Sýnir: Erlendar fréttir
5.335 fréttir fundust
Síða 89 af 107
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
13 látnir í kólerufaraldri í ChadÞrettán manns hafa látist í kólerufaraldri sem geisar í Afríkuríkinu Chad. Nærri 240 manns hafa smitast af bakteríunni og dánartíðni er 5,4 prósent. Faraldurinn er að mestu leyti bundinn við norðurhluta landsins, í héraðinu Hadjer Lamis og borginni N'djamena. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði nýlega við fjársterka stuðningsmenn sína á lokuðum fundi að þeir ættu að styðja við hugsanlegt framboð J. D. Vance varaforseta í forsetakosningum 2028. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Íranir segja viðræður á lokametrunumRáðamenn í Íran segja að samkomulag um framtíðarstjórn Hormússunds sem erindrekar ríkisins hafa unnið að í Óman vera á lokametrunum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gefið til kynna að samkomulag gæti verið opinberað í þessari viku. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Í einangrun með hantaveiruFransk-argentínskur ferðamaður í Frakklandi greindist nýverið með hantaveiruna og er nú kominn í einangrun á Spáni að því er heilbrigðisráðuneyti Frakka greinir frá. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Vara við hungursneyð á MadagaskarBarnaheill vara við yfirvofandi hungursneyð á Madagaskar á næstu mánuðum. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Vísa máli Fauci til dómstólaÞingnefnd í öldungadeild Bandaríkjaþings hefur vísað máli Anthony Fauci sóttvarnarlæknis til dómstóla, þar sem hann er sakaður um að sýna þinginu vanvirðingu eftir að hann neitaði að svara spurningum í yfirheyrslu þar sem viðbrögð hans við Covid-19 heimsfaraldrinum voru til umfjöllunar. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ fréttaDonald Trump segir ekkert til í fréttum af tómum hillum í vopnabúrum Bandaríkjanna vegna stríðsins gegn Íran. Í sama mund segir hann að verið sé að elta uppi heimildarmenn fjölmiðla sem hafa sagt frá hinum meinta skorti. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Svíar afhenda Úkraínumönnum skip úr skuggaflota RússaSænsk stjórnvöld ætla að afhenda stjórnvöldum í Úkraínu rússneskt flutningaskip sem grunað er um að hafa flutt farm af stolnum korntegundum frá hernumdum svæðum Úkraínu. Skipið tilheyrir svokölluðum skuggaflota Rússa. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Máli Fauci vísað til dómstóla: „Hann þurfti bara að segja sannleikann“Þingnefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings hefur samþykkt að vísa máli sóttvarnalæknisins Anthony Fauci til dómsmálaráðuneytisins. Þar verður tekin ákvörðun um hvort kæra eigi Fauci fyrir að sýna þinginu vanvirðingu á þingfundi í síðustu viku um sóttvarnaaðgerðir Bandaríkjanna á tímum covid. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Í varðhaldi vegna konu sem fannst látin í töskuKarlmaður á fertugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald í Grikklandi í morgun grunaður um að hafa myrt skoska konu í Aþenu í síðasta mánuði. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Er Noregur komin í sjálfheldu?Dan-Viggo Bergtun skrifar: Noregur hefur opnað landamæri sín, fjárhirslu og vopnageymslur fyrir Úkraínu frá árinu 2022. Þetta hófst sem tímabundin aðgerð fyrir fólk á flótta. Fjórum árum síðar er aðstoðin orðin nánast varanleg án nógu… Frettin - Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Ákæra Fauci fyrir vanvirðingu gegn þinginuÖldungadeildarnefnd Bandaríkjanna um heimavarnir hefur ákveðið að ákæra Anthony Fauci, yfirmann Ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunar Bandaríkjanna í kórónuveirufaraldrinum, fyrir vanvirðingu gagnvart þinginu. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Íran hótaði að slökkva á PersaflóasvæðinuÍrönsk stjórnvöld hertu hótanir sínar í garð nágrannaríkja sinna við Persaflóa í liðinni viku og sendu skilaboð um að þau myndu „slökkva á“ öllu svæðinu ef Bandaríkin réðust á orkuver þeirra og þuldu upp lista yfir tiltekin skotmörk. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Fékk lífstíðardóm fyrir árásina í MünchenDómstóll í Þýskalandi dæmdi í dag afganskan mann í lífstíðarfangelsi fyrir árás í München í Þýskalandi í febrúar á síðasta ári. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Áhrifavaldur myrtur í beinniMexíkóskur áhrifavaldur var í vikunni myrtur í beinni útsendingu. Morðið varpar enn ljósi á ofbeldið í Mexíkó og skipulagða glæpastarfsemi, sem hefur teygt anga sína til áhrifavalda þar í landi. Talið er að morðið tengist áhrifamiklum glæpasamtökum. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að aka inn í hóp fólks í MünchenDómstóll í München í Þýskalandi dæmdi í morgun afganskan karlmann á þrítugsaldri í lífstíðarfangelsi fyrir að aka bíl inn í mannfjölda í borginni í febrúar í fyrra. Tveggja ára stúlka og móðir hennar létu lífið í árásinni og á fimmta tug særðust. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Bandaríkjastjórn endurgreiðir 100 milljarða vegna ólögmætra tollaBandarísk stjórnvöld hafa endurgreitt fyrirtækjum um 100 milljarða bandaríkjadala vegna tolla sem innheimtir voru áður en Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði þá ólögmæta. Endurgreiðslurnar nema 60% þeirra 165 milljarða dala sem innheimtir voru með svokölluðum „frelsisdagstollum“ (e. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli afEbóla dreifist hraðar manna á milli í Austur-Kongó en hægt er að bregðast við henni. Þá eru heilbrigðisstarfsmenn á svæðinu þar sem faraldurinn er verstur í verkföllum vegna vangoldinna launa. Að minnsta kosti 3.874 hafa smitast og 1.751 hefur dáið. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Myndskeið: Flugmaður gæti hlotið dauðadómEftirlitsmyndavél á flugvellinum í Jakarta í Indónesíu náði myndum af því þegar tollverðir fundu fíkniefni í farangurstösku flugmanns frá Malasíu sem hafði flogið farþegaflugvél til borgarinnar 28. júlí. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Einn látinn eftir sprengingu á KanaríeyjumEinn er látinn og tveir aðrir slösuðust eftir að sprengja sprakk í eldsneytisgeymslu í bænum Telde á Kanaríeyjum. Sprengingin varð á Salinetas-iðnaðarsvæðinu á Gran Canaria þar sem orkufyrirtækið DISA er með höfuðstöðvar. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Einn látinn og tveir slasaðir eftir sprengingu á KanaríeyjumEinn starfsmaður lést og tveir slösuðust alvarlega í sprengingu sem varð í eldsneytisgeymslu á iðnaðarsvæðinu Salinetas á Gran Canaria í gær, miðvikudaginn 5. ágúst. Sprengingin varð þegar viðhaldsvinna stóð yfir í eldsneytisgeymi á geymslusvæði orkufyrirtækisins DISA. DV Pressan Erlendar fréttir
Fleiri en 600 úkraínskir drónar skotnir niðurÞykkur svartur reykjarmökkur stígur til himins yfir rússnesku borginni Jaróslavl eftir umfangsmikla drónaárás Úkraínumanna. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Íranar segja samkomulag við Ómana um opnun Hormússunds á lokastigumStjórnvöld í Íran segjast vera við það að ná samkomulagi við Óman um opnun siglingaleiðar gegnum Hormússund. Esmaeil Baqaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, segir samkomulagið „á lokametrunum“ en gefur ekkert frekar upp um innihald þess. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Faraldsfræðingur skrefi nær öldungadeildarsætiAbdul El-Sayed, vinstri sinnaður demókrati ættaður frá Egyptalandi, sigraði í prófkjöri Demókrataflokksins í Michigan í gær. Hann verður því frambjóðandi flokksins til öldungadeildar í þingkosningunum í Bandaríkjunum í nóvember. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Farsóttarfræðingur skrefi nær öldungadeildarsætiAbdul El-Sayed, vinstri sinnaður demókrati ættaður frá Egyptalandi, sigraði í prófkjöri Demókrataflokksins í Michigan í gær. Hann verður því frambjóðandi flokksins fyrir öldungadeild í þingkosningunum í Bandaríkjunum í nóvember. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Infantino ætlar ekki að segja af sérForseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, Gianni Infantino, ætlar ekki að segja af sér sem forseti sambandsins. Leiðtogahópur FIFA sendi frá sér yfirlýsingu eftir krísufund sem haldinn var með Infantino á skrifstofum FIFA í Rabat í Marokkó í gær. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Myndskeið: Gæða sér á ís í hitabylgjunniÍ dýragarðinum í Prag kæla ísbirnir og górillur sig niður í hitabylgjunni sem þar ríkir með því að éta ís og velta sér um í snjó MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Segjast semja við Óman um HormússundYfirvöld í Íran segjast hafa náð samkomulagi við Óman um siglingaleið um Hormússund. Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið, BBC. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Segjast semja við Óman um um HormússundYfirvöld í Íran segjast hafa náð samkomulagi við Óman um siglingaleið um Hormússund. Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið, BBC. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Segir sprengidrónann marka „nýtt hættustig“Innanríkisráðherra Þýskalands, Alexander Dobrindt, segir fund sprengidróna á Leipzig/Halle-flugvellinum marka „nýtt hættustig“ fyrir landið. Dobrindt segir ekkert benda til þess að viðvaningar hafi verið að verki og að rannsakendur líti á málið sem hluta af fjölþáttaárás. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir