Sýnir: Fótbolti og undirflokka
5.109 fréttir fundust
Síða 27 af 103
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Besta deild kvenna: Hrikaleg úrslit fyrir FH - 16 ára með þrennuBreiðablik er með pálmann í höndunum í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn eftir að FH tapaði 3-2 gegn Grindavík/Njarðvík í Bestu deild kvenna í dag. Grindavík/Njarðvík hefur að engu að keppa eftir að hafa tryggt sig inn í efri hlutann, en þær tóku forystuna þegar Tinna Hrönn Einarsdóttir skoraði… Fótbolti.net Fotbolti.net
Líklegast að undrabarn Man Utd fari utan EnglandsManchester United hefur enn ekki gefist upp á því að halda í hinn 15 ára JJ Gabriel en lítið hefur miðað í viðræðum við leikmanninn samkvæmt TEAMtalk. Gabriel verður 16 ára þann 6. október og getur þá skrifað undir samning við United. Fótbolti.net Fotbolti.net
Haaland ekki á fréttamannafundiMarkamaskínan Erling Haaland mætti ekki á blaðamannafund norska landsliðsins eins og til stóð eftir að Manchester City var fundið sekt um 114 brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti.net Fotbolti.net
Fyrsti sigur Man Utd hjá nýjum þjálfaraKvennalið Manchester United vann í dag sinn fyrsta sigur undir stjórn nýs þjálfara. Hin spænska Eva Olid tók við Man Utd í sumar og hefur hingað til ekki gengið vel; liðið hafði spilað þrjá deildarleiki fyrir leikinn gegn West Ham í dag og tapað tveimur þeirra á meðan hinn leikurinn endaði í… Fótbolti.net Fotbolti.net
Bruno Fernandes að glíma við „flókið vandamál"Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, verður ekki með Portúgal gegn Noregi í Þjóðadeildinni í kvöld vegna meiðsla. Fernandes fór af velli undir lok 3-2 sigurs Portúgals á Wales í síðasta leik og Jorge Jesus, landsliðsþjálfari Portúgals, greindi frá því að miðjumaðurinn væri að glíma við… Fótbolti.net Fotbolti.net
Sagður íhuga að hætta að spila með Írlandi eftir síðustu dagaFinn Azaz, leikmaður Írlands, gæti hætt í landsliðsfótbolta eftir landsleikina gegn Ísrael samkvæmt fréttum frá Írlandi. Azaz, sem er 26 ára og spilar með Middlesbrough, á einnig rætur að rekja til Ísrael í gegnum móður sína. Fótbolti.net Fotbolti.net
Lið ársins og önnur verðlaun í Lengjudeild kvennaTímabilinu í Lengjudeild kvenna lauk á dögunum. Grótta vann deildina frekar þægilega, en þær enduðu að lokum með sex stigum meira en nágrannarnir KR sem voru í öðru sæti deildarinnar. Landsbyggðarliðin Völsungur og Tindastóll féllu niður um deild, en upp í þeirra stað koma Fjölnir og Fylkir. Fótbolti.net Fotbolti.net
Bakvörður Man City rekinn heim úr landsliðsverkefniRayan Ait-Nouri, bakvörður Manchester City, hefur verið sendur heim úr landsliðshópi Alsír eftir rifrildi við meðlim þjálfarateymisins. Ait-Nouri var ónotaður varamaður þegar Alsír vann 3-1 sigur á Sambíu í undankeppni Afríkukeppninnar á föstudag. Fótbolti.net Fotbolti.net
Roy Keane um Palmer: Gleymdu hugmyndinniRoy Keane, fyrrum fyrirliði Manchester United, hefur gagnrýnt Cole Palmer harðlega og segir Chelsea-stjörnuna ekki vera leikmanninn sem geti tekið enska landsliðið upp á næsta stig. Palmer var ekki með Englandi í 3-2 tapi gegn Spáni í Þjóðadeildinni í gær. Fótbolti.net Fotbolti.net
Maðurinn sem kom Man City í klandurA historic decision for English football, and one that comes to crown the work I carried out through Football Leaks. Today, we all know that, through structural manipulation and financial manoeuvring, Manchester City did not merely circumvent the rules, they turned them into a… Fótbolti.net Fotbolti.net
Skráður sem þriðji markvörður ÍrlandsJimmy Dunne, varnarmaður QPR á Englandi, er skráður sem þriðji markvörður Írlands fyrir leikinn gegn Ísrael í Þjóðadeildinni í kvöld. Gavin Bazunu, markvörður írska landsliðsins, dró sig úr hópnum fyrir leikinn gegn Ísrael í gær. Fótbolti.net Fotbolti.net
Pulis: Mér finnst eins og það hafi verið svindlað á mérTony Pulis, fyrrverandi stjóri Stoke City, segist hafa setið eftir með súrt bragð í munni eftir niðurstöðuna í máli Manchester City vegna meintra brota félagsins á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti.net Fotbolti.net
Isak dregur sig úr sænska landsliðshópnumAlexander Isak, sóknarmaður Liverpool, er farinn úr herbúðum sænska landsliðsins eftir aðeins einn leik. Isak skoraði á föstudaginn þegar Svíar unnu 2-1 sigur gegn Rúmeníu í fyrsta leik liðsins í Þjóðadeildinni. Fótbolti.net Fotbolti.net
„Teitur er algjör goðsögn í eistneskum fótbolta"Ísland og Eistland gerðu 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli í gær. Eistar eru ekki mjög hátt skrifaðir í fótboltaheiminum, en það er einn Íslendingur sem hefur skilið eftir sig mjög stór spor í eistneskum fótbolta. Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 26. september á áskriftarvef Fótbolti.net. Fótbolti.net Fotbolti.net
Þórir Jóhann kallaður inn í hópinnÞórir Jóhann Helgason hefur verið kallaður inn í landsliðshópinn fyrir Albert Guðmundsson sem meiddist á öxl gegn Eistlandi í gær. Þórir Jóhann hefur spilað 20 landsleiki fyrir Ísland og skorað tvö mörk. Fótbolti.net Fotbolti.net
Albert verður ekki meira með - Fór úr axlarliðAlbert Guðmundsson verður ekki meira með íslenska landsliðinu í komandi verkefni í Þjóðadeildinni. Frá þessu greinir Vísir í morgunsárið. Albert fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í gær þegar Ísland gerði 1-1 jafntefli við Eistland í fyrsta leik í Þjóðadeildinni. Fótbolti.net Fotbolti.net
„Rangt að taka þátt í leikjum gegn Ísrael"Írski markvörðurinn Gavin Bazunu ákvað að draga sig úr landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Ísrael í Þjóðadeildinni í dag. Írar funduðu um stöðuna og Bazunu ákvað að taka ekki þátt í leiknum. Hann sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Fótbolti.net Fotbolti.net
Albani dæmir leik Íslands í LúxemborgEftir dapra frammistöðu og jafntefli gegn Eistlandi í fyrsta leik Íslands í C-deild Þjóðadeildarinnar þá fljúga strákarnir okkar til Lúxemborgar í dag þar sem þeir eiga leik á þriðjudag. Það verða albanskir dómarar sem dæma Lúxemborg - Ísland en aðaldómarinn heitir Enea Jorgji. Fótbolti.net Fotbolti.net
Klopp um Adeyemi: Kann að meta allan pakkannKarim Adeyemi lagði upp mark Þýskalands á Felix Nmecha í 1-1 jafntefli geng Hollandi í Þjóðadeildinni á dögunum. Hann hefði getað skorað í leiknum en klúðraði dauðafæri. Þetta var fyrsti leikur liðsins undir stjórn Jurgen Klopp en hann var spurður út í klúðrið. Fótbolti.net Fotbolti.net
Fyrrum leikmaður Bayern og City þjálfar SalahJerome Boateng, fyrrum leikmaður Bayern og Man City, verður aðstoðarþjálfari Trabzonspor í Tyrklandi. Samkvæmt Fabrizio Romano hefur Boateng náð samkomulagi við tyrkneska félagið. Fótbolti.net Fotbolti.net
Keane ósammála Rodri: Þeir kusu að svindlaMan City var fundið sekt sekt í 114 af 115 ákæruliðum vegna brota á reglum ensku úrvalsdeildarinnar. Brotin áttu sér stað á árunum 2009 til 2018 og eru misalvarleg, en enn hefur ekki verið ákveðið hver refsingin verður. Fótbolti.net Fotbolti.net
Fá ekki að vera viðstaddir á lokaleik MessiSamkvæmt ítölskum fjölmiðlum hefur Roma hafnað beiðni Paulo Dybala og Nahuel Molina að vera viðstaddir þegar Lionel Messi spilar sinn síðasta landsleik fyrir Argentínu gegn Benin 6. október. Fótbolti.net Fotbolti.net
Sveindís og stöllur á miklu skriðiSveindís Jane Jónsdóttir var í byrjunarliði Angel City sem vann nauman sigur á Washington Spirit í bandarísku NWSL deildinni í nótt. Angel City vann 1-0 en markið kom á 89. mínútu. Sveindís var tekin af velli í uppbótatíma. Fótbolti.net Fotbolti.net
„Hef ekki unnið úrvalsdeildina, eða hvað? "Man City var dæmt sekt í 114 af 115 ákæruliðum vegna misalvarlegra brota á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Ekki hefur enn verið ákveðið hver refsingin verður, en meðal þess sem hefur verið nefnt er að félagið gæti mögulega verið svipt titlum. Fótbolti.net Fotbolti.net
Töpuðu niður þriggja marka forystuDagur Dan Þórhallsson byrjaði á bekknum þegar San Diego FC heimsótti Austin FC í MLS deildinni í nótt. Þetta leit mjög vel út fyrir San Diego eftir rúmlega klukkutíma leik en liðið skoraði þrjú mörk á 14 mínútna kafla. Fótbolti.net Fotbolti.net
Ísland í dag - Hörð titilbaráttaAnnarri umferð í efri hlutanum í Bestu deild kvenna lýkur í dag. Breiðablik náði þriggja stiga forystu á toppnum með sigri á ÍBV í gær. FH getur jafnað Breiðablik að stigum með sigri á Grindavík/Njarðvík á útivelli í dag. Þá fá bikarmeistarar Þróttur, Stjörnuna í heimsókn. Fótbolti.net Fotbolti.net
Þjóðadeildin í dag - Lærisveinar Heimis spila umdeildan leikÞað er nóg um að vera í Þjóðadeildinni í dag. Þýskaland, undir stjórn Jurgen Klopp mæta Grikklandi. Þjóðverjar eru með eitt stig eftir jafntefli gegn Hollandi og Grikkir lögðu Serbíu. Serbia fær Holland í heimsókn í dag. Damörk fær Wales í heimsókn og Noregur fær Portúgal í heimsókn. Fótbolti.net Fotbolti.net
Heimsmeistararnir hungraðir í að gera enn beturSpánn vann England í fjörugum leik í Þjóðadeildinni í kvöld. Þetta var fyrsti leikur liðsins eftir sigur á HM í sumar þar sem liðið vann Argentínu í úrslitaleiknum. Luis de la Fuente, landsliðsþjálfari Spánar, framlengdi samning sinn á dögunum. Samningurinn er í gildi til ársins 2032. Fótbolti.net Fotbolti.net
Tuchel: Veit ekki af hverju við gerum svona mörg mistökEngland tapaði 3-2 gegn Spáni í fjögurum leik í Þjóðadeildinni í kvöld. Lamine Yamal kom Spáni yfir en mörk frá Anthony Gordon og Harry Kane komu Englandi í 2-1. Kane fékk tækifæri til að skora þriðja markið en klúðraði vítaspyrnu. Fótbolti.net Fotbolti.net
Gakpo: Þetta sumar var mjög erfittSumarið var mjög erfitt fyrir Cody Gakpo en unnusta hans missti fóstur og Gakpo brotnaði niður og hágrét stuttu síðar þegar hann skoraði í leik Hollands gegn Marokkó á HM. Þá hafði Man City mikinn áhuga á honum og hann var sagður vilja yfirgefa Liverpool. Hann ræddi við Telegraph um sumarið. Fótbolti.net Fotbolti.net
Þjóðadeildin: Dýrkeypt vítaklúður Kane gegn heimsmeisturunumHeimsmeistarar Spánar heimsóttu England á Wembley í fyrstu umferð A-deildar í Þjóðadeildinni í kvöld. Lamine Yamal slapp einn í gegn strax í upphafi leiks eftir skelfileg mistök hjá Marc Guehi og kom Spánverjum yfir. Fótbolti.net Fotbolti.net
Spurður út í Gylfa - „Ekki alveg kominn það langt"Gylfi Þór Sigurðsson kom inn af bekknum gegn Eistlandi í Þjóðadeildinni í kvöld og átti ágætis innkomu. Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, var spurður að því eftir leik hvort hann væri farinn að íhuga það að byrja með hann í næsta leik gegn Lúxemborg. Fótbolti.net Fotbolti.net
Mbappe frá næstu vikurnarKylian Mbappe var hetja Frakka í 1-0 sigri á Tyrklandi í gær. Hann skoraði eina mark leiksins snemma í seinni hálfleik en þurfti að fara af velli skömmu síðar. Hann varð fyrir því óláni að meiðast á hné. Fótbolti.net Fotbolti.net
„Ég veit að það hljómar skringilega að segja það"„Ég tel okkur ekki hafa vanmetið þá," sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands, eftir 1-1 jafntefli gegn Eistlandi í C-deild Þjóðadeildarinnar í dag. Arnar talaði um það á fréttamannafundi að Ísland hefði mætt líkamlega sterku liði og Eistar hefðu unnið baráttuna í dag. Fótbolti.net Fotbolti.net
Ísak Snær: Eigum bara að vinna þettaÍsland gerði afar svekkjandi 1-1 jafntefli við Eistland nú í dag. Fótbolti.net náði tali af Ísaki Snæ Þorvaldssyni sem spilaði sinn fyrsta keppnisleik fyrir A-landsliðið í dag. Fótbolti.net Fotbolti.net
Hákon Rafn: Ég sé ekki boltann nógu velÍsland gerði afar svekkjandi 1-1 jafntefli við Eistland nú í dag. Fótbolti.net náði tali af Hákoni Rafni Valdimarssyni, manni leiksins, eftir leik í dag. Fótbolti.net Fotbolti.net
Albert á leið í myndatöku - Útskýrir skiptingunaAlbert Guðmundsson fór meiddur af velli þegar Ísland gerði jafntefli gegn Eistlandi í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld. Albert hélt um öxl sína þegar hann fór af velli, leit ekki vel út. Fótbolti.net Fotbolti.net