Sýnir: Fotbolti.net
5.109 fréttir fundust
Síða 76 af 103
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Palace reynir að hrifsa Ordonez úr klóm VillaCrystal Palace hefur skyndilega blandað sér í baráttuna um ekvadorska varnarmanninn Joel Ordonez. Aston Villa gerði belgíska félaginu Club Brugge tilboð í Ordonez en Palace er nú komið í viðræður um leikmanninn. Fótbolti.net Fotbolti.net
Vonast til að Caicedo geti spilað gegn sínu fyrrum félagiMoises Caicedo var ekki með Chelsea í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar vegna meiðsla. Chelsea vann Fulham 3-2 á mánudaginn. Caicedo verður ekki með bláliðum gegn Luton Town í Carabao deildabikarnum á morgun en Xabi Alonso vonast til þess að ekvadorski miðjumaðurinn geti spilað gegn Brighton… Fótbolti.net Fotbolti.net
Sarr verður ekki með Palace gegn CityIsmaila Sarr, leikmaður Crystal Palace, hefur verið orðaður við Liverpool í dag. Senegalinn er að glíma við meiðsli og verður því ekki með Palace gegn Manchester City á föstudagskvöld í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. „Á þessum tímapunkti býst ég við því að hann verði áfram. Fótbolti.net Fotbolti.net
Of snemmt að dæma? Stórar ályktanir eftir fyrstu umferðinaÞað eru aðeins liðnir nokkrir dagar frá því að enska úrvalsdeildin hófst. Það er því auðvitað allt of snemmt að spá fyrir um framhaldið. En það er líka nákvæmlega það sem gerir fyrstu umferðina svo skemmtilega. Fótbolti.net Fotbolti.net
Merson reiður: Ógeðslegt ef hann neitaði að spilaAston Villa átti martraðarbyrjun á tímabilinu þegar liðið tapaði 4-0 gegn Brighton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Aston Villa seldi lykilmennina Ezri Konsa, Youri Tielemans og Morgan Rogers í sumar. Fótbolti.net Fotbolti.net
Fredericia vill fá Dag OrraDagur Orri Garðarsson á leið til FC Fredricia í dönsku 1. deildinni.#HeimavinnaHöfðingjans Fótbolti.net Fotbolti.net
Hollywoodliðið styrkir sigCo-Chairmen approved ? Our new Third kit is available worldwide now ?????????? #WxmAFC Fótbolti.net Fotbolti.net
Coventry krækir í Pinnock (Staðfest)Coventry City hefur krækt í jamaíska varnarmanninn Ethan Pinnock frá Brentford. Kaupverðið á þessum 33 ára leikmani er sagt vera í kringum 6 milljónir punda. Pinnock kom frá Barnsley 2019 og lék alls 216 leiki fyrir Brentford og skoraði tólf mörk. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum. Fótbolti.net Fotbolti.net
Sunderland býður í GrealishSunderland hefur lagt fram tilboð í Jack Grealish sem er leikmaður Manchester City. Sunderland vill fá hann á láni og myndi greiða hluta af launum enska kantmannsins. Möguleiki væri svo á því að Grealish myndi alfarið ganga í raðir Sunderland næsta sumar þegar samningur hans við City rennur út. Fótbolti.net Fotbolti.net
Keflavík spilar á Ljósanótt - Leik í lokaumferð fyrir skiptingu flýtt22. umferð Bestu deildarinnar, síðasta umferðin fyrir tvískiptingu, verður spiluð aðra helgi. Þangað til í gær voru allir leikir skráðir á sama tíma sunnudaginn 6. september. Í gær var samþykkt að flýta einum leik um tæpan sólarhring og verður sá leikur stakur leikur á laugardeginum. Fótbolti.net Fotbolti.net
Bakwa orðinn liðsfélagi Hákonar hjá Lille (Staðfest)Kantmaðurinn Dilane Bakwa er kominn til franska liðsins Lille á lánssamningi frá Nottingham Forest út tímabilið. Bakwa á 24 ára afmæli í dag en hann kostaði Forest 30 milljónir punda þegar hann kom frá Strasbourg í fyrra. Fótbolti.net Fotbolti.net
Svona er byrjunarlið FH í sögulegum leikAldís Guðlaugsdóttir kemur í markið í stað Steinunnar Ernu Birkisdóttur. Helena Errington, Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir og Jónína Linnet koma einnig inn í liðið en Anna Heiða Óskarsdóttir, Nia Christopher og Hafrún Birna Helgadóttir setjast á varamannabekkinn. Fótbolti.net Fotbolti.net
Vilja stjarnfræðilega upphæð og Liverpool hefur ekki lagt fram tilboðLiverpool hefur áhuga á því að fá Ismaila Sarr í sínar raðir frá Crystal Palace og hefur Liverpool rætt við Palace um möguleikann á að fá hann. The Athletic greinir frá. Liverpool vill fá hægri kantmann inn í hópinn en á þessum tímapunkti eru ekki miklar líkur á því að sá leikmaður verði Sarr. Fótbolti.net Fotbolti.net
Forest reynir að fá vængbakvörð frá Celta VigoViðræður Nottingham Forest um að fá vængbakvörðinn Javi Rueda frá Celta Vigo eru komnar vel á veg samvæmt frétt The Athletic. Strákarnir í Skírisskógi eru í leit að hægri vængbakverði en þeim mistókst að fá Anan Khalaili sem gekk í raðir Crystal Palace frá Royale Union Saint-Gilloise. Fótbolti.net Fotbolti.net
Benfica kaupir Palhinha (Staðfest)Joao Palhinha er genginn í raðir Benfica en hann er keyptur frá Bayern München og greiðir portúgalska félagið 17 milljónir punda. Palhinha er portúgalskur miðjumaður, 31 árs, og hittir hjá Benfica þjálfarann Marco Silva en þeir unnu saman hjá Fulham. Fótbolti.net Fotbolti.net
Man Utd braut treyjureglur í tapleiknum gegn HullEnska úrvalsdeildin hefur bent Manchester United á að félagið hafi brotið treyjureglur í tapinu gegn Hull í fyrstu umferð deildarinnar. Manchester United er ekki með auglýsingu á erminni eftir að samningur við DXC Technology rann út. Fótbolti.net Fotbolti.net
Leysir Martínez vandamál Chelsea?Emiliano Martínez gæti farið til Chelsea ef marka má David Ornstein hjá The Athletic. Hann segir frá því að Chelsea sé í viðræðum við teymi markvarðarins um að ganga í raðir félagsins. Martínez er markvörður Aston Villa og vann Evrópudeildina með félaginu á síðasta tímabili. Fótbolti.net Fotbolti.net
Íslandsmeistararnir fengu 13-1 skell í fyrsta leikKM, Knattspyrnufélagið Miðbær, leikur í forkeppni Meistaradeildarinnar í Futsal í vikunni. Riðill liðsins er leikinn í Jerevan í Armeníu og var TSV Weilimdorf frá Þýskalandi fyrsti mótherji Íslandsmeistarana. Fótbolti.net Fotbolti.net
West Ham að láta undan - Brentford lagði fram hátt tilboðBrentford er að ganga frá kaupum á El Hadji Malick Diouf vinstri bakverði West Ham. Svörin frá West Ham fyrr í sumar voru á þá leið að Diouf væri ekki til sölu, en allir leikmenn eru greinilega til sölu og kannski sérstaklega hjá liðum sem falla um deild. Fótbolti.net Fotbolti.net
Kambwala til Como (Staðfest)Varnarmaðurinn Willy Kambwala er kominn til ítalska félagsins Como frá Villarreal. Kambwala gekk til liðs við Villarreal frá Manchester United árið 2020. Kambwala kemur til Como á lánssamningi en félagið er með ákvæði um að geta keypt hann fyrir 10 milljónir evra. Fótbolti.net Fotbolti.net
Liverpool skiptir um skotmark og ætlar sér SarrLiverpool hefur reynt að kaupa Yankuba Minteh af Brighton en Brighton vill fá of háa upphæð fyrir kantmanninn að mati Liverpool. Liverpool hefur því skipt um skotmark og ætlar sér að fá Ismaila Sarr. Frá þessu greinir talkSPORT. Fótbolti.net Fotbolti.net
Búðu til leikmann og reyndu að vinna HMÞetta er einn af fimm leikjum en hægt er að prófa hina í hlekkjunum hér fyri ofan og neðan. Í þessum leik býrð þú til þinn eigin framherja út frá eiginleikum bestu framherja heimsins. Þar á eftir færðu landslið, þar sem þú getur reynt að fara alla leið og vinna HM. Fótbolti.net Fotbolti.net
Disasi til Palace á láni (Staðfest)Crystal Palace hefur fengið miðvörðinn Axel Disasi á lánssamningi frá Chelsea út tímabilið. Þessi 28 ára franski landsliðsmaður hefur ekki verið framarlega í goggunarröðinni hjá Chelsea og spilað á lánssamningum hjá Aston Villa og West Ham. Fótbolti.net Fotbolti.net
Kean neitar að æfa með FiorentinaÍtalskir fjölmiðlar segja að framherjinn Moise Kean hafi mætt of seint á æfingu með Fiorentina í gær og muni ekki mæta á æfingu í dag. Kean er samherji Alberts Guðmundssonar hjá Fiorentina en vill fara til Como sem gerði 40 milljóna evra tilboð í leikmanninn í gær. Fótbolti.net Fotbolti.net
Sögulegur leikur FH í beinni á SýnÍslensku liðin Breiðablik og FH verða í eldlínunni í Evrópubikar kvenna í dag. Íslandsmeistararnir í Breiðabliki eiga heimaleik gegn rúmenska liðinu Csikszereda sem endaði í 2. sæti rúmensku deildarinnar á síðasta tímabili. FH, sem endaði í 2. Fótbolti.net Fotbolti.net
Villa dregur sig úr viðræðum um LeaoÍtalskir fjölmiðlar greina frá því að Aston Villa hafi ákveðið að fara ekki lengra með áhuga sinn á kantmanninum Rafael Leao hjá AC Milan. Portúgalski landsliðsmaðurinn hefur einnig verið orðaður við Tottenham en ekki er útlit fyrir að hann sé á leið þangað. Fótbolti.net Fotbolti.net
City að gera tilboðið í Enzo klártÞað er nóg í gangi á skrifstofu Manchester City en ljóst er að félagið mun gera tilboð í Enzo Fernandez, leikmann Chelsea, áður en glugganum verður lokað. Í gær var greint frá því að City væri að undirbúa tilboð og nú fullyrða áreiðanlegir fjölmiðlar á borð við BBC að tilboð sé væntanlegt. Fótbolti.net Fotbolti.net
Með efasemdir um að Bouaddi muni hafa mikil áhrif straxFranski fótboltablaðamaðurinn Djibril Diop er ekki viss um að marokkóski miðjumaðurinn Ayyoub Bouaddi muni strax hafa þau áhrif hjá Manchester City sem margir halda. Bouaddi er 18 ára og var áðan kynntur sem nýr leikmaður City, sem kaupir hann frá Lille. Fótbolti.net Fotbolti.net
Bouaddi til Man City (Staðfest)Manchester City hefur gengið frá kaupum á marokkóska miðjumanninum Ayyoub Bouaddi og hann skrifað undir fimm ára samning. Þessi 18 ára leikmaður er keyptur frá Lille í Frakklandi á um 85 milljónir punda. „Þetta er mjög sérstakur dagur fyrir mig og mína fjölskyldu. Fótbolti.net Fotbolti.net
Yildiz frá næstu mánuðiKenan Yildiz, stjörnuleikmaður Juventus, verður frá næstu mánuði en hann meiddist á fæti í 1-0 sigrinum gegn Frosinone í fyrstu umferð ítölsku A-deildarinnar. La Gazzetta dello Sport segir að tyrkneski landsliðsmaðurinn þurfi í aðgerð og gæti verið frá þar til seint í nóvember. Fótbolti.net Fotbolti.net
Grabara til Juve og Perin til Palermo (Staðfest)Markvörðurinn Kamil Grabara er kominn til Juventus á lánssamningi frá Wolfsburg sem gildir út tímabilið. Juve er með forkaupsrétt á leikmanninum. Grabara er 27 ára gamall Pólverji. Hann skrifaði undir samning við Liverpool árið 2016 en spilaði ekki leik fyrir liðið. Fótbolti.net Fotbolti.net
Ekki víst að Man Utd fái inn vinstri bakvörð„Ég tel ekki víst að Manchester United muni kaupa vinstri bakvörð í þessum glugga," segir Simon Stone, íþróttafréttamaður BBC. Manchester United hefur reynt að fá inn vinstri bakvörð og er hrifið af Lewis Hall hjá Newcastle. Fótbolti.net Fotbolti.net
Miðbær spilar sinn fyrsta leik í JerevanÍslandsmeistararnir í Futsal, KM, eru mættir til Jerevan í Armeníu þar sem liðið tekur þátt í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í Futsal fyrir hönd Íslands. Knattspyrnufélagið Miðbær hefur skipað sér í hóp fremstu Futsal-liða landsins, leikur í E-riðli keppninnar. Fótbolti.net Fotbolti.net
Marmoush og Gonzalez fara frá City til Tottenham og NewcastleTottenham hefur náð samkomulagi við Manhester City um að fá framherjann Omar Marmoush. Egypski landsliðsmaðurinn fer á lánssamningi en Tottenham er skyldugt til að kaupa hann á 60 milljónir punda næsta sumar. Fótbolti.net Fotbolti.net
O'Neill: Engin huggun að spila í EvrópudeildinniCeltic mun spila í Evrópudeildinni á þessu tímabili eftir ótrúlegt tap gegn LASK í undankeppni Meistaradeildarinnar í gær. Celtic var með 3-0 forystu eftir fyrri leikinn. Staðan var 1-1 í hálfleik í gær en LASK fór hamförum í seinni hálfleik og skoraði fjórða markið á 90 mínútu. Fótbolti.net Fotbolti.net
Minteh of dýr fyrir LiverpoolLiverpool ætlar að styrkja vængstöðurnar fyrir lok félagaskiptagluggans um mánaðarmótin. Fótbolti.net Fotbolti.net
Delap á leið til Forest fyrir metféChelsea hefur samþykkt 50 milljón punda tilboð Nottingham Forest í enska framherjann Liam Delap. Sky Sports greinir frá því að Forest mun greiða 45 milljónir punda en tilboðið gæti hækkað um fimm milljónir. Fótbolti.net Fotbolti.net
Gefa 120 frímiða á heimaleiki Liverpool og Man UtdSænska getraunafyrirtækið Betsson ætlar að gefa heppnum íslenskum viðskiptavinum að minnsta kosti 120 miða á heimaleiki Liverpool og Manchester United á tímabilinu sem er fram undan. Fótbolti.net Fotbolti.net