Sýnir: Erlendar fréttir
5.333 fréttir fundust
Síða 7 af 107
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Heitir lífeyrishækkunum skuli flokkurinn sigraAlberto Núñez Feijóo, leiðtogi íhaldssömu stjórnarandstöðunnar á Spáni, hét því í dag að halda áfram að hækka lífeyri árlega í samræmi við verðbólgu ef flokkur hans sigrar í fyrirvaralausum þingkosningum í næsta mánuði. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Dróni hífði særðan hermann frá víglínunniSærðum úkraínskum hermanni hefur verið bjargað frá víglínunni með fljúgandi dróna, að því er úkraínsk hersveit greindi frá í dag. Að sögn sveitarinnar er björgunin sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýnJames Talarico, 37 ára fyrrverandi kennari sem stefnir að því að verða prestur í öldungakirkjunni, er frambjóðandi Demókrataflokksins. Andstæðingur hans er Ken Paxton, 63 ára repúblikani sem hefur haldið pólitískum ferli sínum á floti þrátt fyrir fjölmörg hneykslismál, ekki síst vegna hollustu… Heimildin - Erlent Erlendar fréttir
Segir Brand hafa dregið sig inn á salerni og neytt sig til munnmakaBrand, sem er 51 árs og fyrrverandi grínisti og sjónvarpsmaður, neitar þremur ákærum um nauðgun, þremur ákærum um kynferðisbrot og einni ákæru um ósæmilega kynferðislega áreitni. Ákærurnar snúa að sex konum og ná yfir tíu ára tímabil á ferli hans í skemmtanaiðnaðinum. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Olíuríkið kýs um aðskilnað frá KanadaÍbúar kanadíska ríkisins Alberta greiða atkvæði í dag um hvort halda eigi bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðskilnað frá landinu. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Mannskæð drónaárás nærri markaðiAð minnsta kosti 80 voru drepnir í drónaárás í suðurhluta Súdan í gær. Árásin var við samgöngumiðstöð nærri markaði í Al-Dibab í Vestur-Kordofan, en þar var fjöldi fólks sem var á leið heim til sín. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Segir Bandaríkin og Ísrael endurtaka nýlendustefnu á GazaKhouri líkti frumkvæðinu við yfirstandandi samningaviðræður þar sem Líbanon, Ísrael og Bandaríkin koma að málum. Hann sagði að þar væri um að ræða „endurtekningu, í breyttri mynd, á nýlendustefnu og íhlutun í málefni svæðisins sem átti sér stað fyrir 100 árum“. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Sakaðir um að svelta 190 börn til dauðaKenískur prestur verður í dag dæmdur í umfangsmiklu fjöldamorðsmáli. Paul Mackenzie stýrði sértrúarsöfnuði en hann og fylgjendur hans eru sakaðir um að hafa myrt 190 börn og einn fullorðinn mann. Mackenzie sannfærði foreldra barnanna um að svelta þau til dauða svo þau gætu hitt Jesú. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Hundruðum skóla bárust sprengjuhótanirHundruðum skóla á Norður-Írlandi, í Skotlandi, Ungverjalandi og Serbíu bárust sprengjuhótanir í dag og voru sumir þeirra rýmdir. Yfirvöld sögðu hótanirnar virðast vera gabb. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Sameinuðu þjóðirnar draga úr aðstoð á Gaza vegna fjárskortsMatvælahjálp Sameinuðu þjóðanna greindi frá því í morgun að hætta þurfi mánaðarlegum stuðningi við hálfa milljón íbúa á Gaza vegna fjárskorts. Shaun Hughes, hjá Matvælahjálpinni, segir að þörf fyrir aðstoð hafi aftur á móti ekki dregist saman. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Fékk kattarskott inn um bréfalúgunaYngri maðurinn er jafnframt grunaður um líkamsárás og eignaspjöll en sá eldri er grunaður um að hafa reynt að hafa áhrif á vitni auk áreitni. Öll þrjú voru áfram í haldi lögreglu þegar síðast fréttist. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Apu snýr aftur í The SimpsonsApu Nahasapeemapetilon, eins og verslunareigandinn vinsæli heitir fullu nafni, birtist aftur í þættinum á sunnudag, í þætti sem ber heitið The Revengening. Það er leikarinn Sunil Malhotra, sem fæddist á Indlandi en ólst upp í Bandaríkjunum, sem ljáir honum nú rödd sína. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Stjórnendur rússneskrar nördasíðu handteknirRússneski óháði fréttamiðillinn Mediazona greindi frá því að Úkraínumenn hefðu stofnað TrainPix. Þeir tilkynntu lokun síðunnar í kjölfar allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu. Stjórnendur TrainPix eyddu öllu myndasafni síðunnar og hvöttu fólk til að styðja úkraínska herinn. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Hafnar því að dregið hafi úr upplýsingagjöf til ÚkraínumannaVolodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að engar viðvaranir hafi borist frá bandamönnum um eldflauga- og drónaárásir sem Rússar gerðu í nótt. Þeir hafi skotið 16 eldflaugum og yfir 200 drónum í nokkrum bylgjum. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Hótar að auka viðbúnað á landamærunumKim Yo Jong, áhrifamikil systir norðurkóreska einræðisherrans Kim Jong Un, segir að landamæri ríkisins og Suður-Kóreu séu „mjög óstöðug“. Vegna þessa og annarra aðgerða „glæpamanna“ í Suður-Kóreu sé meðal annars verið að skoða að auka viðbúnað þar og setja aftur upp stóra hátalara við landamærin og… Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Lögreglan í Kaupmannahöfn sló fréttaljósmyndaraLögreglan í Kaupmannahöfn hefur sætt harðri gagnrýni fyrir hvernig hún hefur staðið að aðgengi fjölmiðla að pólitískum mótmælum sem tilkynnt hafa verið í samræmi við lög. Mikil gagnrýni hefur beinst að störfum lögreglunnar eftir að tveir ljósmyndarar voru slegnir við mótmælin. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Gæti lýst yfir neyðarástandi „ef þörf krefur“Sébastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, sagði í dag að lýsa mætti yfir neyðarástandi „ef þörf krefur“. Hann taldi þó útgöngubann henta betur til að bregðast við ástandinu sem skapast hefur vegna ofbeldisfullra mótmæla. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Áströlsk þingkona slasaðist alvarlega þegar jeppa var ekið á hanaHelen Haines, áströlsk þingkona, slasaðist alvarlega þegar jeppi keyrði á hana fyrir utan skrifstofu hennar í Viktoríu-fylki í dag. Forsætisráðherra landsins segir árásina viljaverk og leiðtogar annarra flokka hafa fordæmt árásina. Fundu hníf í bíl árásarmannsinsHaines er óháður þingmaður. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Felur Ringqvist að reyna stjórnarmyndunForseti sænska þingsins sagði í dag að hann hefði beðið Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtoga Miðflokksins, að reyna að mynda ríkisstjórn með vinstri- og hægriflokkum. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Fær umboðið en dreymir ekki um stól forsætisráðherraAndreas Norlén, forseti sænska þingsins, fól Elisabeth Thand Rinqvist, formanni Miðjuflokksins, að reyna að mynda ríkisstjórn með þátttöku flokka af hægri- og vinstrivæng sænskra stjórnmála. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Bretar fordæma ofbeldi mótmælendaEngin afsökun er fyrir þeim ofbeldisfullu óeirðum sem urði í Frakklandi um helgina, að mati bresku ríkisstjórnarinnar. Hún segir þær óafsakanlegar. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Borgarstjórar fá leyfi til að setja útgöngubannFranska ríkisstjórnin kom saman á neyðarfundi í morgun vegna óeirða um helgina. Sebastian Lecornu forsætisráðherra ætlar að veita borgarstjórum leyfi til að setja útgöngubann sem er ætlað að vernda borgara og búðir. Ekki hefur verið tilgreint í hvaða borgum. Yfir 700 eru enn í varðhaldi. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Miðflokkurinn fær umboðiðLeiðtogi Miðflokksins fékk umboð til stjórnarmyndunar í Svíþjóð í dag. Jafnaðarmönnum hafði ekki tekist að klambra saman ríkisstjórn á þeim rúma mánuði sem er liðinn frá kosningum. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Gleymdi leyniskjölum og þarf að greiða 630.000Sænskur áfrýjunardómstóll sakfelldi í dag Henrik Landerholm, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar, fyrir stórfellt gáleysi vegna þess að hann skildi leyniskjöl eftir í ólæstum skáp á hóteli í Stokkhólmi. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“Íslenskur kennari við Sorbonne-háskólann í París segir mótmælin þar að mestu hafa farið friðsamlega fram. Mótmæli stúdenta eigi fátt sameiginlegt með þeim óeirðum sem hafa geisað undanfarna daga. Mótmælin hafi sett kennslu hans úr skorðum og nemandi hafi misst hendi í átökum við lögreglu. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Engin mál á borði borgaraþjónustunnarEngin mál eru á borði borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis í kjölfar óeirðanna sem gengið hafa yfir í Frakklandi. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Prestur lést þegar róðukross féll á hannEkvadorskur prestur lét lífið þegar stór róðukross féll á hann í miðri messu á laugardaginn. Alfredo Sánchez Molinari var prestur í Guayaquil en hann var 53 ára gamall. Streymt var frá messunni í beinni útsendingu og hefur myndband af slysinu verið í dreifingu á netinu um helgina. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Farþegar sem spila háværa tónlist í strætó geta átt yfir höfði sér sektFarþegar sem spila háværa tónlist í strætisvögnum á Englandi gætu átt á hættu á að vera sektaðir. Stjórnvöld ætla að taka harðar á óæskilegri og truflandi hegðun í almenningssamgöngum. Sektin nemur allt að 100 pundum, jafnvirði rúmlega 16 þúsund króna. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Musk ætlar að gefa hverju barni hlut í SpaceXAuðkýfingurinn Elon Musk sagðist í dag ætla að gefa hverju barni í Bandaríkjunum eitt hlutabréf í geimfyrirtæki sínu SpaceX. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Lokuðu fyrir aðgang að Louvre-safninuMótmælendur lokuðu inngangi Louvre-safnsins í París í morgun á meðan frönsk yfirvöld reyna í óðaönn að lægja óánægju almennings sem kynt hefur undir fjöldamótmælum vegna hækkandi framfærslukostnaðar. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Þingkona í lífshættu eftir hrottalega árás – Óttast að hún hafi misst fótleggÁstralska þingkonan Helen Haines liggur þungt haldin á sjúkrahúsi eftir að ekið var á hana fyrir utan skrifstofu hennar í bænum Wangaratta í Viktoríufylki í dag. Talið er að ökumaðurinn hafi ekið á hana af ásetningi og hafa hryðjuverkalögregla og leyniþjónusta Ástralíu komið að rannsókn m DV Pressan Erlendar fréttir
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í BandaríkjunumÝmis óvenjuleg atvik einkenndu bandarísk stjórnmál síðustu viku. Frambjóðandi sem veiktist af inflúensu varð fyrir barðinu á tilhæfulausum orðrómi, kosningaauglýsing birtist í rangri borg og grunsamlegar sendingar með hvítu dufti bárust kosningayfirvöldum. Heimildin - Erlent Erlendar fréttir
„Lygari“ og „trúður“: Eitt stærsta lýðræðisríki heims á krossgötumLuiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, og hægrisinnaði öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro réðust hvor á annan í fyrstu kappræðum sínum í gær. Kappræðurnar voru harkalegar, en vika er í síðari umferð forsetakosninganna, sem búist er við að verði jöfn. Heimildin - Erlent Erlendar fréttir
Selena Gomez segir nikótínveip hafa breytt rödd sinni til frambúðar„Það er svo erfitt að hætta nikótíni,“ hélt hún áfram. „Ég held að mig hafi bara langað til að segja að ef þú ert að ganga í gegnum þetta, eða ert jafnvel að hugsa um að byrja að veipa, þá er það einfaldlega ekki þess virði. Þetta er svo heimskulegt. “ Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Selena Gomez segir nikótínveip hafa breytt rödd sinni„Það er svo erfitt að hætta nikótíni,“ hélt hún áfram. „Ég held að mig hafi bara langað til að segja að ef þú ert að ganga í gegnum þetta, eða ert jafnvel að hugsa um að byrja að veipa, þá er það einfaldlega ekki þess virði. Þetta er svo heimskulegt. “ Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Lífshættulega slösuð eftir bílaárásÁströlsk þingkona er lífshættulega slösuð eftir að ekið var viljandi á hana fyrir utan skrifstofu hennar í borginni Wangaratta í dag. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Senda far til að kanna uppruna FóbosarJapönsku geimfari sem er ætlað að safna sýnum frá Fóbos, öðru af tveimur smátunglum Mars, verður skotið á loft á morgun. Markmiðið er að varpa ljósi á uppruna tunglanna tveggja. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Herforingi segir Breta þurfa að búa sig undir stríðEinnig er gert ráð fyrir að forsætisráðherrann hefji nýja herferð til að hvetja öll heimili til að vera betur undirbúin fyrir hvers kyns neyðarástand, allt frá flóðum og þurrkum til vopnaðra átaka. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Ók viljandi á ástralska þingkonuEkið var á ástralska þingkonu fyrir utan skrifstofu hennar í Wangaratta í morgun. Útlit er fyrir að 43 ára maður hafi vísvitandi ekið á Helen Haines á Toyota Landcruiser en Anthony Albanese, forsætisráðherra, segir atvikið rannsakað af hryðjuverkalögreglu. Ekki sé um slys að ræða. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Samkomubann í MarseilleYfirvöld í Marseille, næststærstu borg Frakklands, hafa bannað allar samkomur og mótmælaaðgerðir í borginni frá hádegi til klukkan átta í kvöld að staðartíma. Bannið kemur í kjölfar ofbeldis og ráns á verslunum um helgina, þegar mótmæli vegna hækkandi framfærslukostnaðar fóru úr böndunum. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Óttast að El Niño-fyrirbærið verði það öflugasta í þúsund árÞað gerist þegar hefðbundnir staðvindar, sem blása frá austri til vesturs, veikjast eða snúast við, sem veldur því að hlýr sjór safnast saman meðfram ströndum Ameríku og raskar veðurfari um allan heim, oft með miklum rigningum á sumum svæðum og alvarlegum þurrkum á öðrum. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Reyna að koma á fundi um þrískiptingu heimsins og örlög ÚkraínuVladimír Pútín Rússlandsforseti hefur lagt til að hann, Donald Trump Bandaríkjaforseti og Xi Jinping, leiðtogi Kína, fundi í næsta mánuði um stríðið í Úkraínu. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti tæki ekki þátt í viðræðunum. Heimildin - Erlent Erlendar fréttir
Fengu engar viðvaranir um árásirVolodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að engar viðvaranir hafi borist frá bandamönnum um yfirvofandi eldflauga- og drónaárásir Rússa í nótt. Hann segir þá hafa skotið 16 eldflaugum og yfir 200 drónum í nokkrum bylgjum. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Berast ásakanir frá Bandaríkjunum en segjast ekki fá viðvaranirRússar skutu 16 skotflaugum á Kænugarðshérað og sendu meira en 200 dróna víðs vegar um stríðshrjáð landið, sagði Selenskí. Fréttamenn AFP heyrðu loftvarnarflautur og sprengingar í höfuðborginni. Heimildin - Erlent Erlendar fréttir