Sýnir: Fótbolti og undirflokka
5.109 fréttir fundust
Síða 73 af 103
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Vandamál komu upp í læknisskoðun OrdonezÓvíst er hvort Crystal Palace kaupi varnarmanninn Joel Ordonez, frá Club Brugge eftir að vandræði komu upp í læknisskoðun. Breska ríkisútvarpið segir að Palace eigi eftir að taka lokaákvörðun um hvort halda eigi áfram með samninginn. Fótbolti.net Fotbolti.net
Palacios spilar gegn Man Utd - „Mögnuð kaup“Exequiel Palacios mun spila með Ipswich gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn en hann kemur til félagsins frá Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Palacios er 27 ára og var kynntur hjá nýliðunum í gær. Fótbolti.net Fotbolti.net
Skotmark Liverpool fer til VillaSóknarmaðurinn Ibrahim Mbaye er á leið til Aston Villa frá PSG. Það er David Ornstein hjá The Athletic sem greinir frá. Mbaye er 18 ára kantmaður sem er sagður kosta um 55 milljónir evra. Liverpool hafði áhuga á Mbaye fyrr í sumar en hann virðist á leið til Aston Villa. Fótbolti.net Fotbolti.net
Emery kveður Watkins með tárum og býður Jackson velkominnUnai Emery, stjóri Aston Villa, ræddi við fjölmiðlamenn á fréttamannafundi í dag. Þar sagðist hann vera búinn að kveðja sóknarmanninn Ollie Watkins sem er á leið á vit ævintýranna hjá Al-Hilal í Sádi-Arabíu. Fótbolti.net Fotbolti.net
Leao vill frekar fara til VillaSamkvæmt Gianluca Di Marzio, blaðamanni Sky á Ítalíu, vill Rafael Leao frekar fara til Aston Villa en Galatasaray. Portúgalski kantmaðurinn er að öllum líkindum á förum frá AC Milan í sumar og hefur hann verið orðaður við Galatasaray og Villa. Fótbolti.net Fotbolti.net
Carrick mjög spenntur fyrir Baleba: Erum í skýjunumMiðjumaðurinn Carlos Baleba var keyptur til Manchester United frá Brighton í vikunni og Michael Carrick, stjóri United, er mjög spenntur fyrir þessum 22 ára Kamerúna. „Við erum í skýjunum með að hafa fengið Carlos," segir Carrick. Fótbolti.net Fotbolti.net
Lyngby vill kaupa Jón SölvaJón Sölvi Símonarson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net líklega á förum frá ÍA til danska félagsins Lyngby fyrir gluggalok í Danmörku. Glugginn þar lokar 2. september. Fótbolti.net Fotbolti.net
Guðbjörn Smári spáir í 21. umferð LengjudeildarinnarÞað eru tveir leikir í Lengjudeildinni í kvöld og fjórir leikir á morgun. Deildin er að klárast og spennan er mikil. Guðbjörn Smári Birgisson, fyrirliði Hvíta riddarans og þáttastjórnandi hlaðvarpsins Harkið, spáir í leikina sem eru framundan. Fótbolti.net Fotbolti.net
Man Utd boðið að kaupa TosinChelsea hefur boðið Manchester United að kaupa varnarmanninn Tosin Adarabioyo. Fyrrum unglingalandsliðsmaðurinn var ekki í leikmannahópi Chelsea gegn Fulham í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Eftir komu Maxence Lacroix er líklegt að hlutverk Tosin hjá Chelsea verði mjög takmarkað. Fótbolti.net Fotbolti.net
Arsenal ræðir við Real um EndrickArsenal er samkvæmt heimildum talkSPORT að skoða möguleikann á því að fá Endrick frá Real Madrid. Arsenal hefur rætt við Real um möguleikann. Jose Mourinho, stjóri Real, segir að Endrick sé ekki til sölu en Arsenal er tilbúið að kanna hvort það sé rétt. Fótbolti.net Fotbolti.net
Giskaðu á ferilinn - Ný þraut á hverjum degiMeð nýrri síðu Fótbolti.net munum við gefa út nokkra skemmtilega fótboltaleiki sem verða eingöngu aðgengilegir fyrir áskriftarmeðlimi. Hins vegar verða þeir opnir öllum til að byrja með, svo allir fá að prófa. Fótbolti.net Fotbolti.net
Sambandsdeildin: Íslendingaslagur í Bergen - Tómas Bent gegn SalahÍ morgun var dregið í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar en fullt af Íslendingum eru með í keppninni. Ljóst er hvaða sex andstæðingum hvert lið mun mæta. Kristall Máni Ingason, Eggert Aron Guðmundsson, Kjartan Már Kjartansson og Sævar Atli Magnússon eru allir hjá Brann sem mun mæta Braga, Gent, Red… Fótbolti.net Fotbolti.net
Segir ummæli Arons röng - „Ekkert sem setur áætlanir í uppnám"Víkingur féll úr leik í Evrópu í gær þegar liðið tapaði gegn Borac Banja Luka, meisturunum í Bosníu og Hersegóvínu, í umspili um sæti í Sambandsdeildinni. Báðir leikir enduðu 3-1 fyrir Borac og einvígið því 6-2. Fótbolti.net Fotbolti.net
Brentford kaupir bakvörð á 40 milljónir punda (Staðfest)Brentford hefur staðfest kaupin á El Hadji Malick Diouf frá West Ham. Diouf er senegalskur vinstri bakvörður sem West Ham vildi ekki selja en þegar Brentford lagði fram 35 milljóna punda tilboð, sem getur hækkað um fimm milljónir punda, þá var ekki hægt að segja nei. Fótbolti.net Fotbolti.net
Evrópudeildin: Orri Steinn mætir tveimur enskum úrvalsdeildarliðumBúið er að draga í deildarkeppni Evrópudeildarinnar og ljóst hvaða andstæðingum liðin munu mæta. Deildarkeppnin fer af stað 16. september og keppninni lýkur með úrslitaleik í Frankfurt 26. maí á næsta ári. Orri Steinn Óskarsson og félagar í Real Sociedad voru í fyrsta styrkleikaflokki í drættinum. Fótbolti.net Fotbolti.net
Albert til Bologna?#Bologna have shown interest in #Fiorentina’s forward Albert #Gudmundsson for a loan with the option to buy. #transfers Fótbolti.net Fotbolti.net
Ward-Prowse heim til Southampton (Staðfest)James Ward-Prowse er kominn heim til Southampton eftir að hafa verið á mála hjá West Ham undanfarin ár. Ward-Prowse er 31 árs enskur miðjumaður sem hefur spilað 410 leiki fyrir Dýrlingana og skrifar undir tveggja ára samning. Fótbolti.net Fotbolti.net
Alvarez ekki með um helginaJulian Alvarez verður ekki með Atletico Madrid á morgun þegar Atletico mætir Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni. Alvarez hefur verið orðaður í burtu frá Atletico að undanförnu, bæði við Barcelona og Arsenal. Diego Simeone, stjóri Atletico, staðfestir að Alvarez verði ekki með á morgun. Fótbolti.net Fotbolti.net
Maðurinn sem Liverpool þarf að stöðvaLiverpool mætir Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni á morgun en Liverpool á ekki góðar minningar frá þessari viðureign á Anfield á síðasta tímabili. Morgan Gibbs-White átti þá frábæran leik og skoraði eitt af mörkum Forest í 3-0 sigri. Ljóst er að Liverpool þarf að hafa hemil á honum á morgun. Fótbolti.net Fotbolti.net
Fjölskylduhátíð á Nesinu þegar Grótta getur komist uppGrótta tekur á móti Selfossi í Lengjudeild kvenna á morgun laugardag en með sigri tryggir Grótta sér sæti í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn í sögu félagsins. Ákveðið hefur verið að blása til fjölskylduhátíðar á Seltjarnarnesi í tilefni leiksins. Fótbolti.net Fotbolti.net
Valgeir frá út tímabiliðValgeir Valgeirsson spilar líklega ekki meira á þessu tímabili eftir að kom í ljós að rifa er í liðþófa í hné. Hann er á leið í aðgerð vegna meiðslanna. Valgeir var að glíma við meiðsli í sama hné, rifu í liðbandi, og var að styttast í endurkomu þegar hann varð fyrir þessu bakslagi. Fótbolti.net Fotbolti.net
Juventus leiðir baráttuna um KessieÍtalska félagið Juventus er í bílstjóra sætinu um Franck Kessie, fyrrum leikmann Barcelona og AC Milan, en þetta segir Fabrizio Romano á X. Fótbolti.net Fotbolti.net
Arsenal gefst ekki upp á að reyna við AlvarezJá eða nei er spurningin. Það er spennandi fótboltahelgi framundan þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Félagaskiptaglugganum verður svo lokað á þriðjudag svo það vantar ekki slúðrið um þessar mundir! Fótbolti.net Fotbolti.net
Samkomulag um Ward-Prowse í höfnEnski miðjumaðurinn James Ward-Prowse er á leið aftur heim til Southampton eftir þrjú ár hjá West Ham, samkvæmt Sky Sports. Fótbolti.net Fotbolti.net
Frá Bayern til Espanyol (Staðfest)Spænski vængmaðurinn Bryan Zaragoza er mættur til Espanyol á láni frá Þýskalandsmeisturum Bayern München. Fótbolti.net Fotbolti.net
Ísland um helgina - Afturelding aftur upp í Bestu?Fjölmargir mikilvægir leikir eru á dagskrá í íslenska boltanum um helgina. Afturelding getur unnið sér aftur sæti í Bestu deild karla er liðið tekur á móti Vestra á morgun. Fótbolti.net Fotbolti.net
Sjáðu mörkin: Welbeck opnaði markareikninginn í fyrsta leiknumDanny Welbeck var ekki lengi að stimpla sig inn hjá Chelsea en hann opnaði markareikninginn í sínum fyrsta leik fyrir félagið í kvöld. Welbeck sat allan tímann á varamannabekknum gegn Fulham á mánudag en fékk tækifæri í byrjunarliðinu gegn Luton í deildabikarnum í kvöld. Fótbolti.net Fotbolti.net
2. deild: Hvíti riddarinn missti þrisvar niður forystu gegn FjölniHvíti riddarinn 3 - 3 Fjölnir 1-0 Alexander Aron Tómasson ('8 ) 1-1 Árni Steinn Sigursteinsson ('26 ) 2-1 Patrekur Orri Guðjónsson ('69 ) 2-2 Egill Otti Vilhjálmsson ('81 ) 3-2 Jordan Chase Tyler ('83 ) 3-3 Luka Heinrich Emiel Geishauser ('90 ) Fótbolti.net Fotbolti.net
Elías Rafn frábær þegar Midtjylland komst áframElías Rafn Ólafsson og liðsfélagar hans í Midtjylland eru komnir í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar eftir 6-1 samanlagðan sigur gegn króatíska liðinu Rijeka. Fótbolti.net Fotbolti.net
Alonso um framtíð Enzo: Við erum undirbúnirXabi Alonso, stjóri Chelsea, segist sjálfur hafa tekið ákvörðun um að halda Enzo Fernandez utan hóps í 2-0 sigri gegn Luton í deildabikarnum í kvöld. Fótbolti.net Fotbolti.net
Þjálfari Salah sagði upp störfum eftir tapiðMohamed Salah og félagar hans í Trabzonspor fara ekki í deildarkeppni Evrópudeildarinnar eftir 5-0 samanlagt tap gegn Ferencvaros í umspilinu og neyðast til að sætta sig við sæti í Sambandsdeildinni, en þjálfari tyrkneska liðsins sagði starfi sínu lausu eftir leikinn. Fótbolti.net Fotbolti.net