Sýnir: Erlendar fréttir
5.333 fréttir fundust
Síða 14 af 107
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Friðarverðlaunahafi Nóbels er með skilaboð til TrumpsÍ viðtali við AFP sagði Pillay það heldur ekki tilviljun að Bandaríkin hefðu tilkynnt refsiaðgerðirnar gegn dómstólnum aðeins nokkrum klukkustundum eftir að tilkynnt var um Nóbelsverðlaun hennar. Það væru „viðbrögð við því að Trump forseti hlaut ekki verðlaunin“. Heimildin - Erlent Erlendar fréttir
Íranar reyna að hækka olíuverð til að pirra TrumpÍrönsk stjórnvöld beita nýjum aðferðum við að ráðast gegn skipum á Hormússundi. Yfirlýst markmið er að halda olíuverði háu og þrýsta þannig á Bandaríkjaforseta fyrir kosningarnar þar í landi í næsta mánuði. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í NoregiFimm menn voru handteknir í Björgvin í Noregi í dag en þeir eru grunaður um að hafa ofrukkað skip á vegum Atlantshafsbandalagsins sem þeir þjónustuðu. Húsleit sem tengist rannsókninni var einnig gerð í Rúmeníu og Þýskalandi. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Verðbólga á uppleið í BandaríkjunumVerðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en búist hafði verið við í september samkvæmt opinberum gögnum sem voru birt í dag. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Fjölskylda í sárum: „Við biðjum fólk að hætta þessu“Fjölskylda andlega veiks manns sem tígrisdýr drap í dýragarði í Bretlandi hefur hvatt fólk til að hætta að birta myndefni af árásinni. Donald Trump Bandaríkjaforseti er á meðal þeirra sem birtu myndskeið af atvikinu á netinu. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
„Miskunnarlaus, útsmoginn og stjórnsamur“Breskur saksóknari sagði kviðdómi í London í dag að leikarinn og grínistinn Russell Brand væri „kynferðislegt rándýr“ sem hefði verið „miskunnarlaus, útsmoginn og stjórnsamur“ þegar hann sóttist eftir kynlífi með konum. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Fundu elsta skipsflak heimsFornleifafræðingar telja sig hafa fundið elsta skipsflak heims úti fyrir ströndu Kekovaeyju í Tyrklandi. Talið er að skipið hafi sokkið fyrir 4.400 til 4.700 árum, um svipað leyti og pýramídarnir í Gísa voru reistir. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Sjúkrahúsin yfirfullSjúkrahús í Jemen eiga í erfiðleikum með að anna vaxandi fjölda sjúklinga sem særst hafa í borgarastríðinu í landinu að sögn Rauða krossins. Á sama tíma glímir viðkvæmt heilbrigðiskerfi landsins við alvarlegan skort. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi afturÍranir hafa fjölgað árásum sínum á olíuflutningaskip á Hormússundi og gera árásir á stærra svæði. Þetta hefur skilað nokkrum árangri í vel heppnuðum árásum en markmið Írana er að halda eldsneytisverði háu og reyna þannig að hafa áhrif á þingkosningar í Bandaríkjunum í næsta mánuði. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Uppgötvuðu árásir Rússa utan úr geimnumRannsakendur við tvo bandaríska háskóla stóðu ráðþrota við margra ára rannsóknir á dularfullum GPS-truflunarmerkjum utan úr geimnum þar til óvænt aðstoð barst frá Þrándheimi í Noregi. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Trump boðar stórfellda olíu- og jarðefnaleit á Grænlandi – nýr samningur styrkir stöðu BandaríkjannaDonald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag að undirbúningur væri hafinn að umfangsmikilli leit að olíu, jarðgasi og verðmætum jarðefnum á Grænlandi. Yfirlýsingin kemur í kjölfar nýlegs samkomulags Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands um aukna hernaðar- og öryggissamvinnu á norðurslóðum. Frettin - Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólksVið málflutning vegna játningarinnar greindi Logan Frye, aðstoðarsaksóknari Baltimore, frá því að þrjú myndskeið hefðu fundist þar sem Carroll sæist fróa sér og kasta af sér vatni á eigur eða matvæli á vinnustaðnum. Samstarfsfólk hans hafði ekki vitneskju um háttsemina. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
SpaceX takmarkar Starlink í Úkraínu – hernaðaraðgerðir truflast án fyrirvaraÚkraínsk stjórnvöld segja að SpaceX, fyrirtæki Elons Musk, hafi skyndilega takmarkað notkun Starlink-gervihnattakerfisins í Úkraínu. Breytingarnar hafa þegar truflað hernaðaraðgerðir og valdið áhyggjum af því hversu háð Úkraína er bandarískri fjarskiptatækni. Frettin - Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Þurfa að „gera meira“ til að efla loftvarnirMark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, hefur hvatt aðildarríki bandalagsins til að auka stuðning við loftvarnir Úkraínu á meðan árásir Rússa dynja á landinu. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundinEftir tæplega 90 ár gæti ráðgátan um hvarf flugkonunnar Ameliu Earhart loks verið að leysast. Hópur vísindamanna og rannsakenda frá Archaeological Legacy Institute og Purdue-háskóla kom til óbyggðu eyjarinnar Nikumaroro í Suður-Kyrrahafi 12. október til að leita að flugvél hennar. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Framboð á dísilolíu takmarkað fram á næsta árTruflanir á framboði dísilolíu við Persaflóa vegna stríðs Bandaríkjanna gegn Íran munu halda markaðnum þröngum fram á næsta ár, að sögn Alþjóðaorkumálastofnunarinnar (IEA), þar sem það mun taka tíma að byggja aftur upp birgðirnar sem hafa klárast. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Trump birti óhugnanlegt myndskeið af banvænni árás tígrisdýrsDonald Trump Bandaríkjaforseti birti í gær myndskeið af manni sem varð fyrir banvænni árás tígrisdýrs í dýragarði í Bretlandi um liðna helgi. Myndskeiðið birti Trump á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, en þar er hann vanur að birta pólitísk skilaboð, myndskeið frá opinberum viðburðum og DV Pressan Erlendar fréttir
Stjórnvöld taka yfir vinsælustu fréttastöð TyrklandsLögregla réðst inn í höfuðstöðvar Halk TV, vinsælustu fréttastöðvar Tyrklands, snemma í morgun. Útsendingar stöðvarinnar voru stöðvaðar og stjórnvöld skipuðu sérstakan umsjónarmann yfir rekstri hennar. Aðgerðin er sú nýjasta í röð aðgerða gegn fjölmiðlum sem styðja stjórnarandstöðuna. Heimildin - Erlent Erlendar fréttir
Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“Úkraínskir hermenn stóðu óvænt fyrir því í gærkvöldi að takmarkanir virðast hafa verið settar á notkun þeirra á Starlink-móttökustöðum. Takmarkanirnar hafa bæði komið niður á árásum Úkraínumanna á birgðalínur rússneskra hermanna og á vörnum þeirra gegn sjálfsprengidrónum Rússa. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Fyrsti fundur nýs fjölmiðlafulltrúa ansi klúðurslegurKatie Zacharia, nýr fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, átti ekki draumabyrjun í starfi þegar hún hélt sinn fyrsta blaðamannafund í gær. Zacharia, sem tekur við af Karoline Leavitt, svaraði aðeins þremur blaðamönnum á fundinum í gær og lauk honum töluvert fyrr en venjan er eða eftir aðeins um… Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Námsmaður keypti fíkniefni fyrir 128 milljónirLögreglan í Bergen í Noregi telur sig nú geta sannað að umfangsmikil fíkniefnasala stúdents við Viðskiptaháskólann þar í borginni, NHH, hafi verið liður í skipulegri brotastarfsemi en málið snýst um vel á annað hundrað kíló efna. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Þrír létust í árásum Rússa á KænugarðEftirlitsaðilar á Telegram héldu því fram að árásirnar hefðu beinst að MegaCOD-gagnaveri Sberbank í Balakovo. Bygging gagnaversins hófst árið 2021 og Dmitry Chernyshenko, aðstoarforsætisráðherra Rússlands, hafði sagt að það yrði stærsta gagnaver landsins. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Yfir hálf milljón án rafmagnsUm 600 þúsund manns eru án rafmagns í Úkraínu eftir umfangsmiklar árásir Rússa í nótt. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir árásirnar vísvitandi brot á því vopnahléi um árásir á orkuinnviði sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði lýst yfir. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nóttRússar gerðu umfangsmiklar dróna- og eldflaugaárásir á Kænugarð í nótt og eru um 600.000 manns án rafmagns í borginni. Þá gerðu Rússar einnig árásir á lestarinnviði í því sem yfirmaður lestarfyrirtækis úkraínska ríkisins kallaði „stórfellda bylgju árása“. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Yfirmaður MI5 varar við hættulegum tímum: „Etja okkur hvert gegn öðru“Ken McCallum, yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI5, segir að öryggisumhverfi heimsins standi nú á tímamótum sem væru sambærileg og eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001, þeir sem vilji gera samfélögum illt notist við skautun til að etja fólki gegn hvort öðru. DV Pressan Erlendar fréttir
Brottfluttir Ísraelar snúa heim í stórum stíl fyrir kosningarStutt er í kosningar í Ísrael en þær verða haldnar 27 október. Ljóst er að þær verða prófsteinn fyrir forsætisráðherrann Benjamin Netanyahu og hægristjórn hans eftir nærri því þriggja ára stríðsrekstur á Gasa, í Íran og í Líbanon. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Farþegi lét öllum illum látum í tíu tíma flugiÞrjátíu og þriggja ára karlmaður var handtekinn eftir að farþegaþota Lufthansa lenti í Frankfurt í Þýskalandi á mánudag. Maðurinn er sagður hafa sýnt af sér árásargjarna hegðun um borð og ítrekað hrist hurð flugvélarinnar þrátt fyrir fyrirmæli áhafnar um að hætta. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Stefna að því að banna naglalakk og stutt pilsStjórnvöld í Perú hyggjast banna stúlkum að ganga í stuttum pilsum og að bera naglalakk í skólum. Þá vilja þau jafnframt banna drengjum að vera með langt hár. Keiko Fujimori, sem kjörin var forseti landsins í júlí, sagði í nýlegri heimsókn í skóla í útjaðri höfuðborgarinnar Lima að regla verði að… Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
13 börn látin eftir að bát hvolfdi á Ganges-fljótiÞrettán látin börn voru dregin á land úr Ganges-fljóti á Indlandi í gær eftir að bát hvolfdi á leið á hátíð í nágrannaþorpi þeirra. Börnin voru yngri en fimmtán ára en sex manns komust lífs af. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Litlum þorpum fórnað fyrir flóðavarnir borgannaLítil landsbyggðaþorp á Taílandi verða fyrir endurteknum flóðum vegna aðgerða þarlendra stjórnvalda til að vernda höfuðborgina Bangkok. Fréttamenn AFP hafa séð nokkur þorp í mánuðinum sem eru komin á kaf. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Slíta borgarstjórnarviðræðum við sigurvegarannTilraunir til að mynda vinstri meirihluta í borgarstjórn Berlínar strönduðu á þriðjudag þegar tveir flokkar slitu viðræðum við vinstriflokkinn Die Linke, sem sigraði í kosningunum, vegna ágreinings um Ísrael og Palestínu. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Segja hálfa milljón hafa tekið þáttFranskir menntaskólanemendur héldu áfram mótmælum í dag og kalla nú eftir stuðningi háskólanema og gulvestunga þegar haustfrí skóla nálgast. Innanríkisráðuneytið telur 161.500 hafa mótmælt á landsvísu en samtök nemenda segja þátttakendur hafa verið 480 þúsund. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Trump deilir myndskeiði af tígrisdýraárásinniDonald Trump Bandaríkjaforseti birti fyrr í kvöld óhugnanlegt myndskeið á Truth Social-reikningi sínum af tígrisdýri sem réðst á og banaði manni í Bretlandi. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Styður Repúblikana með tugum milljarðaForsvarsmenn tveggja pólitískra aðgerðanefnda (super PAC) vestanhafs eru að draga úr aðstoð sinni við að minnsta kosti tvo frambjóðendur Repúblikanaflokksins. Repúblikanar hafa mikið forskot á Demókrata þegar kemur að peningum, þótt staða þeirra þyki ekki góð. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Myndskeið: „Ótrúlega stolt af frönskum nemendum“„Ég er ótrúlega stolt af frönskum nemendum,“ sagði sænski umhverfisverndarsinninn Greta Thunberg, sem tekur þátt í mótmælum fyrir utan framhaldsskólann Paul Eluard í úthverfi Parísar, Saint-Denis. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Dánaraðstoð orðin 4% af öllum dauðsföllum í BelgíuUm 4% dauðsfalla í Belgíu í fyrra voru með dánaraðstoð. Hlutfallið hefur tvöfaldast frá árinu 2020, að því er fram kemur í skýrslu stofnunar um mat og stjórnun dánaraðstoðar, sem kom út fyrr í þessum mánuði. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Hlýtur 40 ára fangelsisdóm fyrir morðið á Tupac ShakurDuane „Keffe D“ Davis hefur hlotið að minnsta kosti 40 ára fangelsisdóm fyrir að hafa fyrirskipað morðið á rapparanum Tupac Shakur. Davis, sem er 63 ára, er fyrrum leiðtogi glæpagengis í Kaliforníu. Hann var fundinn sekur í síðasta mánuði. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Snjallgleraugu verða að gefa „skýrar viðvaranir“Stofnun Evrópusambandsins sem annast löggjöf í persónuverndarmálum segir að snjallgleraugu verði að gefa „skýrar viðvaranir“ þegar þau taka upp myndefni. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Leó páfi með lungnakrabbameinLeó páfi fjórtándi gekkst undir skurðaðgerð á lunga fyrr í dag til að fjarlægja krabbamein. Meinið hafði fundist við reglubundna læknisskoðun, samkvæmt Vatíkaninu. Leó páfi er 71 árs gamall. Aðgerðin, sem sögð er hafa tekist vel, var gerð við Gemelli-spítalann í Róm. Hún tók um 90 mínútur. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Páfinn greindist með lungnakrabbameinLeó páfi hefur greinst með lungnakrabbamein. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Páfagarði en neðra blað hægra lunga hans var fjarlægt í aðgerð í dag. Aðgerðin gekk vel. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Partíbann sett á í CornellCornell-háskóli í New York-ríki hefur ákveðið að banna öll partí í húsum á vegum bræðralaga það sem eftir er skólaársins. Bannið er meðal aðgerða sem háskólinn boðar eftir gagnrýni á viðbrögð sín við ásökunum um nauðgun í húsakynnum Chi Phi-bræðralagsins árið 2024. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Páfinn með lungnakrabbameinLeó páfi hefur greinst með lungnakrabbamein og hefur hluti af lunga hans verið fjarlægður. Vatíkanið greinir nú frá þessu, en fyrr í dag var greint frá því að hann hefði farið í skurðaðgerð á lunga sem heppnaðist vel. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Fjörutíu ár fyrir morðið á TupacDuane „Keffe D“ Davis, fyrrverandi leiðtogi glæpagengis, hefur verið dæmdur í fjörutíu ára fangelsi fyrir að skipuleggja morðið á rapparanum Tupac Shakur árið 1996. Hann er sá fyrsti sem hlýtur dóm vegna morðsins. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir