá Eystrasaltsríkjunum komi til alvarlegrar krísu eða hernaðarógnar. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Benný til liðs við Sólar ræstingarþjónustuBenný Ósk Harðardóttir er nýr sviðsstjóri sölu- og markaðsmála hjá Sólar og tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Í tilkynningu kemur fram að hún beri ábyrgð á heildarstýringu sölu- og markaðsmála fyrirtækisins og muni leiða áframhaldandi uppbyggingu sviðsins með áherslu á vö DV Fréttir Fréttir
Ljósastýring á ÓseyrarbrúViðhaldsvinna á Óseyrarbrú á Eyrarbakkavegi (34) hefst þriðjudaginn 29. september. Á meðan á framkvæmdum stendur verður aðeins ein akrein opin um brúna og umferð stýrt með umferðarljósum. Búast má við smávægilegum töfum. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkjaDómurinn taldi þó ekki rétt að skerða bætur hans um helming. Við matið var meðal annars horft til þess að jeppanum hefði verið ekið beint áfram á jafnsléttu og á tiltölulega litlum hraða. Þá taldi dómurinn líklegt að ökumaður jeppans hefði ekið yfir hjólför og ekki sýnt næga aðgát. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Áráttukennd fjársvik leigubílstjóra við sjálfsafgreiðslukassaHéraðsdómur Reykjavíkur hefur sakfellt mann fyrir margítrekuð fjársvik í gegnum sjálfsafgreiðslukassa fjölmargra verslana á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn sveik út hinar og þessar vörur með því að koma fyrir strikamerki af mun ódýrari vöru á umbúðum vörunnar. DV Fréttir Fréttir
Á Haustmót mæta margir í sína fyrstu keppniSíðastliðinn föstudag fór fram í Jaðarsbakkalaug á Akranesi Haustmót ÍA fyrir yngri iðkendur, 7–12 ára. Alls tóku 36 sundmenn þátt, þar af 30 frá Sundfélagi Akraness og sex frá Skallagrími. Fyrir marga krakkana var þetta þeirra fyrsta sundmót. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Mennirnir breskir ríkisborgarar á þrítugsaldriFimm menn sem voru handteknir í gærmorgun grunaðir um hryðjuverk skammt frá nálægt Fairford-herstöð breska hersins eru breskir ríkisborgarar á þrítugsaldri búsettir í London. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Landaður afli dróst saman um tæp 600 tonn í ágústLandaður afli í höfnum Fjallabyggðar nam 1.822 tonnum í ágúst síðastliðnum, samanborið við 2.420 tonn í sama mánuði í fyrra. Samdrátturinn milli ára nemur því tæplega 600 tonnum. Þetta kemur fram í fundargerð Framkvæmda-, hafna- og veitunefndar Fjallabyggðar. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir